Fréttablaðið - 14.01.2008, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 14.01.2008, Blaðsíða 54
30 14. janúar 2008 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1 Teitur Jónasson. 2 Carla Bruni. 3 Bolton. LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. himinn 6. í röð 8. blása 9. stefna 11. mun 12. setja í sýru 14. bauka 16. skammstöfun 17. ætt 18. ennþá 20. skóli 21. er utar. LÓÐRÉTT 1. atlaga 3. gat 4. flokkur sýklalyfja 5. efni 7. námsmaður 10. traust 13. stykki 15. ilmur 16. hláku 19. númer. LAUSN LÁRÉTT: 2. loft, 6. rs, 8. púa, 9. átt, 11. ku, 12. súrsa, 14. dútla, 16. þe, 17. kyn, 18. enn, 20. fg, 21. ytri. LÓÐRÉTT: 1. árás, 3. op, 4. fúkalyf, 5. tau, 7. stúdent, 10. trú, 13. stk, 15. angi, 16. þey, 19. nr. „Ég hlusta á flest allt sem Rás 1 hefur upp á að bjóða og svo hlusta ég dálítið á Rás 2. Svo spila ég diska og mér finnst norsk og sænsk vísnatónlist til dæmis mjög skemmtileg.“ Fríður Eggertsdóttir ljósmyndari. Endurútgefin plata Jóhanns Jóhannssonar, Engla- börn, fær átta í einkunn af tíu mögulegum á banda- rísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jóhann fær góða dóma á síðunni því hann fékk 7,5 fyrir plötuna Dís og 6,9 fyrir IBM 1401 – A User´s Manual. Platan, sem kom fyrst út árið 2002 en var endurút- gefin á síðasta ári hjá útgáfufyrirtækinu 4AD, hefur að geyma tónlist sem Jóhann samdi við leikritið Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson. „Leikhústónlist getur sýnt fram á það óvenjulega í hinu hefðbunda og það besta við Englabörn er að hún getur sýnt fram á það sama í lífinu sjálfu,“ segir í dómnum. Jóhannes Ágústsson, annar eigenda 12 Tóna sem gefur plötur Jóhanns út hér á landi, hefur mikið dálæti á Englabörnum. „Þetta hefur verið perla í versluninni hjá okkur. Þeir sem hafa ferðast um landið sjá landið í þessari plötu, það er alveg magnað. Þetta er svipað og fólk hefur verið að upplifa með Sigur Rós,“ segir Jóhannes. „Marga af ferðamönnuum sem eru að fara út á land vantar tónlist í bílinn og þetta er plata sem við mælum alltaf með sem góð ferðamúsík. Maður svífur eiginlega alltaf þegar maður heyrir þessa plötu,“ segir hann og bætir við að Jóhann sé orðinn einn virtasti tónlistar- maðurinn sem þeir hafi á sínum snærum. - fb Hlaðinn lofi fyrir Englabörn „Ég skrifa um það sem er að ger- ast hjá mér, t.d. þegar ég fer á Þjóðminjasafnið og í félagsmið- stöðvarnar og svoleiðis. Og ég skrifa líka um það hvaða fólk ég hitti,“ segir Gunnlaugur Ingi Ingimarsson, sem flestir þekkja sem Gulla sendil. Það er líka listamannsnafnið sem Gulli hefur notað á ellefu heftum sem komið hafa út með ævisögulegum skáld- skap hans. „Reyndar er ég alveg hættur að vera sendill og er kom- inn í kerrurnar í Ikea. Ég ætti eiginlega að byrja að kalla mig Gulla í Ikea núna,“ segir Gulli sposkur. Nýjasti heftið í ritröð Gulla heitir Reykjavíkurbókin. „Jói vinur minn í 12 Tónum hefur selt það fyrir mig í búðinni sinni og nú er það uppselt. Fyrir jólin árit- aði ég í búðinni. Það komu mjög margir miðað við að þetta er plötubúð. En svo hef ég líka selt vel í Hamraborg á Ísafirði og bókasafnið þar kaupir alltaf þrjú eintök.“ Gulli bjó einmitt á Ísa- firði í sex ár en flutti í bæinn árið 2003. „Bækurnar mínar hafa fengið mjög góðar móttökur,“ segir Gulli, „enda eru þetta mjög góðar bækur. Ég hef verið þekktur maður í 25 ár.“ Jóhannes Ágústsson í 12 Tónum hefur lengi fylgst með skálda- ferli Gulla og á öll verk hans. „Þegar ég var í Japis seldum við heftin hans líka svo ég get fullyrt að verk Gulla eru til á fjölmörg- um heimilum,“ segir Jóhannes og fer ekki leynt með aðdáun sína: „Gulli setur hugsanir sínar á blað á fallega náttúrulegan hátt og það er stórkostlega eðlilegt flæði í þessum texta.