Fréttablaðið - 16.01.2008, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 16.01.2008, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 16. janúar 2008 Leikritið norway.today verður frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á morgun. Um er að ræða farandsýningu á vegum Þjóð- leikhússins sem kemur til með að ferðast á milli framhaldsskóla landsins. Þjóðleikhúsið gerir leikferðir út á land með sýningar fyrir ungt fólk að reglulegum viðburði í starfi sínu og leggur áherslu á að uppfærslur þessar séu sérlega vandaðar, enda dugir ekki minna til þegar reynt er að fanga athygli yngri kynslóðarinn- ar. Nýjasti liðurinn í þessu átaki er leikritið norway. today sem verður frumsýnt í Edinborgarhúsinu á Ísafirði á morgun. Verkið er margverðlaunað og hefur vakið athygli og áhuga ungs fólks víða um heim frá því að það var fyrst frumsýnt árið 2000. Leikritið fjallar um hina tvítugu Júlíu. Hún leitar á veraldarvefnum að einhverjum sem er tilbúinn til þess að fremja með henni sjálfsmorð. Hún kynnist hinum nítján ára gamla Ágústi á spjallrás og þau ákveða að láta af sjálfsvíginu verða saman. Hvorugt þeirra hefur þó augljósa ástæðu til að vilja fyrir- fara sér. Aftur á móti virðist sem hversdagsleiki lífsins sé við það að bera þau ofurliði og þau finna einfaldlega ekki neina gilda ástæðu til að lifa. Birg af samlokum og bjór og með myndbandstökuvél í farteskinu leggja þau af stað í langferð upp á himinháa bjargbrún í Noregi þar sem þau ætla að binda enda á líf sitt með því að stökkva. Eins og efniviðurinn gefur til kynna er leikritið norway.today grátbroslegt verk um tvær ungar manneskjur sem telja sig hafa fundið í dauðanum eitthvað sem gæti hleypt spennu í grámóskulegt lífið. Leikritið er uppfullt af svörtum húmor og tekst á við þverstæðuna um tilgang og tilgangsleysi lífsins. Sem fyrr segir var verkið fyrst frumsýnt fyrir átta árum, en hefur síðan þá verið þýtt á 25 tungu- mál. Það hefur verið sett upp við góðan orðstír víðs vegar í Evrópu, í Bandaríkjunum og víðar. Þýðandi verksins hér á landi er María Kristjánsdóttir. Leikstjóri norway.today er Vigdís Jakobsdóttir og tveir ungir leikarar, Sara Marti Guðmundsdóttir og Þórir Sæmundsson, leika í sýningunni. Tvær sýningar verða á verkinu á morgun: sýning fyrir nemendur Menntaskólans á Ísafirði kl. 10.45 og sýning fyrir almenning kl. 20. vigdis@frettabladid.is Þverstæða lífs og dauða TILGANGUR EÐA TILGANGSLEYSI? Úr verkinu norway.today sem sýnt verður á Ísafirði á morgun. Hvert viltu fara? HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ 24 áfangastaðir bíða þín á morgun í Hagkaupum New York, Bandaríkjunum HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ MÍN BORG Tvisvar á dag í sumar New York og Boston Nýtt 2008 Toronto Mílanó, Ítalía HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ MÍN BORG Tvisvar á dag í sumar New York og Boston Nýtt 2008 Toronto París, Frakklandi HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ MÍN BORG Tvisvar á dag í sumar New York og Boston Nýtt 2008 Toronto HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ Toronto, Kanada MÍN BORG Tvisvar á dag í sumar New York og Boston Nýtt 2008 Toronto Ferðabæklingur Icelandair 2008 Þjóðleikhúsið um helgina Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Ívanov fös. 18/1, lau. 19/1 örfá sæti laus Konan áður fös. 18/1 Skilaboðaskjóðan sun. 20/1 kl. 14 & 17 örfá sæti laus Barnasýningin Gott kvöld sun 20/1 kl. 13.30 örfá sæti laus ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Rafmagnstalíur Keðjutalíur og víratalíur Aflið nánari upplýsinga hjá sölumönnum. DEMAG

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.