Fréttablaðið - 27.12.2007, Side 48

Fréttablaðið - 27.12.2007, Side 48
40 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is SKYNDI HJÁLPAR MAÐUR ÁRSINS 2007 - - F í t o n / S Í A F I 0 1 5 9 6 0 Ábendingar skulu berast Rauða krossi Íslands fyrir 15. janúar. Viðurkenningar verða veittar þann 11. febrúar. Nánari upplýsingar um tilnefningar og hvernig staðið er að valinu má finna á www.redcross.is Rauði kross Íslands auglýsir eftir ábendingum um einstakling sem hefur á árinu 2007 bjargað mannslífi með réttum viðbrögðum í skyndihjálp. N1, sem er samstarfsaðili Rauða kross Íslands um útbreiðslu á skyndihjálp, veitir skyndihjálpar- manni ársins sérstaka viðurkenningu. KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefáns- son, leikmaður Lottomatica Roma á Ítalíu, hefur leikið vel í ítölsku deildinni og var stiga- hæstur í síðasta leiksins þegar liðið tapaði 78-86 fyrir Premiata Montegranaro á útivelli. Jón Arnór skoraði 14 stig á 24 mínútum í leiknum og hitti úr öllum fimm skotunum sínum. Þetta var þriðji deildarleikurinn í vetur sem Jón Arnór er stiga- hæsti leikmaður Lottomatica en hann var einnig stigahæstur í sigurleikjum á Eldo Napoli 11. október (16 stig) og Armani Jeans Milano 18. nóvember (17 stig). Jón Arnór hefur verið sjóðheitur á útivelli í vetur því hann hefur hitt úr 51,5 prósent þriggja stiga skota sinna í átta útleikjum liðs- ins. Jón Arnór hefur sett niður 2,1 þriggja stiga körfu að meðaltali í leik í þessum leikjum og er með 51,9 prósent heildar skotnýtingu utan Rómar. Í heimaleikjunum sjö hefur hann hitt úr 33,3 prósentum þriggja stiga skota sinna og skor- að 1,7 þrista að meðaltali í leik og heildarskotnýtingin hans þar er 10 prósentustigum lakari en hún er í útileikjunum. Jón Arnór hefur skorað 10,3 stig að meðal- tali á 20,4 mínútum í útileikjum en er með 9,9 stig á 26,7 mínút- um í heimaleikjunum. Jón Arnór og félagar eiga annan útileik í kvöld þegar þeir sækja Scavolini Spar Pesaro heim. Jón Arnór hefur verið utan byrjunarliðsins í síðustu þremur leikjum en nýtt bæði, sinn spilatíma og sín skot, vel í þessum leikjum. Hann er með 23,4 stig á hverjar 40 mínútur í þessum leikjum og hefur sett niður 72,2 prósent skota sinna og því er það ekki ólíklegt að Jón Arnór verði kominn aftur í byrj- unarliðið fyrir leik- inn í kvöld. - óój Jón Arnór Stefánsson hjá Lottomatica Roma: Heitur á útivöllum > Gólfið í jólafrí Stjórn Íþróttamiðstöðvarinnar í Dalhúsum í Grafarvogi ákvað að loka húsinu á föstudagsmorgun fyrir jól vegna viðgerða á gólfi. Þetta þýðir að leik Fjölnismanna og Keflavíkur sem átti að fara fram þar í Iceland Express- deild karla á föstudagskvöldið hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Það hefur ekki fengið staðfest hvort taphrina Fjölnismanna á heimavelli hafi verið rekin til gallaðs gólfs en liðið hefur tapað síðustu þremur heimaleikjun- um, þó aðeins með samtals 14 stigum. Það er stefnan að gólfið verið tilbúið á ný fyrir fyrsta heimaleik Fjölnisliðsins á nýja árinu en liðið fær Íslandsmeist- ara KR-inga strax í heimsókn 6. janúar. HANDBOLTI Í kvöld verður leikið í undanúrslitum N1-deildarbikars kvenna í handbolta og fara leikirn- ir fram í Laugardalshöll. Fram tekur á móti Gróttu kl. 18.30 og strax á eftir kl. 20.30 mætast Valur og Stjarnan. Fréttablaðið fékk Díönu Guðjónsdóttur, þjálfara kvennaliðs Hauka, til þess að spá í spilin fyrir leiki dagsins. Fjögur efstu lið N1-deildarinnar vinna sér þátttökurétt og efsta liðið leikur við liðið í fjórða sæti og liðin í öðru og þriðja sæti leika saman. Sigurliðin leika svo til úrslita á næstkomandi laugardag í Laugardalshöllinni kl. 13.40. Framstúlkur eru á toppnum og mæta því Gróttustúlkum sem eru í fjórða sæti en liðin gerðu jafn- tefli í deildinni um miðjan október á Seltjarnarnesi. „Ég á von á hörku baráttuleik á milli þessarra liða. Framliðið er með ungar hungraðar stelpur sem hafa greinilega gaman af því að spila handbolta og hafa spilað lengi saman. Þær eru því mjög skipulagðar og vinna vel saman og eru baráttuglaðar. Grótta spilar náttúrlega frábæra vörn og er með hávaxið og líkamlega sterkt lið og með góða breidd,“ sagði Díana Guð- jónsdóttir, sem hallast þó að því að Grótta fari með sigur af hólmi. „Þetta verður mjög jafn leikur en ég var búin að heyra að Pavla Nevarilova, línumaður Fram, yrði fjarverandi í leiknum og það munar rosalega mikið um hana