Fréttablaðið - 29.10.2007, Page 17
Að leika á hljóðfæri getur veitt ýmiss konar
ánægju og verið streitulosandi í senn. Þórir
Andri Karlsson heldur mikið upp á gítarinn sinn
sem hann telur einn af eigulegustu hlutunum á
heimili sínu.
„Það er svo gott að glamra aðeins á hann og raula
með eftir strembinn vinnudag. Það hreinsar og róar
hugann. Svo er alltaf gaman að grípa í hann í partí-
um.“ segir Þórir sem notar gítarinn nokkuð mikið í
vinnunni en hann er kennari í Austurbæjarskóla.
„Það er gott að grípa í gítarinn í tungumálakennslu.
Krakkarnir hafa gaman af að syngja lög á ensku og
eru þá í leiðinni að þjálfa framburð. Svo hjálpar mikið
að spila og syngja ljóð sem þau eiga að læra í
íslensku,“ útskýrir Þórir.
Aðspurður um aðra hluti sem eru í uppáhaldi segist
Þórir sjaldan mynda einhver tilfinningatengsl við
hluti. „Ég met hluti mest eftir því hvort þeir geri það
sem þeir eigi að gera. Ég ber mikla hlýju til hluta sem
eru haganlega gerðir og endast en það er nokkuð sem
er sjaldgæft að finna þessa dagana. Hlutir nú til dags
eru oftar en ekki drasl sem endist illa,“ segir hann
kíminn.
Þórir á þó nokkra hluti sem hann hefur keypt á
ferðalögum sem honum þykir vænt um og hafa fylgt
honum nokkuð lengi. „Þar má nefna rússneska her-
húfu sem ég keypti þegar ég var á ferðalagi um Rúss-
land. Hún hentar einkar vel við íslenskar aðstæður,“
segir hann og brosir út í annað.
Hreinsar og róar hugann
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Mex - byggingavörur
Sími 567 1300 og 848 3215
www.byggingavorur.com
Koma fallegustu stigarnir frá Mex ?
Allar mögulegar gerðir eftir óskum
hvers og eins - Sjá heimasíðu okkar
Mælum, teiknum og setjum upp
STIGAR
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið