Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 42
34 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR menning@frettabladid.is Gagnrýnandi vefsíðunnar Classics Today er yfir sig hrifinn af upptöku á flutningi Sin- fóníuhljómsveitar Íslands, Schola Cantorum og einsöngvaranna Gunnars Guðbjörns- sonar tenórs og Bjarna Þórs Kristinssonar bassabaritóns á óratoríunni Edda I eftir Jón Leifs. Upptakan fær fullt hús stiga fyrir gæði flutnings og hljómburðar. Gagnrýnandinn David Hurwitz segir hljómsveitina standa fyllilega undir flutningi þessa erfiða verks og er sérlega hrifinn af framlagi kórs og einsöngvara. Hann segir að auki að íslenskir söngvarar séu líkast til þeir einu í heimi sem ráði almennilega við að syngja í verkinu þar sem þeir eigi ekki í vandræð- um með að skilja textann. Hurwitz segir tónlist Jóns Leifs ber- sýnilega vera undir áhrifum frá íslenskri þjóðlagatónlist, en að hún sé jafnframt afar hljómræn og fögur og að mörgu leyti aðgengilegri en aðrar smíðar tónskáldsins. Hann segir að ef ekki væri fyrir tungumála- örðugleikana þá gæti þetta verk auðveld- lega átt upp á pallborðið hjá hljómsveitum og áheyrendum víða um heim. Hurwitz bendir á að útgáfan gæti höfðað sérstaklega til aðdáenda rithöfundarins J.R.R. Tolkien þar sem textinn sé unninn úr fornum norrænum goðsögnum og að í honum komi fyrir verur sem sumar eigi sér einnig hlutverk í bókum Tolkiens. Upptakan þykja eins og best verður á kosið og gagnrýnandinn klykkir út með því að kalla útgáfuna hvorki meira né minna en stórviðburð í tónlistarheiminum. - vþ Frábærir dómar um upptöku Sinfóníunnar Íslenska óperan og Kammersveitin Ísafold standa fyrir Öðruvísi Vínar- tónleikum þriðja árið í röð nú á sunnudag kl. 20. Að þessu sinni er röðin komin að einu af óumdeildum meistaraverkum 20. aldarinnar, Söngvum jarðar eftir Gustav Mahler. Tónskáldið sjálft taldi verkið sína persónulegustu tónsmíð en náði því miður aldrei að heyra það óma á tónleikum, þar sem hann lést áður en það var frumflutt. Í raun er um að ræða mikilfenglega söngsinfóníu sem sameinar þær greinar sem tónskáldið hafði mest dálæti á, sönglög og sinfóníur. Í verkinu gengur Mahler út frá við- fangsefni gamalla kínverskra ljóða þar sem fjallað er um hverfulleika mannlegrar tilveru, gleði, sorg og söknuð. Verkið var samið á árunum 1908- 1909. Textinn sem sunginn er með verkinu er þýsk þýðing Hans Bethge á fornu kínversku ljóðun- um sem voru innblástur Mahlers. Þýðingin var gefin út á sínum tíma undir heitinu Kínverska flautan. Á tónleikunum á sunnudag heyr- ist verkið flutt í kammerútsetningu sem tónskáldið Arnold Schönberg hóf vinnu við en Rainer Riehn kláraði. Útsetningin heyrðist upp- runalega í Vínarborg á árunum í kringum 1920 á tónleikum „Félags um einkaflutning tónverka“ sem Schönberg stofnaði ásamt fleirum í Vínarborg árið 1918. Að því er best er vitað mun þetta vera í fyrsta skipti sem þetta verk Mahlers fær að hljóma í þessari útsetningu á Íslandi. Kammersveitin Ísafold hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð í íslensku tónlistarlífi með metnaðarfullu tónleikahaldi sínu. Sveitin fær nú til liðs við sig tvær af skærustu söngstjörnum þjóðarinnar af yngri kynslóðinni. Einsöngvarar eru Finnur Bjarna- son tenór og Guðrún Jóhanna Ólafs- dóttir mezzósópran en stjórnandi er Daníel Bjarnason. Líklegt verður að teljast að Vínar- tónleikar