Fréttablaðið - 14.01.2008, Blaðsíða 40
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
HEFUR ÞÚ ORÐIÐ VITNI AÐ GÓÐVERKI?
ÓSKAÐ ER EFTIR TILNEFNINGUM TIL SAMFÉLAGSVERÐLAUNA
FRÉTTABLAÐSINS 2008
Til greina koma allir sem hafa lagt sitt af mörkum til að bæta íslenskt samfélag. Skorað er á
lesendur Fréttablaðsins að senda inn tilnefningar um fólk og félagasamtök sem eiga skilið
virðingarvott fyrir verk sín. Allir koma til greina, jafnt óþekktir einstaklingar sem vinna störf
sín í hljóði, félagasamtök eða þjóðþekktir karlar og konur sem hafa með gjörðum sínum og
framgöngu verið öðrum fyrirmynd.
Samfélagsverðlaunin eru veitt í fimm flokkum.
1) Hvunndagshetjan
Einstaklingur sem sýnt hefur sérstaka óeigingirni eða hugrekki, hvort sem er í tengslum við einn atburð eða
með vinnu að ákveðnum málaflokki í lengri tíma.
2) Frá kynslóð til kynslóðar
Hér koma til greina kennarar, leiðbeinendur, þjálfarar eða aðrir uppfræðarar sem skarað hafa fram úr á
einhvern hátt. Einnig koma til greina félagasamtök sem sinna börnum af sérstökum metnaði og alúð.
3) Til atlögu gegn fordómum
Einstaklingur eða félagasamtök sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu.
4) Heiðursverðlaun
Einstaklingur sem með ævistarfi sínu hefur stuðlað að betra samfélagi.
5) Samfélagsverðlaunin
Félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf og lagt sitt af mörkum til að
gera íslenskt samfélag betra fyrir okkur öll.
Sendið tilnefningar á hlekknum Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins á visir.is/samfelagsverdlaun, með
tölvupósti á netfangið samfelagsverdlaun@frettabladid.is, eða bréfleiðis merkt Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík. Dómnefnd tekur allar innsendar tillögur til skoðunar.
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í febrúar.
Frestur til að senda tilnefningar er til hádegis mánudaginn 28. janúar.
ze
b
ra