í leik Framliðsins. Gróttuliðið verð- ur náttúrulega að öllum líkindum án Evu Margrétar Kristinsdóttur sem er meidd, en liðið hefur feng- ið Ingibjörgu Jónsdóttur til að fylla hennar skarð og það er mikill styrkur og ég held að Grótta vinni leikinn,“ sagði Díana. Valsstúlkur eru í öðru sæti en Stjarnan í því þriðja en gengi lið- anna hefur verið ólíkt upp á síð- kastið þar sem Valur hefur unnið fjóra leiki í röð í deildinni og Stjarnan tapað þar þremur í röð. Stjarnan vann viðureign liðanna í Mýrinni í byrj- un nóvember. Díana telur enn og aftur miklu skipta hvaða leikmenn verða lík- lega fjarverandi í dag. „Það er í raun sama uppi á ten- ingnum í leik Vals og Stjörnunnar hvað varðar hugsanlega fjarveru lykilmanna að ég hef heyrt að ung- versku stelpurnar verði ekki með Val í leiknum og það munar um minna. Sérstaklega hefur Eva Barna verið frábær og ég efast ekki um að ef hún væri með myndi Valur vinna, hún er búin að vera það öflug. En að sama skapi held ég að Valur lendi í vandræðum án hennar og þetta gæti verið erfitt fyrir Val. Það hefur náttúrlega mikið gengið á hjá Stjörnunni en ég held að Stjörnustúlkur eigi örugglega eftir að þjappa sér saman og berjast til sigurs í leikn- um. Þannig að ég held að Stjarnan vinni leikinn, en ég gæti vel trúað því að Valur ætti jafnvel eftir að vinna N1-deildina,“ sagði Díana að lokum. omar@fretta- bladid.is Spáir Gróttu og Stjörnunni í úrslit Leikið verður í undanúrslitum N1-deildarbikars kvenna í handbolta í Laugardalshöll í kvöld. Díana Guð- jónsdóttir, þjálfari kvennaliðs Hauka, telur að Grótta og Stjarnan komist í úrslitaleikinn á laugardag. HANDBOLTI Einar Hólmgeirsson skoraði 3 af 4 mörkum sínum á síðustu sjö mínútunum í 34-26 sigri Flensburg á Birki Ívari Guðmundssyni og félögum TuS N- Lübbecke í þýska handboltanum. Alexander Petersson skoraði 3 mörk fyrir Flensburg í leiknum en Þórir Ólafsson lék ekki með N- Lübbecke vegna meiðsla. Danirnir Lars Christiansen (8) og Kapser Nielsen (7) voru marka- hæstir hjá Flensburg en liðið tryggði sér með þessum sigri toppsætið í EM-fríinu. - óój Einar Hólmgeirsson: Raðaði í lokin ALLUR AÐ BRAGGAST Einar Hólmgeirs- son er að komast í gang á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM EKKI MEÐ? Pavla Nevarilova verður líklega ekki með Fram. FRÉTTABLAÐIÐ/ HÖRÐUR Hreiðar Levy Guðmundsson, markvörður IK Sävehof og íslenska landsliðsins, átti stóran þátt í sigri liðs síns gegn Alingsås HK í topp- baráttu sænska handboltans í gær. Hreiðar kom inn á í hálfleik í stöðunni 10-13 fyrir Alingsås HK og vann sig fljótt inn í leikinn. „Það var alveg stappað í húsinu enda um nágrannaslag að ræða og mikið í húfi fyrir bæði liðin í toppbaráttunni. Ég fékk strax á mig eitt mark og síðan varð maður heitur og ég fann mig mjög vel og við sigldum rólega fram úr,“ sagði Hreiðar, sem lokaði markinu á síðustu 5 mínútum leiksins og gerði gæfumuninn fyrir IK Sävehof sem skoraði fjögur mörk á þeim kafla leiksins og situr sem stendur í þriðja sæti deildarinnar. „Ég náði að verja víti í stöðunni 22-20 fyrir okkur og í framhaldinu skorum við og kom- umst í þriggja marka forskot og þá fannst mér sigurinn í raun vera í höfn,“ sagði Hreiðar en núverandi samningur hans við IK Sävehof rennur út eftir tímabilið. „Forráðamenn liðsins komu að tali við mig eftir leik og tóku aðeins púlsinn á málum og gerðu mér ljóst að þeir vildu halda mér áfram hjá liðinu. Það er auðvitað alltaf ánægjulegt að vita af því að maður sé að standa sig vel, en mér finnst hins vegar æfingaálagið alveg mega vera meira fyrir mig persónulega og þetta er náttúrulega bara svona hálfatvinnumennska hjá flestum leikmönn- um liðsins. Þannig að ég ætla að sjá aðeins til hvað gerist í mínum málum og ræða við umboðsmann minn og athuga hvað er í boði og taka svo ákvörðun út frá því,“ sagði Kristinn, sem hlakkar mikið til komandi verkefnis íslenska landsliðsins á Evrópum- keppninni í handbolta. „Ef allt smellur saman hjá landsliðinu þá getum við verið hættuleg- ir þó svo að riðillinn okkar með Svíum, Frökkum og Slóvökum sé ekkert grín. Það opnar líka vissulega marga möguleika að standa sig vel á stórmóti þannig að ég vona bara að maður fái nokkra bolta í sig.“ HREIÐAR LEVY GUÐMUNDSSON: FÓR Á KOSTUM MEÐ IK SÄVEHOF Í SÆNSKA HANDBOLTANUM Í GÆR Ég vona bara að maður fái nokkra bolta í sig

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.