Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.10.2007, Qupperneq 34

Fréttablaðið - 29.10.2007, Qupperneq 34
Þetta eru lokin á syrpu pistla um orkumál á líðandi stund. Hér verður rætt um umdeilda þætti: eignarhald á orkufyrirtækj- um og auðlindum. Lengi hefur verið deilt um það hvort auðlindir í og á jörðu skuli vera í almannaeigu eða einkaeigu. Á vissan hátt var tekið af skarið með tveimur lagasetningum á seinustu árum. Annars vegar var lögfest að jarðeigendur skyldu eiga öll réttindi til orkunýtingar á og undir sínum landareignum, en með gömlum vatnalögum var búið að segja það sama um orku vatns- falla. Á hinn bóginn var tekið á því með þjóðlendulögunum að auð- lindir utan jarða og eignarlanda skyldu vera í eigu íslenska ríkis- ins. Þá ber að hafa í huga að ríki og sveitarfélög eiga líka talsverðar landareignir og þar með auðlindir þeirra. Ekki hefur verið kortlagt hve mikið af orkulindunum er saman- lagt í opinberri eigu og hve mikið í einkaeigu, en ætla má að talsverður meirihluti sé í eigu hins opinbera með einum eða öðrum hætti. Nú hafa ráðherrar kynnt þá stefnu að ekki verði gengið á eign hins opin- bera á orkulindum og að þær verði ekki seldar, enda þótt ekki sé ætl- unin að hrófla við núverandi einka- eigu í þessum efnum. Hliðstæð umræða er í gangi í Noregi, þar sem hið opinbera hefur í reynd umráð yfir megninu af hinum gífurlegu orkulindum Norðmanna. Vegna tiltekins dóms EFTA-dóm- stólsins varðandi hluta af vatns- réttindunum hefur norska ríkis- stjórnin áréttað þann vilja sinn að kvika ekki frá opinberri forsjá á vatnsorkunni. Enda þótt auðlindir kunni að vera í opinberri eigu eða umsjón er ekki þar með sagt að nýting auð- lindanna eigi að vera hlutverk hins opinbera. Þannig eru „nytja- stofnar á Íslandsmiðum ... sam- eign íslensku þjóðarinnar“ eins og segir í lögum enda þótt nýtingin sé framseld til eigenda fiskiskipa. Með sama hætti er það aðskilin ákvörðun hver stefnan á að vera varðandi eign- arhald á orkulindum og hverjum á að vera heim- ilt að nýta þær, hvort það séu jöfn- um höndum opinberir aðil- ar og einkaað- ilar, jafnt inn- lendir sem erlendir. Í hinni pólitísku umræðu vill þó brenna við að hér sé allt lagt að jöfnu, auðlindaforsjáin og nýtingin, eftir því sem hentar málflutningum. Mikilvægasta úrlausnarefnið í þessum málum er hvernig háttað er aðgengi að þeim auðlindum sem stjórnvöld kunna að hafa til ráðstöfunar, hvernig gert er upp á milli þeirra sem nýta vilja sama auðlindakostinn og hvað og hvernig greitt er fyrir nýtinguna. Í upphafi síðustu aldar settu Norð- menn undir þann leka að vatns- orkuréttindi voru að færast í hendur útlendinga. Það gerðu þeir með þeim hætti að lögbjóða að skila yrði réttindunum og orkuver- unum „heim“ til Noregs að sextíu árum liðnum. Fyrirkomulagið á þessari „heimkvaðningu“ (hjem- fall á norsku) varð tilefni fyrr- greinds EFTA-dóms. Hérlendis gengu menn enn lengra og voru settar lagaskorður við áformum Einars Benediktssonar um að fá erlent fjármagn til virkjana og stóriðju. Enn eru færð rök gegn erlendri aðild að orkugeiranum. Með aðild okkar að EES er fyrirmunað að gera upp á milli okkar og annarra EES-búa í þeim efnum. Enda þótt lög setji aðilum utan EES vissar tálmanir er auðvelt að komast framhjá þeim. Því er hæpið að hægt væri að setja skorður við aðild erlendra einkaaðila að orku- geiranum þótt menn kynnu að vilja það. Spyrja má hvort fælni við útlendinga er ekki birtingar- mynd annarra áhyggjuefna, svo sem þeirra að einkaaðilar megi ekki eignast auðlindir í almanna- eigu, að sérleyfisstarfsemi eigi að vera í opinberum rekstri eða hvort einkaeignarfyrirkomulag eigi að vera þar jafnrétthátt? Í margra augum skiptir máli hvort auðlindir eru í almannaeigu eða ekki. En er reginmunur á því hvort sá sem kann að eiga hlut í auðlindunum heitir Jón Sigurðs- son eða John Smith? Kannski búa báðir í London! Snýst ekki deilan fremur um hlut hins opinbera annars vegar og einkaaðila hins vegar en hvert ríkisfang manna er? Höfundur er orkumálastjóri. Orðræða um orkumál (3)

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.