Fréttablaðið - 29.10.2007, Side 1
Að leika á hljóðfæri getur veitt ýmiss konar
ánægju og verið streitulosandi í senn. Þórir
Andri Karlsson heldur mikið upp á gítarinn sinn
sem hann telur einn af eig lh i
að spila og syngja ljóð sem þau eiga að læra í
íslensku,“ útskýrir Þórir.Aðspurður um að
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Mex - byggingavörurSími 567 1300 og 848 3215www.byggingavorur.comKoma fallegustu stigarnir frá Mex ?
Allar mögulegar gerðir eftir óskumhvers og eins - Sjá heimasíðu okkarMælum, teiknum og setjum upp
STIGAR fasteignir29. OKTÓBER 2007
Hjá Remax Þing eru til sölunýjar og glæsilegar þriggja herbergja íbúðir við Laugaveg.
Í búðirnar sem um ræðir eru frá 86,6 til 100,8 fermetrar að stærð og eru á annarri, þriðjuog fjórðu hæð í sex íbúða húsi.Þeim er skilað fullbúnum með gólfefnum og innréttingum ogekkert hefur verið til sparað viðefni og hönnun. Eldhúsinnrétting-ar eru sprautulakkaðar í ljósumlit, háglans með inngreyptumhöldum og á öllum skúffubrautumog hurðum eru demparar. Borð-plötur eru úr granít í dökkum lit.Tæki eru frá Eirvík og þess mágeta að Mile-uppþvottavélar eru innbyggðar í innréttingarnar.Snyrtingar eru flísalagðar í hólf og gólf og hornbaðkar með nuddifylgir íbúðum á 2. og 3. hæð ensturta með sturtuklefa íbúðum á 4. hæð.
Mikil lofthæð er í íbúðun-um og allar hurðir sérsmíðað-ar í yfirstærð. Þær eru úr ljósrieik og skápar líka. Hurðir út úr íbúðunum eru sérhannaðar meðþað í huga að veita mikla hljóð-vörn. Gólf eru með eikarparketisem lagt á
Nýbyggðar íbúðir í hjarta borgarinnar
Stofurnar eru bjartarog rúmgóðar.
Öll tæki í nýju íbúð-unum eru vönduð.
HRINGDU NÚNA699 6165
Bóas
Sölufulltrúi
699 6165
boas@remax.is
Gunnar
Sölufulltrúi
899 0800
go@remax.is
Áslaug María
Sölufulltrúi
8200 301
aslaug@remax.is
Stella Ósk
Sölufulltrúi
693 4669
stellaosk@remax.is
Benedikt
Sölufulltrúi
661 7788
benolafs@remax.is
Stefán Páll JónssonLöggiltur fasteignasali
Edda HrafnhildurSölufulltrúi
896 6694
edda@remax.is
Hilmar
Sölufulltrúi
892 2982
hilmarosk@remax.is
Eir
Sölufulltrúi
660 6085
eir@remax.is
Þjónusta ofar öllu
Fólk getur gleymt hvað þú segir, fólk getur gleymt hvað þú gerir... En fólk gleymir því aldrei hvernig þú lætur þeim líða...
Við látum þér líða vel... !
Seldu þar sem þér líður vel...
Margir hringja á
skrifstofu forseta og óska eftir
viðtali við hann. Að sögn Örnólfs
Thorssonar forsetaritara ber fólk
oft upp persónu-
leg málefni við
forsetann. „Fólk
vill þá láta í ljós
skoðanir sínar,
bera upp álitaefni
eða óska liðsinnis
um alls konar
málefni.“
Ólafur Ragnar
Grímsson er ekki
með fasta
viðtalstíma en tekur daga undir
viðtöl með reglulegu millibili,
segir Örnólfur.
Fólk getur þurft að bíða í allt að
mánuð eftir að fá viðtal við
ráðherra. Allir ráðherrarnir, utan
þriggja, eru með fasta viðtals-
tíma.
