Fréttablaðið - 16.01.2008, Blaðsíða 30
22 16. janúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
MERKISATBURÐIR
1605 Fyrsta útgáfa Don Kíkóta
kemur út í Madríd.
1909 Leiðangur Ernests Shack-
leton finnur segulskaut
Suðurpólsins.
1947 Talsímasamband milli Ís-
lands og Bandaríkjanna
komið á. Fyrstir töluðu
saman Emil Jónsson sam-
göngumálaráðherra, og
Thor Thors, sendiherra í
Washington.
1960 Selma Jónsdóttir listfræð-
ingur ver doktorsritgerð
við Háskóla Íslands fyrst
kvenna.
1973 Fyrsti stóri skuttogarinn
sem Spánverjar smíðuðu
fyrir Íslendinga kemur til
Reykjavíkur.
2005 Adriana Iliescu elur barn
elst kvenna, til þessa, 66
ára gömul.
Ellen Johnson-Sirleaf, forseti afríska ríkisins
Líberíu, tók við forsetaembætti þennan dag
árið 2006. Hún er fyrsti þjóðkjörni
kvenforseti Afríku og fyrsti kven-
forseti Líberíu. Og er önnur svartra
kvenna sem gegnir stöðu þjóðhöfð-
ingja í heiminum.
Johnson-Sirleaf er fædd 29.
októ ber árið 1938 í höfuðborg
Líberíu, Monróvíu. Hún útskrifaðist
frá Vestur afríska háskólanum í
Monróvíu og nam síðan viðskipti
við Háskólann í Wisconsin í Banda-
ríkjunum og við Háskólann í Color-
ado. Síðan lauk hún meistaranámi í opinberri
stjórnsýslu frá Harvard-háskóla árið 1971.
Johnson-Sirleaf á fjóra syni sem búa í Banda-
ríkjunum og Líberíu og átta barnabörn.
Eftir námið í Harvard snéri hún aftur til
Líberíu þar sem hún gerðist aðstoðarkona fjár-
málaráðherra. Árið 1980 var þáverandi stjórn
steypt af stalli og Johnson-Sirleaf
fór í útlegð til Kenía þar sem hún
starfaði fyrir Citibank. Hún snéri
aftur árið 1985 og mótmælti opin-
berlega þáverandi stjórn samhliða
því sem hún bauð sig fram til
þings. Sökum spillingar í landinu
var hún dæmd til tíu ára fangelsis-
vistar fyrir andstöðu við þáverandi
stjórn. Henni var þó sleppt skömmu
síðar og þá hélt hún til Washington-
borgar en snéri aftur til Líberíu 1997
og starfaði þá fyrir Heimsbankann og Citibank
í Afríku þar til hún bauð sig fram til forseta og
tók við því embætti. Johnson-Sirleaf var árið
2006 valin ein valdamesta kona heims að mati
tímaritsins Forbes.
ÞETTA GERÐIST: 16. JANÚAR 2006
Fyrsti þjóðkjörni kvenforseti AfríkuDIAN FOSSEY DÝRAFRÆÐINGUR FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1932
„Fólkið sem drepur dýrin í
dag er sama fólkið og myrðir
manneskjur á morgun.“
Fossey rannsakaði górillur í
Rúanda í fjölda ára og barð-
ist fyrir verndun þeirra. Hún var
myrt árið 1985, en þremur árum
síðar var saga hennar gerð
ódauðleg í myndinni Gorillas in
the Mist.
timamot@frettabladid.is
„Aðdraganda samtakanna má rekja til
ársins 2004 þegar umhverfisnefnd Vél-
hjólaíþróttaklúbbsins var stofnuð. Síðan
langaði okkur að halda betur utan um
þennan hóp og þá þróaðist þetta starf og
varð að Slóðavinum,“ segir Jakob Þór
Guðbjartsson, sem er í forsvari fyrir
nýstofnuð samtök um ferðamennsku og
útivist á vélhjólum sem nefnast Slóða-
vinir.
„Margir halda að utanvega-vélhjól séu
eingöngu notuð í torfærukeppni, en það
eru um 6.000 vélhjól á Íslandi sem eru
alfarið notuð í útivist og ferðamennsku.
Þessi hjól má einnig nota í umferð-
inni ólíkt torfæruhjólum, og eru sérbú-
in til ferðamennsku,“ segir Jakob, sem
hefur hjólað um slóða og vegi landsins
í fimmtán ár.
„Við förum bæði í styttri og lengri
ferðir um allt land. Við ferðumst al-
farið á vegum og slóðum eða eftir
svonefndum torleiðum. Þetta eru ekki
bara hefðbundnir fjallvegir heldur þjóð-
leiðir sem hætt er að nota, aflagðir línu-
vegir, girðinga- og smalavegir. Einnig
vil ég taka það skýrt fram að við hvorki
stundum né stuðlum að utanvegaakstri,“
útskýrir Jakob og segir eitt markmiða
vera að fræða félagsmenn, almenning
og stjórnvöld um þennan ferðamáta.
