Fréttablaðið - 28.10.2007, Síða 86

Fréttablaðið - 28.10.2007, Síða 86
Sykurlausir myntudropar af gerðinni Frisk, hvítur sykur, hunang og rakatæki er meðal þess sem ítalski stórsöngvarinn Andrea Bocelli hefur óskað eftir því að hafa baksviðs fyrir tónleika sína í Egilshöll 31. október. Að sögn tónleikahaldarans Karls Lúðvíkssonar eru óskir Bocelli afar hógværar og ekkert í líkingu við það sem hann hefur áður kynnst. „Þetta er eiginlega ótrúlegt. Ég hef séð „rydera“ frá mörgum öðrum listamönnum um sérstök handklæði og eitthvað slíkt en hann er ekki með neinar stjörnustælakröfur,“ segir Karl. Bocelli, sem telst vera frægasti tenórinn í dag sem kemur reglulega fram, kemur hingað til lands á einkaþotu sinni um hádegið og flýgur síðan af landi brott á miðnætti eftir tónleikana. Auk 110 manna fylgdarliðs, m.a. frá tékknesku sinfóníunni, verða með honum í för tíu og tólf ára synir hans. Ætlar ellefu ára sonur Karls að sýna þeim Reykjavík á meðan á dvöl þeirra stendur. „Bocelli fannst það frábær hugmynd að taka þá að sér. Þeir fá einkabílstjóra og lífvörð og ætla að fara í keilu og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Karl. Sjálfur ætlar hinn blindi Bocelli að taka því rólega og leggur hann mikið upp úr því að hvíla rödd sína eins mikið og kostur er fram að tónleikum. Bocelli öðlaðist heimfrægð fyrir rúmum áratug fyrir enska útgáfu sína á laginu Con te partirò sem margir ættu að þekkja sem Time to Say Goodbye. Hann er margverðlaunaður tenór og einn söluhæsti tónlistarmaður heims síðustu ár. Tónleikarnir verða sitjandi og hefur miðasala gengið mjög vel. Hafa þegar selst um fimm þúsund miðar. Bocelli vill myntudropa og rakatæki Rithöfundurinn Yrsa Sigurðar- dóttir er nýkomin frá Alaska þar sem glæpasagnahöfundar alls staðar að úr heiminum komu saman í þeim tilgangi að hlýða á fyrirlestra um glæpatækni. „Þarna voru til að mynda fyrirlestrar um lík. Þetta var mjög gaman,“ segir Yrsa og hlær en þetta er í fyrsta skipti sem hún sækir slíka ráð- stefnu. Fyrirlesarar voru „CSI“ fólk frá Alaska, lögreglumenn og dómarar. „Það var minnst á dóm- urunum að græða enda er dóms- kerfið hér heima mjög frábrugðið því bandaríska,“ segir Yrsa. „En það var gaman að hlusta á fólkið frá Alaska enda eru þeirra aðstæð- ur ekki ólíkar okkar hvað varðar lík í snjó og þess háttar.“ Yrsa seg- ist ekki hafa náð að skoða sig mikið um enda var hún bara í þrjá daga. „Ég mætti, horfði á fyrir- lestur um lík og fór svo til baka. Ekki beint það sem maður ætti að gera í Alaska. En það er ofsalega fallegt þarna.“ Bók Yrsu, Þriðja táknið, kom út vestanhafs í byrjun mánaðarins og hefur hlotið góða dóma. Harri- et Klausner gaf bókinni fimm stjörnur en Time hefur sagt hana vera einn áhrifamesta gagnrýn- anda heims. „Ég vissi ekki hver Klausner var áður en ég frétti af þessum dómum en þetta er auðvit- að alveg frábært. Forlagið mitt úti sendir mér dómana sem ég fæ og þeir eru undantekningalaust frá- bærir. Kannski halda þeir bara slæmu dómunum frá,“ segir hún og hlær. Hún segist ekki vita hvernig bókin selst í Bandaríkjun- um. „Ég er mikið spurð af því af vinum og kunningjum. Reyndar er ég búin að ljúga því að einum að ég fái tölvupóst í hvert skipti sem ég sel eintak.