Fréttablaðið - 28.10.2007, Side 76

Fréttablaðið - 28.10.2007, Side 76
Fyrir helgina fékk ég nokkur sérstök sím- töl á stuttum tíma. Dagurinn byrjaði á því að ég var vakin eldsnemma af vini mínum. Það sem beðið hafði verið eftir í níu mánuði var loksins að verða að veruleika. Tólf tímum eftir fyrri hringinguna kom svo sú seinni, frá stoltu foreldri lítils drengs. Stuttu síðar hringdi svo vinkona sem var að koma úr verslunarferð í Ikea. Það vantaði nefnilega svo hillur og kommóðu inn í nýju íbúðina henn- ar, eða þeirra réttara sagt. Eftir þessi símtöl leið mér eins og ég væri að verða gömul – án þess að hafa nokkurn tíma verið spurð leyfis. Þetta var alls ekki í fyrsta skipti sem ég fæ þessa til- finningu. Hún kemur yfir mig með reglulegu millibili, yfirleitt við einhverjar svona fréttir eða þegar ég rekst á gamla skólafélaga sem eru giftir, eiga börn, íbúðir, bíla og alls kyns skuldir. Það er alltaf að sannast aftur og aftur að tíminn líður hratt. Hann líður og svo rennur það allt í einu upp fyrir manni að maður er full- orðinn. Fyrsta skiptið sem ég gerði mér almennilega grein fyrir þessu var þegar vinirnir voru farnir að opna afmælisgjafir og fá straujárn – og segja að þá hafi einmitt vant- að svoleiðis! Annað skiptið var þegar allir voru komnir í háalvar- legt nám og svo farnir að vinna hjá bönkum, sem kennarar, hjá flugfé- lögum og fjölmiðlum. Mér finnst svo stutt síðan straujárnið hefði í besta falli verið gefið í gríni og fólk hafði sumarvinnu – í garð- yrkju, barnapössun eða sjoppu. En að lokum kom síðasta símtal- ið og bjargaði mér. Það var vin- kona sem býr í Abu Dhabi. Hún var nokkuð ölvuð og í partíi með fólki frá öllum heimshornum. Hún sagðist aldrei ætla að koma heim, lífið væri bara of skemmtilegt svona. Ég rankaði við mér og mundi að ég er ekkert sú eina sem er ekki á hraðri leið í barneignir og annað hrikalega fullorðins. Jú, ég er kannski orðin fullorðin, en það að vera gamall er bara hugarástand.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.