Fréttablaðið - 28.10.2007, Side 56

Fréttablaðið - 28.10.2007, Side 56
Á leikskólanum Leik- garði er unnið metnaðar- fullt starf með börnum frá sex mánaða upp í tveggja ára. Síðustu daga hefur starfið þó markast af manneklu eins og víð- ar á höfuðborgarsvæðinu. Leikgarður er þriggja deilda leikskóli fyrir börn foreldra sem nema við Háskóla Ís- lands. Félagsstofnun stúdenta tók við rekstri Leik- garðs í septemberbyrjun árið 2006. Vegna manneklu og veikinda hafa stjórnend- ur leikskólans neyðst til að loka deildum og er þetta þekkt vandamál víða. „Ég held að vandamálið sé fyrst og fremst launatengt. Við erum ekki samkeppnis- hæf og auk þess er erfitt að fá leikskólakennara. Það er lítið atvinnuleysi og leik- skólakennarar eru ráðnir strax á fyrsta ári. Ég fékk til dæmis þrjú tilboð á fyrstu önninni minni og það var eins með alla hina,“ segir Íris Arnardóttir, leikskóla- stjóri Leikgarðs, sem telur að það væri til bóta að auka plássin við leikskólaskor til að mæta þessari þörf. „Launin hjá leiðbeinend- um eru of lág og það er of lítið frelsi til að umbuna fólki. Að öllu jöfnu er fólk að standa sig gríðarlega vel og fæstir gera sér grein fyrir álaginu sem fylgir starfinu nema þeir hafi verið í sömu sporum. Ef ein manneskja er frá þá eru hinir að taka á sig aukavinnu,“ útskýr- ir Íris og telur auk þess að ákveðinn vandi sé fólginn í skipulagi. „Samkvæmt skipulagi eru fjögur börn undir tveggja ára á mann. Í samfélaginu hefur verið töluverð um- ræða um þörfina á að opna ungbarnaleikskóla og er ég ekki viss um að þeir sem setja upp skipuritið átti sig á því að það er mjög erf- itt fyrir eina manneskju að hugsa um fjögur ungabörn þar sem þau þurfa mikla umönnun og einstaklings- miðaða,“ segir Íris. Hún bætir við að mun hentugra væri að hafa þrjú börn á mann og að prósentuhlutfall afleysingar þyrfti að vera helmingi meira til að auka sveigjanleika í leikskóla- starfinu. Prósentan er nú fengin með útreikningum í tengslum við fermetra- fjölda, stöðugildi starfs- manna og fjölda barna. „Um leið og fjöldi barna er orðinn of mikill samanborið við fjölda starfsmanna þá er það ólöglegt og við neyðumst til að loka deildum,“ segir Íris og bætir við að reynslan hafi sýnt að óraunhæft sé að ganga út frá því að allir starfsmenn séu alltaf, þannig er einfaldlega leik- skólalífið. „Til gamans má geta þess að í útreikning- um er talað um þrjá fer- metra á barn en svín í stíu hafa sex fermetra!“ segir Íris glettin. Íris segist þó hafa verið afar heppin með starfsfólk: „Mér finnst áhugi vera fyrir starfinu sem þykir almennt heillandi. En þegar starfs- menn vantar þá verður starfið erfiðara þar sem þú dreifir ekki athyglinni svo glatt hjá ómálga börnum,“ útskýrir Íris sem vantar nú einn starfsmann en segir að fyrir mánuði síðan hafi verið fullmannað. Um þessar mundir standa foreldrar fyrir undirskriftar- listum sem senda á til formanns Leikskólaráðs Reykjavíkurborgar. Þar vekja foreldrar athygli á því ástandi sem skapast vegna manneklu og fara fram á að í leikskólastarfi sé þjálfað fólk og að virðing sé aukin fyrir starfinu með bættum launum. Íris segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi frá foreldrum. „Foreldrar gera sér almennt grein fyrir að þetta er ekki okkar vilji og að við viljum halda uppi skipulögðu og metnaðarfullu starfi. Þeir átta sig alveg á hvar hundurinn liggur grafinn,“ segir Íris sem telur að auka þurfi skilning gagnvart leik- skólastarfinu í skipulagi og að útbúa þurfi sveigjanlegri viðmið til að halda uppi stöðugu leikskólastarfi og halda góðu fólki. Hún ítrekar þó að Félagsstofnun stúd- enta sé með mjög góða fjöl- skyldustefnu en vandinn sé frekar hjá Leikskólaráði. Mannekla og metnaður TÆKNILEGUR SÉRFRÆÐINGUR Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • Bréfasími 510 1101 postur@neytendastofa.is • www.neytendastofa.is Neytendastofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan tækni- menntaðan mann til starfa á Öryggissviði stofnunarinnar. Um er að ræða faglega krefjandi starf þar sem reynir á tæknilega ráðgjöf um reglur er varða rafmagnsöryggismál, framkvæmd eftirlits með rafverktökum og neysluveitum, fræðslu og kynningu á reglum er gilda um öryggi fagfólks og neytenda. Um er að ræða margvísleg áhugaverð verk- efni er varða löggjöf á sviði rafmagnsöryggis og eftirlit með framkvæmd þeirra. Helstu verkefni: • Tæknileg ráðgjöf og fræðsla um reglur er varða öryggis- stjórnun rafverktaka og neysluveitna, túlkun og fram- kvæmd reglna er gilda um rafmagnsöryggismál • Skipulagning og framkvæmd lögbundins eftirlits með rafverktökum og öryggi neysluveitna, þ.m.t. veitingu starfsréttinda og samskipti við skoðunarstofur • Þátttaka í rannsóknum á brunum af völdum rafmagns • Þátttaka í mótun og viðhaldi á gæðastjórnunar- og öryggiskerfum í samræmi við reglur á rafmagns- öryggissviði og annarra almennra krafna í starfsumhverfi Neytendastofu. • Þátttaka í samstarfi í þróun eftirlits, svo og laga og reglna sem gilda um öryggisstjórnun rafverktaka, öryggi neysluveitna og önnur öryggismál á starfssviði Öryggissviðs o.fl. Menntun: • Rafmagnsverkfræði, rafmagnstæknifræði eða rafmagnsiðnfræði (sterkstraumssvið) • Reynsla af störfum sem lúta að hönnun og/eða uppsetningu lágspennuvirkja æskileg Almenn þekking og hæfniskröfur: • Góð almenn þekking á tölvum og skrifstofuhugbúnaði • Góð íslensku- og enskukunnátta og færni í einu Norðurlandamáli • Almenn þekking á íslensku stjórnkerfi og regluumhverfi • Skipulags- og samskiptahæfni • Frumkvæði Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Vakin er athygli á 20. gr. laga nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Umsóknir óskast sendar Neytendastofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík, eða rafrænt á póstfang stofnunarinnar, postur@neytendastofa.is, eigi síðar en 12. nóvember 2007. Umsóknir geta gilt í sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfið veita Tryggvi Axelsson for- stjóri og Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri Öryggissviðs, í síma 510 1100. Netföng: tryggvi@neytendastofa.is og johann@neytendastofa.is. Öryggissvið Neytendastofu hefur umsjón með rafmagns- öryggismálum á Íslandi, skoðunum á neysluveitum, öryggis- stjórnunarkerfum rafveitna og rafverktaka. Öryggissvið annast markaðseftirlit með rafföngum, almennum vörum og annast skipulagningu þess í samstarfi við önnur stjórnvöld. Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.