Fréttablaðið - 14.01.2008, Blaðsíða 21
14. JANÚAR 2008
Fasteignasalan Ás hefur til sölu fallegt einbýlis-
hús í Hafnarfirði.
F agrakinn 9 er fallegt og virðulegt hús á þrem-ur hæðum. Því hefur verið vel við haldið og er 194,7 fermetrar að stærð ásamt 41 fermetra
bílskúr, alls eru þetta 235,7 fm.
Komið er inn í forstofu með skáp og korkflísum
á gólfi. Eldhús er með eldri innréttingu og mósaík-
flísum milli skápa en parkett er á gólfi. Snyrting er
með hvítri innréttingu, parketti á gólfi og máluðum
veggjum. Parkett er á gangi. Tvær stofur og borð-
stofa eru á hæðinni með parketti á gólfum. Útgengt
er út á svalir úr stofu.
Í risi eru þrjú góð svefnherbergi undir súð með
kvistgluggum. Skápar í tveimur herbergjanna og
parkett á tveimur en dúkur á einu þeirra.
Á neðstu hæðinni er gott hol með ljósum flísum og
skáp. Stórt tvöfalt herbergi sem mögulegt er skipta
niður í tvö góð svefnherbergi. Ljósar flísar eru á
gólfi. Baðherbergi er með sturtuklefa, viðarinnrétt-
ingu, flísum á gólfi en panill er á veggjum. Þar er
einnig klefi fyrir gufubað. Þvottahús er flísalagt.
Útgengt er af jarðhæð út í lóð. Tvær geymslur
fylgja eigninni. Innangengt er í bílskúr sem er full-
búinn með hita og rafmagni. Þak hússins er uppruna-
legt.
Verð eignarinnar er 53 milljónir króna.
Virðulegt og vel við haldið
Fagrakinn 9 er fallegt og virðulegt hús á þremur hæðum í Hafnarfirði.
VEXTIR FRÁ
AÐEINS
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 10.1.2008.
4,7%
Frjálsi fjárfestingarbankinn lánar fyrirtækjum og einstaklingum til kaupa eða
endurfjármögnunar á atvinnuhúsnæði. Lánstími er allt að 30 árum og við kappkostum
að veita framúrskarandi þjónustu á hagstæðari kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6,
hringdu í 540 5000 eða sendu póst á frjalsi@frjalsi.is til að kynna þér málið nánar.
Finndu þér stað
Atvinnuhúsnæðislán með lægri lántökukostnaði
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
LÁTTU DRAUMINN
VERÐA AÐ VERULEIKA
Hafðu í huga að það fyrsta sem væntanlegur kaupandi sér eru útidyrnar.
hurðir standi á sér.
Ást við fyrstu sýn !
Við erum 100% til staðar fyrir þig !
Við hjálpum þér 100% við flutninginn
699 6165
Þú fæ
rð
FRÍA
flutnin
gskas
sa
fasteignir