Fréttablaðið - 27.12.2007, Blaðsíða 8
8 27. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík
S: 511 2200 www.seglagerdin.is
se
gl
-7
43
OPNUNARTÍMI:
FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG 10.00 - 18.00
LAUGARDAG 12.00 - 16.00
GERÐU GÓÐ KAUP ÞVÍ VIÐ RÝMUM
FYRIR NÝJUM NÝJUM VÖRUM
SPRENGITILBOÐ
MILLI JÓLA OG NÝÁRS
50.000. – 500.000. kr.
AFSLÁTTUR
Á 2007 ÁRG. OG NOTUÐUM
FERÐAVÖGNUM
VERÐDÆMI
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
kr. 250.000.-
kr. 990.000.-
kr. 2.000.000.-
TJALDVAGN kr. 410.000.-
Trigano Odysseé
FELLIHÝSI kr. 1.350.000.-
Palomino Yearling 2005
HJÓLHÝSI kr. 2.450.000.-
TEC Travel king 2006
SKIPULAGSMÁL Flugskýli Norðurflugs við
Reykjavíkurflugvöll er réttlaust, segir borgar-
lögmaður, og verður að víkja fyrir Háskólanum
í Reykjavík.
Nýtt deiliskipulag fyrir svæðið þar sem flug-
skýli Norðurflugs stendur var samþykkt í
sumar. „Að sögn framkvæmdastjóra þróunar-
og nýsköpunarsviðs Háskólans í Reykjavík er
nauðsynlegt að flugskýlið fari fljótlega því á
umræddu svæði eru fyrirhugaðar vegafram-
kvæmdir og fleira,“ segir í erindi Kristbjargar
Stephensen borgarlögmanns til borgarráðs.
Flugskýli 9 á Reykjavíkurflugvelli, sem
þyrluþjónustufyrirtækið Norðurflug keypti í
júní 2006, var byggt árið 1962 fyrir þyrlu rekstur
samkvæmt munnlegu leyfi flugmálastjórnar
með því skilyrði að það yrði rifið innan sex mán-
aða ef flugmálastjórn krefðist þess.
Norðurflug krefst bóta fyrir skýlið sjálft og
tjón sem félagið hafi orðið fyrir vegna skipu-
lagsbreytinganna með því að þurfa að leigja
aðra aðstöðu í stað skýlisins. Félagið segir upp-
gjör meðal annars geta falist í úhlutun lóðar
innan marka flugvallarins. Borgarlögmaður
tekur því ólíklega:
„Umrætt flugskýli er án lóðarréttinda og á
því hvílir brottflutningskvöð,“ segir í umsögn
borgarlögmanns, sem telur að ef borgin reynist
bótaskyld nái bæturnar aðeins til skýlisins eins
og það var áður en Norðurflug réðist í endur-
bætur og stækkun á því sem hafi verið óheimilar.
Ákvörðun um nýja lóð fyrir Norðurflug verði
meðal annars að taka í samræmi við fyrir-
ætlanir um þróun flugvallarins.
Borgarráð hefur samþykkt að krefjast þess
að Norðurflug sjái til þess að skýlið verði á bak
og burt innan sex mánaða. Annars muni borgin
annast það verk á kostnað félagsins.
Hvorki Sigtryggur Leví Kristófersson, for-
stjóri Norðurflugs, né Sigurður G. Guðjónsson,
lögmaður félagsins, vilja tjá sig um málið á
þessu stigi.
Snorri Geir Steingrímsson, þyrluflugmaður
hjá Norðurflugi, segir skipulagsmál á Reykja-
víkurflugvelli vera í sjálfheldu. „Flugvöllurinn
á auðvitað að vera þar sem hann er en mikil-
vægast fyrir alla í fluginu er að tekin verði loka-
ákvörðun um framtíð vallarins þannig að menn
geti gert áætlanir til framtíðar,“ segir Snorri
Geir. gar@frettabladid.is
Vill rífa flugskýli Norðurflugs
Reykjavíkurborg krefst niðurrifs flugskýlis Norðurflugs við Reykjavíkurflugvöll. Skýlið var byggt með
munnlegu leyfi frá flugmálastjórn en er nú fyrir Háskólanum í Reykjavík.
EFNAHAGSMÁL Þrjú sveitarfélög
leggja lágmarksútsvar á íbúa
sína en það eru Skorradals-
hreppur, Helgafellssveit og Ása-
hreppur. Lágmarksútsvar er
11,24 prósent og hámarksútsvar
13,03 prósent.
