Fréttablaðið - 22.01.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
22. janúar 2008 — 21. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Rósa Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá mennta-
málaráðuneytinu, skipti úr karate yfir í taichi.„Ástæðan fyrir því að ég fékkum
þegar þú berð virðingu fyrir sjálf þ
Rósa og segi þ
List sem styrkir líkamann
Rósa Guðmundsdóttir æfir taichi hjá Heilsudrekanum og segir það góða leið til að vekja líkamann á morgnana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á FORSENDUM HESTSINSÞriggja helga reiðnámskeið fyrir atvinnumenn í hestamennsku er að hefjast hjá Hólaskóla á næstunni.NÁM 4
ÆTLA AÐ LÁTA VERKIN TALA
Eftir að læknar hurfu úr neyðarbílum eiga landsmenn líf sitt undir bráðatæknum.
HEILSA 2
40-70% afsláttur
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5• Sími: 581 2141
þorrinn Íslenskur blóðmör í AfríkuNamibíubúinn Stefán Jón Hafstein heldur þorrablót með slátri og fjallagrasa-snafs að heiman. BLS. 6
ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2008
Ólafur verður með
Ólafur Stefáns-
son verður í
eldlínunni
á ný gegn
Þjóðverjum
í dag.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
STJÓRNMÁL Ólafur F. Magnússon, oddviti lista Frjáls-
lynda flokksins og óháðra, myndaði í gær meirihluta í
borgarstjórn Reykjavíkur með Sjálf stæðis flokknum.
„Við getum fullvissað ykkur um það að þetta
meirihlutasamstarf hvílir á traustum málefna legum
grunni,“ sagði Ólafur á blaðamannafundi sem nýr
meirihluti hélt á Kjarvalsstöðum klukkan sjö í
gærkvöld. Ólafur verður borgarstjóri á fyrri hluta
þess sem eftir er af kjörtímabilinu en Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, tekur við
borgarstjórastólnum að rúmlega ári liðnu. Vilhjálmur
verður formaður borgarráðs.
Þreifingar á milli Ólafs og sjálfstæðismanna hófust
um helgina. Samkomulag milli Vilhjálms og Ólafs
náðist þó ekki fyrr en seinni partinn í gær á fundi
heima hjá Kjartani Magnússyni, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins, við Hávallagötu.
Ólafur og sjálfstæðismenn hafa náð samkomulagi
um að Reykjavíkurflugvöllur verði sýndur í óbreyttri
mynd í aðalskipulagi á meðan rannsóknir standa yfir
vegna nýs flugvallarstæðis á höfuðborgar svæðinu.
Ólafur sagði ágreining hafa verið um flug völlinn og
verndun götumyndar við Laugaveg innan meirihluta
Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins, Vinstri
grænna og Frjálslynda og óháðra.
Vilhjálmur sagði þá Ólaf hafa góða reynslu af
samstarfi þeirra og traust ríkti á milli þeirra. „Nýr
meirihluti mun vinna saman á traustum grunni og
það ríkir samhugur um þau verkefni sem við höfum
náð samkomulagi um,“ sagði Vilhjálmur.
Svandís Svavarsdóttir, oddviti vinstri grænna,
sagði Sjálfstæðisflokkinn neyta allra meðala til að
komast að völdum. „Sjálfstæðismenn eru þeirrar
skoðunar að þeir eigi að vera í meirihluta og það sé
þeirra frumburðarréttur. Það er verulegt umhugs-
unar efni fyrir okkur sem erum félagshyggjufólk
hvort við getum nokkurs staðar staðið að því að
Sjálfstæðisflokkurinn fari með völd,“ sagði Svandís í
Ráðhúsi Reykjavíkur að loknum blaðamannafundi
nýmyndaðs meirihluta. - mh / sjá síðu 4
RÓSA GUÐMUNDSDÓTTIR
Kannski of gömul til
að vera að banka fólk
heilsa nám
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÞORRINN
Stefán Jón Hafstein etur
blóðmör í Namibíu
Sérblað um þorrann
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Vilja ná aukinni
samstöðu
Ungliðadeild
hjúkrunarfræðinga
stofnuð.
TÍMAMÓT 18
EGILL ÓLAFSSON
Þursarnir merkilega
lítið ryðgaðir
Óútgefið efni kynnt á 30 ára afmælinu
FÓLK 24
Endurnærður í Póllandi
Gunnar Þorsteinsson
lætur vel af detox-ferð
sinni til Póllands með
Jónínu Ben og fleiri
Íslendingum.
FÓLK 30
Hefur þú
auga fyrir
góðri hönnun?
A3 Sportback
STORMVIÐVÖRUN! - Nú með
morgninum verður suðaustan
stormur sunnan og vestan til. En í
dag verður hvassviðri eða stormur
víða um land. Rigning um mest allt
land en úrkomuminnst fyrir norðan.
Hiti 3-8 stig.
VEÐUR 4
Ólafur F. myndar
nýjan meirihluta
Sjálfstæðismenn og Ólafur F. Magnússon mynduðu í gær meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur. Ólafur verður borgarstjóri en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður
borgarráðs. Umhugsunarefni fyrir félagshyggjufólk segir Svandís Svavarsdóttir.
Í BRENNIDEPLI Hlutirnir gerðust hratt í gær þegar nýr meirihluti var myndaður í borgarstjórn Reykjavíkur. Ólafur F. Magnússon,
oddviti frjálslyndra og óháðra, og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti sjálfstæðismanna, sjást hér ganga inn á blaðamannafund á
Kjarvalsstöðum þar sem nýr meirihluti var kynntur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hvað á kennitalan að
heita?
Jónína Michaelsdóttir er ekki
lengur kona sem hefur tiltekna
kennitölu, heldur er hún kennitala
sem heitir Jónína.
Í DAG 16
Dagur B. Eggertsson:
Skipti án ástæðu
„Þetta kemur upp úr þurru,“
segir Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri. „Satt að segja
man ég ekki eftir að meirihluta-
skipti hafi áður orðið án ástæðu.
Við höfðum í okkar hópi farið
yfir málefni flugvallarins,
mis læg gatnamót á mótum
Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar og húsnæðismál.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ekki síst sótt að Ólafi undan-
farið.“ Dagur segist hafa heyrt
af myndun nýja meirihlutans
skömmu áður en tilkynnt var
um hann á blaðamannafundi. - jse