„Þarna er hægt að njóta útivistar og sjá
landið án þess að þramma um á tveim-
ur jafnfljótum eða vera kannski á rán-
dýrum jeppa,“ segir Jakob og bætir við
að mikil þörf hafi verið fyrir þennan
félagsskap. „Þessi hópur hefur ekki átt
neinn málsvara og ekkert geta sótt fé-
lagsskap né fræðslu, svo úr þessu ætlum
við að bæta,“ segir Jakob og bætir við
að slóðanet landsins sé um 30-40.000 km
en þar er vegagerðin að þjónusta um
13.000 km. „Við ferðumst um allt land
en förum að sjálfsögðu eftir aðstæðum
og tíð. Við förum bæði styttri dagstúra
eða lengri ferðir langt frá byggðum, þá
ýmist með vistir og bensín sjálf eða með
fylgdarjeppa,“ segir Jakob og bætir við
að hjólamennskan sé samspil af ofsalega
góðri útivist og líkamsrækt.
„Maður kemur heim með hressandi
harðsperrur svo það getur verið gott að
æfa sig fyrir ferðalagið,“ segir Jakob og
bendir á svæðið við Bolaöldu þar sem
Vélhjólaíþróttaklúbburinn er með að-
stöðu og er að sögn Jakobs mjög góður
stökkpallur út í sumarið til að æfa sig og
komast í form.
Slóðavinir verða með skipulagðar
ferðir fyrir félagsmenn, aðgengi að upp-
lýsingum um leiðir á GPS-formi, spjall
á heimasíðu um búnað, akstursleiðir,
færð, veður og annað, auk reglulega fé-
lagsfunda og afsláttarkort svo eitthvað
sé nefnt. Sjá nánar: www.slodavinir.org.
rh@frettabladid.is
SLÓÐAVINIR: SAMTÖK UM FERÐAMENNSKU OG ÚTIVIST Á VÉLHJÓLUM STOFNUÐ
Hjólað um fjöll og firnindi
ÍSLAND Á HJÓLUM Jakob Þór Guðbjartsson er í forsvari fyrir nýstofnuð samtök Slóðavina sem stunda ferðamennsku og útivist á vélhjólum.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Valdís Pálsdóttir
sem lést 3. janúar sl. hefur verið jarðsett í kyrrþey að
eigin ósk.
Páll Einarsson Sólveig Bogadóttir
Guðmundur Einarsson Hafdís Ólafsdóttir
Einar Valur Einarsson Berglind Hallgrímsdóttir
Logi Einarsson Helga Eyjólfsdóttir
Bára Þuríður Einarsdóttir Páll Pálsson
Kristín Snjólaug Einarsdóttir
Tómas Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
Jakob Hrafn Höskuldsson,
Bröndukvísl 14, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
17. janúar kl. 13.00.
Höskuldur Höskuldsson Aðalheiður Ríkarðsdóttir
Rakel Sara Höskuldsdóttir
Lea Ösp Höskuldsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Sveinn Kristjánsson
fyrrum bóndi, Drumboddsstöðum,
Biskupstungum,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði,
13. janúar. Útförin fer fram frá Skálholtskirkju
laugardaginn 19. janúar kl. 13.30. Jarðsett verður
í Bræðratungukirkjugarði.
Svavar Ásmundur Sveinsson Laufey Eiríksdóttir
Ragnheiður Sveinsdóttir
Guðríður Sveinsdóttir
Gísli Rúnar Sveinsson Sigurveig Helgadóttir
Baldur Indriði Sveinsson Betzý Marie Davíðson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Lilja Halldórsdóttir
Höfðagrund 25, Akranesi,
er lést á Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 13. janúar,
verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn
18. janúar kl. 14.00.
Ólafur Ólafsson
Halldór Ólafsson Guðlaug Sigurjónsdóttir
Jóhannes S. Ólafsson Herdís H. Þórðardóttir
Ólafur Ólafsson Ingiríður B. Kristjánsdóttir
Þráinn Ólafsson Helga Jóna Ársælsdóttir
Lárus Þór Ólafsson Valgerður Sveinbjörnsdóttir
Steinunn H. Ólafsdóttir Halldór Hauksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Ágúst Bjarnason
bifreiðastjóri,
sem lést þriðjudaginn 1. janúar á Hjúkrunarheimilinu
Víðinesi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 18. janúar kl. 13.00.
Guðjón Ágústsson Hrönn Valentínusdóttir
Bjarni Ágústsson Ingibjörg Hafsteinsdóttir
Hrönn Ágústsdóttir Ágúst Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Sigurðar Þ. Valdimarssonar
Ársölum 3, Kópavogi,
áður til heimilis í Ólafsvík,
sem lést þann 12. desember síðastliðinn. Sérstakar
þakkir til starfsfólks Krabbameinsdeildar
Landspítalans og Hjúkrunarþjónustunnar Karítas.
Guðrún Sigurðardóttir
Una Jóna Sigurðardóttir Níels Kirschberg
Guðlaugur Kr. Sigurðsson Anna María Jónsdóttir
Kristín Guðbjörg Sigurðardóttir Bjarni Arnarson
Valdimar G. Sigurðsson Rannveig H. Kristinsdóttir
Níels Pétur Sigurðsson Hrefna Kristmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.