Langflest sveitarfélög á Íslandi
leggja hámarksútsvar á íbúa sína,
eða 64 af 79 sveitarfélögum. Tvö
sveitarfélög lækka útsvarið. Eru
það Seltjarnarneskaupstaður og
Kjósarhreppur.
Jónmundur Guðmarsson, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi segir það
markvissa stefnu meirihlutans að
lækka álögur og stilla opinberum
gjöldum í hóf. „Slíkt kallar á aga í
rekstri sveitar félagsins og okkur
hefur gengið vel að reka bæinn.
Þetta er í þriðja sinn á stuttum
tíma sem við
lækkum álögur,
bæði útsvar og
fasteigna-
gjaldastuðla, og
erum sennilega
lægstir af
stærri sveitar-
félögunum,“
segir Jón-
mundur.
Flest sveitar-
félög á höfuð borgar svæðinu
leggja hámarksútsvar á íbúa sína.
Reykjavíkurborg, Hafnar fjarðar -
kaupstaður, Kópavogsbær og
Sveitarfélagið Álftanes leggja öll
13,03 prósenta útsvar á sína íbúa.
Lægri álagsgreiðslur eru í Garða-
bæ sem leggur 12,46 prósent á
íbúa sína og Mosfellsbær leggur
12,94 prósent á íbúa sína.
- ovd
Seltjarnarnes leggur minnst á íbúa sína af sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu:
Tvö sveitarfélög lækka útsvar
JÓNMUNDUR
GUÐMARSSON
ÚTSVAR SVEITARFÉLAGA
Sveitarfélag 2007 2008
Skorradalshreppur 11,24% 11,24%
Helgafellssveit 11,24% 11,24%
Ásahreppur 11,24% 11,24%
Seltjarnarnes 12,35% 12,10%
Kjósarhreppur 13,03% 12,53%
HEIMILD: FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SNORRI GEIR STEIN-
GRÍMSSON Þyrluflug-
maður Norðurflugs við
flugskýli félagsins sem
Reykjavíkurborg krefst
að verði rifið.
FÉLAGSMÁL Hjálparsími Rauða
krossins, 1717, er opinn allan
sólarhringinn allt árið um kring.
Þá hefur opnunartími Konukots,
athvarfs fyrir heimilislausar
konur, verið lengdur frá Þorláks-
messu til nýársdags og verður
opið allan sólarhringinn.
Rauði krossinn, Mæðrastyrks-
nefnd, Hjálparstarf kirkjunnar
og fleiri standa sameiginlega
fyrir jólaaðstoð fyrir fólk. Er
aðstoðin, sem bæði er veitt
einstaklingum og fjölskyldum,
helst framlög og fataúthlutanir.
Vinna við jólaaðstoðina er að
miklu leyti unnin af sjálfboðalið-
um og starfsmönnum ofan-
greindra félagasamtaka.
Þá sáu sjálfboðaliðar einnig um
hátíðarmáltíð fyrir gesti Vinjar í
gær en Vin er athvarf RKÍ fyrir
fólk með geðraskanir. - ovd
Símatími RKÍ lengdur:
Opið allan
sólarhringinn
BRETLAND Lögregla í Englandi
rannsakar nú lát hjóna í Sussex.
Gengið er út frá því að maðurinn
hafi myrt konu sína og framið
sjálfsmorð í kjölfarið.
Hjónin, sem bæði voru á
sjötugsaldri, fundust látin í
bænum Chiltington á aðfaranótt
aðfangadags. Lögregla fann
manninn í bíl sínum eftir að
hann hafði keyrt á tré. Lögreglu-
þjónar fóru því að heimili
hjónanna til þess að tilkynna
konu hans um slysið. Þegar
þangað var komið fundu þeir lík
hennar undir jólatré fjölskyld-
unnar. - þeb
Framdi morð og sjálfsmorð:
Faldi líkið
undir jólatrénu
1. Hversu mikið hefur dregið
úr tóbakssölu frá því í fyrra
samkvæmt nýjum tölum?
2. Hvaða áströlsku leikkonu
langar til þess að sjá norður-
ljósin?
3. Hvaða þekkta verslunar-
keðja ætlar að senda frá sér
fatalínu gegn alnæmi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46
VEISTU SVARIÐ?