Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.10.2007, Blaðsíða 12
 Flokksforysta Borg- aravettvangs í Póllandi sneri sér í gær að því að undirbúa myndun nýrrar ríkisstjórnar undir forystu flokksleiðtogans, Donalds Tusk. Flokkurinn vann sannfærandi sigur á höfuðkeppinautnum, íhalds- flokknum Lög og réttlæti sem haldið hefur um stjórntaumana í landinu frá síðustu þingkosning- um fyrir tveimur árum. Þegar 99 prósent atkvæða höfðu verið talin í þingkosningum sunnu- dagsins hafði Borgaravettvangur fengið 41,4 prósent þeirra og útlit var fyrir að það gæfi flokknum 209 þingsæti af alls 460 á pólska þjóðþinginu, Sejm. Lög og réttlæti fékk 32,2 prósent atkvæða og var spáð 166 þingsætum. Borgaravett- vangur hefur val um tvo sam- starfsflokka í ríkisstjórn – Bænda- flokkinn með 31 þingsæti og Vinstri-lýðræðisflokkinn með 50. Kjörsókn mældist 53,8 prósent og hefur aldrei verið meiri frá því í fyrstu lýðræðislegu kosningun- um árið 1989, sem felldu kommún- ista frá völdum í landinu. Í síðustu þingkosningum haustið 2005 var kjörsóknin aðeins 40,6 prósent. Þessi tiltölulega mikla kjörsókn endurspeglaði þá ástríðufullu umræðu sem átti sér stað í aðdrag- anda kosninganna nú og snerist að miklu leyti um það hvert Pólland almennt stefndi og hvernig tengsl- um landsins innan Evrópusam- bandsins skyldi háttað. Tusk, tilvonandi arftaki Jaros- laws Kaczynski á forsætisráð- herrastólnum, vill stýra þjóðinni frá því að leggja alla áherslu á að uppræta fyrrverandi kommúnista í stjórnkerfi landsins og vill þess í stað leggja mesta áherslu á að Pól- verjar nýti sem best þau efnahags- legu tækifæri sem þeim bjóðast með aðildinni að Evrópu- sambandinu, sem Pólland gekk í árið 2004. Fráfarandi stjórn hefur með harðri framgöngu í nafni pólskra þjóðarhagsmuna lent í ýmsum árekstrum við ESB og grannþjóðir. Tusk vill líka kalla heim her- mennina 900, sem Pólverjar hafa í Írak. Hann sagði í gær að það ætti að gerast strax upp úr komandi áramótum. Hann vill líka að Pól- verjar fái meira fyrir sinn snúð fyrir að láta undan vilja Banda- ríkjamanna að setja upp á pólsku landi gagneldflaugastöð fyrir eld- flaugavarnakerfi Bandaríkjanna. Svo vill til að tvíburabróðir for- sætisráðherrans fráfarandi, Lech Kaczynski, hefur það hlutverk að útnefna Tusk sem arftaka bróður síns. Tusk tekur við af Kaczynski Verðandi forsætisráðherra Póllands er Donald Tusk, leiðtogi Borgaravettvangs. Hann stefnir að nánari tengslum við önnur Evrópusambandsríki, jafnvægi í ríkisfjármálum og minni undirgefni við Bandaríkin. Hva› passar me› ? vinbud.is Einar Guðfinns- son landbúnaðarráðherra opnaði á sunnudaginn hestamiðstöð í Gultentorp sem er skammt frá Álaborg á Jótlandi. Einar var staddur sem sjávarútvegsráð- herra á Norður-Jótlandi á ráð- stefnu um sjávarútvegsmál í Álaborg á laugardaginn og náði að opna hestamiðstöðina á sunnudag sem landbúnaðarráð- herra áður en hann hélt heim til Íslands. Gultentorp-hestabúið er í eigu Kjelds Dissings og fjölskyldu hans. Þau eiga marga tugi íslenskra hesta en land þeirra nær yfir um 50 hektara. Auk Einars ráðherra var Jens Iversen, formaður FEIF, við- staddur athöfnina. Þar var mik- ill fjöldi fólks saman kominn, þar á meðal varaborgarstjórinn í Álaborg og sendiherrahjónin Svavar Gestsson og Guðrún Ágústsdóttir. Til hátíðabrigða voru sýndir fjórir þekktir stóðhestar; Númi frá Þóroddsstöðum, Stefnir frá Sandhólaferju, Gustur frá Kjarri og Ögri frá Háholti. Var áhorf- endum gefinn kostur á því að kjósa þann hest sem þeir vildu helst að yrði notaður í Gulten- torp að ári á hryssur Kjelds bónda. Sigraði Gustur frá Kjarri með miklum yfirburðum að mati brekkudómaranna í áhorfenda- hópnum. Ný hestamiðstöð á Jótlandi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur verið gerð að heiðursfélaga í Women’s Foreign Policy Group (WFPG) í Washington, öflugu tengslaneti bandarískra kvenna sem starfa að alþjóðamálum. Ingibjörg sat fund samtakanna á föstudagskvöld þar sem hún talaði um forsendur og mikilvægi pólitískra áhrifa kvenna á alþjóðavettvangi og lýsti því hvernig það tryggði betri árangur að flétta kynjapólitískri sýn inn í alþjóðastjórnmálin. Heiðursfélagi í bandarískum samtökum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.