“ Um miðjan næsta mánuð kemur út ný bók eftir Yrsu hér á landi. „Þetta er glæpasaga sem heitir Aska. Hún fjallar um lík sem finn- ast við uppgröft húsa sem grófust undir í gosinu í Vestmannaeyjum, Pompei norðursins. Auk þess er manneskja í nútímanum drepin sem bjó yfir upplýsingum sem leyst gætu málið.“ Fór á fyrirlestur um lík í Alaska Fæddist á hlaupársdegi „Þetta á í raun mjög vel við Þórberg því það hefur enginn íslenskur höfundur lagt jafn mikla áherslu á sína þróun hvað varðar þroska og andlegu hliðina,“ segir Pétur Gunnarsson, rithöfundur, en fyrir þessi jól kemur út bókin Þroskasaga Þórbergs sem hann skrifar. Pétur segir þetta vera þau fjörutíu og fimm ár í lífi Þórbergs sem kalla mætti „undirbúnings- tímabilið“ fyrir rithöfundar- ferilinn. Pétur lagðist í mikinn lestur fyrir bókina og las meðal annars dagbækur skáldsins sem eru í kringum hundrað talsins og eru geymdar á Þjóðarbókhlöðinni en Þórbergur hélt dagbók í tæp sextíu og fimm ár. Pétur segir það hafa komið sér mest á óvart hversu félagslynd- ur Þórbergur var og hvað höfuð- borgin Reykjavík hafi verið skemmtileg á þessum tíma þegar Þórbergur gekk um göturnar. „Þetta er fyrir daga einstakl- ingssímans, bílsins og allra þeirra nútímaþæginda sem við þekkjum í dag. Á þessum tíma var fólk bara mikið á röltinu og ólíkt því sem við þekkjum núna, þar sem óvæntar heimsóknir eru hálfgerð innrás á heimilið, þá þótti slíkt ekkert tiltökumál og bara hinn sjálfsagðasti hlutur,“ bætir Pétur við. Þórbergur var hálfgerður dellukarl. Ólíkt nútímamanninum sem bítur í sig eitthvað áhugamál en missir síðan áhugann á einum mánuði eða kannski ári sökkti skáldið sér ofan í sín hugðarefni svo árum skipti og lét allt annað til hliðar. Fyrst Einar Ben., síðan íslenska, svo guðspeki, sósíalismi, esperantó og loks rithöfundar- ferillinn. „Hann sleppir ekki hendinni af neinu heldur hefur áhugamálin með sér í ferða- töskunni. En hann tæmdi þau algjörlega og þannig samdi hann meðal annars kennslubækur, áróðursbækur og orðabók fyrir esperantó,“ segir Pétur. Í hugum margra voru þeir Halldór Laxness og Þórbergur tveir risar í menningarlífi lands- manna á fyrstu áratugum síð- ustu aldar. Pétur segir að Lax- ness komi töluvert við sögu í dagbókunum og í fyrstu hafi verið mikil og djúpstæð vinátta þeirra á milli. Reyndar segir rit- höfundurinn að samband þeirra tveggja sé hreinlega efni í annað bindi. „Þeir voru svona eins og veð- hlaupahestar, að berjast um hylli sama lesendahópsins. Í fyrstu var Halldór hálfgerður læri- sveinn Þórbergs og Bréf til Láru hafði mikil áhrif á hann. En þegar bækur á borð við Sölku Völku komu út var Þórbergur í hlutlausum gír og „nemandinn“ tók fram úr „meistaranum“ og við það verður til mikil tog- streita sem setur mark sitt á þá.“ „Ég er mjög glöð yfir þessari velgengni og mjög stolt af hon- um, það held ég nú. Ég hefði nú ekki trúað þessu fyrst, en svona þróast málin.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.