þessir verði skemmtileg og öðruvísi upplifun. Frekari upp- lýsingar um flytjendur og verkið sjálft má finna á vef Íslensku óper- unnar, www.opera.is, þar sem einnig má kaupa miða á tónleikana. vigdis@frettabladid.is Mahler á Öðruvísi Vínartónleikum Kl. 19 Þátturinn Tónlistarkvöld Útvarpsins: Djass á Múlanum er á dagskrá Rásar 1 kl. 19. í kvöld. Í þættinum má meðal annars heyra upptöku frá tónleikum Straightahead-kvartettsins sem fóru fram á djassklúbbnum Múlanum í september síðast- liðnum. GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR Syngur með kammersveitinni Ísafold á Öðruvísi Vínartónleikum á sunnudag. JÓN LEIFS Eitt fremsta tónskáld Íslendinga á tuttugustu öldinni. 7. og 8. des uppselt 30. des Þjóðleikhúsið Gleðilegt ár! Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Ívanov e. Tsjekhov Aðlögun og leikstjórn: Baltasar Kormákur 28/12 uppselt Gott kvöld e. Áslaugu Jónsdóttur 30/12 kl. 13.30 & 15.00 örfá sæti laus Konan áður e. Roland Schimmelpfennig 29/12 örfá sæti laus Óhapp! e. Bjarna Jónsson Aukasýn. 30/12 Skilaboðaskjóðan e. Þorvald Þorsteinsson 29/12 kl. 14 & 17 uppselt. 30/12 kl. 14 & 17 uppselt ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Fyrirhuguð sýning í London á lista- verkum í eigu rússneska ríkisins er í uppnámi eftir að Rússar drógu til baka loforð sitt um lán á verkunum. Enskir listáhugamenn hafa beðið sýningarinnar með öndina í hálsinum og því eru fréttirnar mikil vonbrigði. Á sýningunni, sem hefði farið fram í safninu The Royal Academy, áttu að vera fjöldamörg meistaraverk frá helstu söfnum Rússlands. Verkin höfðu fæst verið sýnd áður í Bretlandi og ríkti sérstök eftirvænting eftir því að sjá málverkið Dansinn eftir Frakkann Henri Matisse, en sú mynd er álitin marka ákveðin tímamót í vestrænni myndlist. Ákvörðun rússneskra stjórnenda sýningarinnar má hugsanlega rekja til slæmra samskipta á milli Rússa og Breta undanfarið árið. Samskipti þjóðanna tveggja fóru í hnút við morðið á Alexander Litvinenko. Hann var fyrrum rússneskur njósnari sem var búsettur í London og dó í nóvember í fyrra eftir að eitrað var fyrir honum með geislavirku efni. Bretar báðu Rússa um framsal Andrei Lugovoi, sem grunaður er um morðið, en Rússar neituðu beiðninni. Annað málefni sem hamlar fram- gangi sýningarinnar er ótti Rússa við að sum verkanna verði gerð upptæk í Bretlandi. Flest verkanna voru í einkaeigu í upphafi tuttug- ustu aldarinnar, en í kjölfar bylt- ingarinnar í Rússlandi voru þau gerð að sameign þjóðarinnar. Rússnesk yfirvöld óttast að afkom- endur upprunalegra eigenda verk- anna noti tækifærið og geri kröfu til þeirra meðan þau eru til sýnis í London þar sem Bretland er eitt fárra vestrænna landa sem ekki hafa lög til að koma í veg fyrir slíkt. Fordæmi er fyrir slík- um kröfum þar sem rúmlega fimmtíu verk í eigu rússneska ríkisins voru gerð upptæk í Sviss fyrir þremur árum síðan. Svissneskt fyrirtæki átti inni talsverða fjármuni hjá rússneska ríkinu og fór þessa leið til að innheimta þá, þó að svo hafi farið að lokum að verkunum var skilað til Rússlands. Illindin á milli Bretlands og Rússlands yrðu Rússum sannarlega ekki í hag ef til þess kæmi að verkin yrðu gerð upp- tæk á ný. Það er því vel skiljanlegt að þeir séu ugg- andi yfir láninu. - vþ Rússar draga listaverkalán til baka DANSINN EFTIR MATISSE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.