Margir með
persónuleg mál-
efni til Ólafs
Til greina kemur að ræða launa-
greiðslur í evrum í komandi kjarasamningum, segir
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, sagði í blaðinu í
gær að evrulaun yrðu ef til vill rædd í viðræðunum.
„Þetta hefur ekki verið rætt formlega en við
höfum hugsað um þetta. Málið snýst aðallega um
áhættuna; það getur verið betri áhættudreifing fyrir
starfsmenn og fyrirtæki ef laun eru greidd í evrum
eða öðrum gjaldmiðli. Það eru auðvitað mörg
fyrirtæki með tekjur sínar að mestu í erlendri
mynt,“ segir Vilhjálmur Egilsson.
Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild
Háskólans í Reykjavík, segir þessi ummæli til
marks um að evran komi inn í íslenskt hagkerfi
smátt og smátt og án pólitískrar ákvörðunar. Evran
taki sig upp sjálf.
„Evran kæmi þá hingað fyrir tilverknað fjölda
aðila þar sem hver leitast við að taka ákvarðanir út
frá eigin hagsmunum. Og þarna eru komnir forystu-
menn launafólks og atvinnurekenda sem telja að það
geti þjónað hagsmunum beggja að semja um kaup
og kjör í erlendri mynt.“
Ólafur segir að nú stefni í tvöfalt hagkerfi: „Þeir
sem eru í krónunni og okurvöxtunum og svo hinir.“
Ákjósanlegra væri að stjórnvöld tækju um þetta
yfirvegaða ákvörðun með formlegum hætti, því
annars sé gengisáhættan skilin eftir hjá þeim sem
ekki komast hjá henni.
Evrulaun geta leitt
til tvöfalds hagkerfis
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins útilokar ekki að evrulaun verði
rædd í komandi kjarasamningum. Stefnir í tvöfalt hagkerfi, segir lektor.
Gítarinn eigulegasti
hluturinn á heimilinu
Nýbyggðar íbúðir í
hjarta borgarinnar
Fékk áritaða treyju
frá landsliðinu
„Við finnum að það
er aukinn áhugi á eyjunni, það er
ekki spurning,“ segir Einar Stein-
þórsson, sem ferjar fólk út í Viðey
í gegnum Viðeyjarferðir.
Listakonan Yoko Ono afhjúpaði
friðarsúlu við athöfn í eynni 9.
október á afmælisdegi eiginmanns
hennar Johns heitins Lennon.
Einar segir að síðan hafi tals-
verður hópur erlendra ferða-
manna farið út í eyjuna. „Auðvitað
var þetta gert í lok ferðamanna-
tímabilsins, en það er ekki vafi á
því að það verður meira að gera
næsta sumar. Þessi súla er viðbót
við það sem við höfum upp á að
bjóða.“
Auk þess að fara almennar
ferðir býður Einar upp á sérferðir
út að ljósasúlunni klukkan 20 á
hverju kvöldi. Þær ferðir verða
farnar fram að 8. desember þegar
slökkt verður á súlunni.
Björn Ingi Hrafns-
son, formaður borgarráðs, telur
ljóst að byggðaþróun í og við
Örfirisey verði slík að það muni
kalla á umræðu um færslu
olíubirgðastöðvarinnar burt frá
svæðinu.
„En það þarf að finna þá valkost
sem er annaðhvort jafngóður eða
betri,“ segir hann.
Verkefnisstjórn sem skoðað
hefur mögulegan flutning
olíubirgðastöðvarinnar hefur
komist að því að henni væri best
komið áfram í Örfirisey, miðað
við óbreytt skipulag. Stjórnin
hefur raðað mögulegum stað-
setningum í röð, og koma
Brimnes, Keilisnes og Álfsnes
næst Örfirisey sem æskilegar
staðsetningar.
Óhjákvæmilegt
að ræða færslu
olíubirgðanna