Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Tónlist beint í símann
Þú getur eignast nýjustu lögin með einum
vinsælasta tónlistarmanni landsins, Páli Óskari.
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Tónlistarklúbburinn
• Hátt í 1.000.000 íslensk og erlend lög!
• Íslensk tónlist innifalin (almennt verð 149 kr.)
• Kauptu erlenda tónlist á einfaldan og löglegan hátt í fyrsta
sinn á Íslandi – 99 kr. lagið (almennt verð 149 kr.)
• 3ja mánaða áskrift að tónlistarklúbbnum fylgir útvöldum
tónlistarsímum (mánaðaráskrift kostar 990 kr.)
Sony Ericsson V640i
Lipur og nettur Walkman tónlistarspilari. 3G, EDGE, 256 Mb
minniskort. Fer á netið með Vodafone live! Fæst í "Havana Gold"
og svörtu. Fæst eingöngu hjá Vodafone.
19.900 kr.
Skráðu þig í tónlistarklúbbinn og fáðu ótakmarkaðan aðgang að íslenskri tónlist.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
4
2
1
5
11.22 13.29 15.35
11.38 13.13 14.49
Í dag er fimmtudagurinn 27.
desember, 361. dagur ársins.
Kæri Jóli. Takk fyrir aldeilis frábær jól! Þú hefur aldrei
verið jafn duglegur að koma með
dót. Jólasnjórinn birtist alveg á
passlegum tíma og það var eigin-
lega ekkert sem skyggði á jóla-
gleðina nema kannski fréttin af
verkamönnunum hjá Jarðvélum
sem fengu ekki kaupið sitt. Ég
trúi samt ekki öðru en það mál
hafi fengið farsælan endi, til
dæmis þann að jólaandinn hafi
gripið verktakann og hann gengið
frá sínum málum.
ÞETTA var voða klassískt hjá
okkur fjölskyldunni. Eftir ofgnótt
matar tók við svakalegt pakk-
a maraþon. Fjögurra ára sonur
minn var upptjúnaður yfir þessu
og búinn að sniglast í kringum
tréð allan daginn. Loks þegar
hann fékk grænt ljós reif hann og
tætti pappírinn af pökkunum og
kallaði jafnóðum: Hvað á ég
meira? Þegar risastór dótahrúga
var komin á gólfið tók við minn
hlutur: að ná dótinu úr kössunum.
Ég verð nú að skamma þig og
bræður þína fyrir að pakka þessu
svona svakalega vel inn. Hvert
leikfangasnitti er reyrt niður í
hnausþykka pappakassa með
vírum og skrúfum og fyrir jafn
klaufskan karl og mig getur verið
verulegt vesen að frelsa dótið.
Þegar það tókst loks tók annar
hausverkur við; að koma dótinu
heim og saman því í undantekn-
ingatilfellum kemur dót tilbúið úr
kössunum. Playmo og Lego eru
hátíð miðað við Transformers-
karlana, sem verulegt verksvit
þarf til að setja saman og breyta
úr karli í bíl. Þar sem ég sat ráð-
þrota haldandi á ósamstæðum
bitum og sonurinn suðandi, hugs-
aði ég: Er þessi ofgnótt kannski
ekki alveg hinn rétti andi
jólanna?
ÉG hélt áfram að hugsa þetta
þegar ég veltist um í rúminu með
hausverk og vélindabakflæði út
af öllu reykta kjötinu og maltinu
og appelsíninu. Ætti ég kannski
að stinga upp á einhverju róttæku
fyrir næstu jól, til dæmis að fara
að dæmi Jóns Ásgeirs og Ingi-
bjargar og þiggja engar gjafir
heldur láta fólk leggja inn á góð-
gerðareikning. Fjölskyldan gæti
svo verið í uppvaskinu hjá Hjálp-
ræðishernum.
KÆRI Jóli. Auðvitað var ég búinn
að gleyma þessari vitleysu dag-
inn eftir þegar ég vaknaði laus
við hausverkinn og drengurinn
farinn að leika sér við samsett
dótið sitt. Alveg er ég svo viss um
að þú búir til ennþá, ennþá meira
dót fyrir næstu jól.
Bréf til Jóla