Fréttablaðið - 28.10.2007, Síða 81
Í DAG KL. 13:10
BOLTON – ASTON VILLA
Í DAG KL. 15:40
LIVERPOOL – ARSENAL
FÁÐU ÞÉR HD MYNDLYKIL Í VERSLUNUM
VODAFONE OG NJÓTTU ÚTSENDINGA
DIGITAL ÍSLANDS Á SÝN 2 Í HÁSKERPU
Liverpool og Arsenal
mætast í stórleik á Anfield Road í
ensku úrvalsdeildinni í dag. Bæði
liðin eru enn sem komið er taplaus
eftir níu leiki deildinni.
Liðin áttu reyndar ólíku gengi
að fagna í leikjum sínum í Meist-
aradeild Evrópu í vikunni, þar
sem Arsenal slátraði Slavia Prag,
7-0, og situr á toppi H-riðils, en
Liverpool tapaði óvænt 2-1 gegn
Besiktas og er í fremur slæmum
málum á botni A-riðils.
Rafa Benitez, stjóri Liverpool,
var þó ekki smeykur á blaða-
mannafundi í gær þegar hann var
spurður hvort hans menn yrðu
tilbúnir í slaginn gegn Arsenal.
„Ef maður tapar leik og er að
fara að mæta toppliði í deildinni
er einhverra hluta vegna oft
auðveldara að fá leikmenn sína til
þess að einbeita sér og vera tilbúna
í verkefnið,“ sagði Benitez.
Liverpool er fyrsti topp fjögur
klúbburinn sem Arsenal mætir á
tímabilinu og Arsene Wenger,
stjóri liðsins, býst við hörkuleik.
„Þetta verður erfiður leikur
fyrir okkur. Fyrir tímabilið var
mikið talað um að við værum með
of ungt lið og myndum ekki ná
langt, en nú er aftur á móti talað
um að við eigum enn eftir að sanna
okkur gegn stóru liðunum í deild-
inni. Sama hvað menn segja þá tel
ég að við búum núna yfir sjálfsör-
ygginu og kraftinum sem þarf og
við erum tilbúnir í leikinn,“ sagði
Wenger.
Leikurinn byrjar kl. 16 og er
sýndur beint á Sýn 2.
Einu taplausu lið deildarinnar mætast
Birgir Leifur Hafþórsson
komst ekki í gegnum niður-
skurðinn á opna Mallorca-mótinu
í gær. Birgir Leifur hóf keppni að
nýju í gær á 11. braut, þar sem
hann hafði þurft að hætta keppni
í fyrradag vegna myrkurs. Birgir
Leifur kom í hús í gær á 74
höggum eða 10 höggum yfir pari í
106. sæti mótsins og samanlagt á
150 höggum að loknum tveimur
hringjum.
Hollendingurinn Robert Jan-
Derksen og Frakkinn Jean-
Francois Lucquin höfðu forystu í
mótinu í gær á samtals níu
höggum undir pari.
Langt frá sínu
besta á Spáni
Nágrannaliðin
Njarðvík og Keflavík mætast í
toppslag Iceland Express deildar
karla í körfubolta í Njarðvík í
kvöld. Fyrir leikinn eru bæði liðin
taplaus og jöfn á toppi
deildarinnar eftir þrjá leiki, en
fyrir mótið var þeim spáð fjórða
og fimmta sæti af forráða-
mönnum, þjálfurum og fyrirliðum
deildarinnar. Keflavík hefur
þegar unnið Snæfell og Grinda-
vík, sem var spáð öðru og þriðja
sæti deildarinnar og Njarðvík
hefur einnig unnið Snæfell.
Það er mál manna að deildin í
ár sé jafnari nú en síðustu ár,
bæði á toppi og botni, þar sem
allir virðast geta unnið alla og
dagsformið eða hugarfarið og
hungrið til sigurs skiptir miklu
máli.
Leikur Njarðvíkur og
Keflavíkur hefst kl. 19.15 í kvöld í
Ljónagryfjunni í Njarðvík.
Erkifjendur
mætast í kvöld
Fram og Valur mætast
í toppslag N1-deildar kvenna í
handbolta í dag. Liðin eru bæði
taplaus fyrir leikinn með 10 stig í
öðru og þriðja sæti deildarinnar,
en Valur er aðeins búinn að leika
fimm leiki og á því einn leik inni
á Fram. Valur hefur unnið alla
fimm leiki sína til þessa í
deildinni, en Fram hefur unnið
fjóra leiki og gert tvö jafntefli,
þar á meðal við Íslandsmeistara
Stjörnunnar sem eru sem stendur
á toppi deildarinnar.
Leikurinn fer fram í dag kl. 16 í
Framhúsinu og sjálfsagt að
hvetja fólk til að mæta á völlinn.
Toppslagur í
Framhúsinu