“ Fólk þarf ekki að örvænta þótt Reykjavíkurbókin hans Gulla sé uppseld – „Það er verið að búa til fleiri og ég fer með heftin í 12 Tóna einhvern næstu daga,“ segir skáldið og teygir sig eftir kerru. - glh Gulli sendill metsöluhöfundur REYKJAVÍKURBÓKIN UPPSELD Gulli sendill hefur verið þekktur maður í 25 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON JÓHANN JÓHANNSSON Platan Englabörn fær mjög góða dóma á heimasíðunni Pitchforkmedia.com. „Þetta verður til dæmis þannig að þegar þú ferð á klósettið til að pissa þá verður þú bak við spegil. Sem horfa má út um þannig að þú þarft ekki að missa af neinu. Já, já, já, þú getur horft á leikinn piss- andi,“ segir Ásgeir Davíðsson athafnamaður sem betur er þekkt- ur sem súludanskóngurinn Geiri á Goldfinger. Geir festi fyrir nokkru kaup á húsnæði og rekstri við Grensás- veg 5-7 en þar var til langs tíma rekinn nektardansstaðurinn Bóhem. Þeim stað hefur Geir nú lokað en það hlýtur að heyra til tíð- inda að Geiri loki súludansstað en opni ekki slíkan. Eftir sem áður verður þarna veitingarekstur en með öðru sniði en Geiri er þekktur fyrir. „Þetta verður flottasti sportbar norðan Alpafjalla og þótt víðar væri leitað. Rétt eins og viskíbar- inn minn á Hafnarkránni var sá stærsti norðan Alpafjalla – en hann verður þarna líka,“ segir Geiri en þegar Fréttablaðið náði af honum tali var hann einmitt staddur við Grensásveg að bollaleggja með þýskum arkitektum sem munu hanna staðinn sem er alls um 550 fermetrar að stærð. „Það eru þýskir arkitektar að teikna þetta upp akkúrat núna í þessum orðum töluðum og í beinu framhaldi koma iðnaðarmenn og brjóta alla veggi niður. Svo koma þessar skvísur frá fyrirtæki í Þýskalandi með innréttingar og mannskap með sér.“ Að sögn Geira verður staðurinn allur í sjónvörpum og skjáum. Og eiga menn að geta horft á alla leiki hugsanlega sem verið er að keppa í þá og þá stundina. Geiri er nýlega kominn til landsins frá Skotlandi þar sem hann var að huga að viskí- verksmiðju og skoða sportbar sem á að vera einhver sá flottasti sem um getur. En verður þá, eftir að Geiri opnar sinn sportbar, númer tvö í Evrópu. Geiri segist ekki hafa nennt að standa í rekstri súlustaðar við Grensásveg. Hann hafi lent í stappi með að fá leyfi fyrir rekstrinum og vendi því kvæði sínu í kross. „Strípimeyjarnar sem hér störf- uðu? Nú, þær eru komnar í Kópa- voginn. Á Goldfinger. Og eru ágæt- lega settar þar,“ segir Geiri. jakob@frettabladid.is ÁSGEIR DAVÍÐSSON: BYGGIR FLOTTASTA SPORTBAR NORÐAN ALPA Bolti í stað berra brjósta RÝNT Í TEIKNINGARNAR Hinn nýi sportbar verður hannaður þannig að horfa má á leikinn í gegnum spegil meðan pissað er. Silke Schmitt, þýski arkítektinn, sýnir Kristj- áni Jósteinssyni, sem verður framkvæmdastjóri, Jóni Kornelíusi, sérfræðingi frá Baco Ísberg, og Geira teikningarnar. BURT MEÐ STRIPPLIÐ OG INN MEÐ BOLTANN Söguleg mynd. Geiri rífur niður tjöld sem áður huldu nektardansmeyjar og áhugamenn um einkadans. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Háþrýsti- þvottatæki Úrvals háþrýstitæki á góðu verði. Auglýsingasími – Mest lesið Eins og Fréttablaðið greindi frá keypti Baldvin Samúelsson skemmti- staðinn Óliver af Ragnari Magnússyni. Þetta kom Arnari Þór Gíslasyni og öðrum fyrri eigend- um nokkuð í opna skjöldu enda eru þeir enn með afsalið af staðnum. Enda hefur ekki enn tekist að greiða upp kaupverðið. Ragnar lét hins vegar hafa eftir sér að hann hygðist nota kaupverðið til að greiða upp það sem hann skuldaði. En kaupin virðast hafa verið meira á orði heldur en borði. Því Ragnar hefur verið töluvert í fréttum sökum bílabruna í Vogum og hefur neikvætt umtal í kringum það mál haft nokkur áhrif á aðsóknina á Óliver sem hefur um árabil verið smekkfullur. Ragnar birtist enda á forsíðu 24 stunda þar sem hann var sagður reka þrjá skemmtistaði í Reykjavík og virðst því salan til Baldvins á Óliver hafa verið gerð til að auka á jákvætt orðspor stað- arins, frekar en að Ragnar væri á leið út úr skemmtanabransanum. Og fréttamenn í sjónvarpi verða augljóslega að vera við öllu búnir. Og það sannaðist kannski hvað best í laugardagsfréttum RÚV þegar textavél erlendra frétta bilaði. Bogi Ágústsson varð því að bregðast skjótt við og lesa íslenska þýðingu við erlendu fréttirnar eftir að þær höfðu runnið sitt skeið, textalausar, en þær samanstóðu meðal annars af berbrjósta dönskum konum í sundi og viðtali við Ringo Starr út af menning- arborginnni Liverpool. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.