Tíminn - 16.06.1981, Blaðsíða 3
fréttir
Ríkisstjórnin fjallar í dag um hækkun á raforkuverði til Landsvirkjunar:
IÐNAÐARRAÐUN EYTH) LEGGUR
TIL17% GJALDSKRARH/EKKUN
■ A fundi rikisstjórnarinnar ár-
degis i dag verður tekin fyrir til-
laga frá iðnaðarráðuneytinu um
17% hækkun á gjaldskrá Lands-
virkjunar. Gjaldskrárnefnd hefur
fjallað um málið. Þar sem þessi
hækkunartillaga fer fram úr þeim
ársfjórðungsmörkum sem rikis-
stjórnin hefur sett sér i verðlags-
málum, verður hún að koma til
afgreiðslu rikisstjórnar.
Þrátt fyrir að rikisstjórnin leyfi
þessa 17% hækkun á gjaldskrá
Landsvirkjunar, kemur almennt
raforkuverð ekki til með að
hækka til neytenda. Kemur það til
af þvi, að 15. mars s.l. var heimil-
uð 10,6% hækkun á raforkuverði
rafveitna til að mæta auknum út-
gjöldum vegna diselkeyrslu við
raforkuframleiðslu. Varsú hækk-
un miöuðvið að kostnaður vegna
oliubrennslunnar næðist inn á
þremur mánuðum: Meiningin er
að sú hækkun gangi nú beint til
Landsvirkjunar, þar sem 17%
hækkun á raforku i heildsölu þýö-
ir um 10,6% hækkun á raforku i
smásölu.
Hér er um all-sérstæöa hækk-
unartillögu að ræða. í fyrsta lagi
kemur hún til afgreiðslu á miðju
ársfjórðungstimabili, en að öllu
jöfnu hefði ekki átt að afgreiða
næstu hækkunarbeiðni frá Lands-
virkjunfyrren l.ágúst n.k. 1 öðru
lagi er það fordæmalaust, a.m.k.
undanfarin misseri, að koma með
heildsöluverðshækkun, án þess að
smásöluaðilinn fái samsvarandi
hækkun.
Rafveiturnar telja sig i raun
eiga þá hækkun sem þær fengu 15.
mars s.l.., og benda á að hækk-
unarbeiðnir þeirra hljóti að hafa
verið afgreiddar með hliðsjón af
þvi 1. mais.l. Eiga þær erfitt með
að sætta sig við hina þröngu túlk-
un iðnaðarráðuneytisins á
hækkuninni frá 15. mars s.l.
Kás
Skeytagjald til
U.S.A. lækkar
um 28,2%!
■ Póst- og simamálastofnunir
hefur ákveðið að lækka orðagjald
i simskeytum til Bandarikjanna
frá og með 15. júni um 28,2%.
Lækkar orðagjaldið úr kr. 3,90 i
kr. 2,80. Þessi lækkun er til komin
vegna nýrra og hagstæðra samn-
inga viðsimfyrirtæki vestan hafs.
Fastagjald fyrir simskeytin
verður óbreytt áfram eða kr.
32,30, þannig aö hlutfallslega
verður minni lækkun á skeyta-
verði. Sem dæmi má nefna að
gjald fvrir io orða skeyti lækkar
um 15,4% i reynd.og gjaldfyrir 25
orða skeyti um 21,2%.
—JSG.
Veiðihornið
SAUTJÁN
PUNDA LAX
UR MEÐAL-
FELLSVATNI
■ Lax veiðist ávallt viö og við i
Meðalfellsvatni og nú um helg-
ina fékk Þorsteinn Indriðason
fallegan 17 punda lax úr vatninu
en það er óvenjulegt, bæði hvað
stærðina snertir og svo að fá
hann á þessum tima árs en yíir-
leitt fæst lax ekki að ráði þar
fyrr en seinni part sumars.
Þorsteinn var þarna að veiö-
um ásamt undirrituðum og
Jósef Smára Jósefssyni. Við
vorum nýbyrjaðir að veiða i
vesturenda vatnsins er laxinn
tekur, aðeins 8 metra undan
landi. Þorsteinn hélt fyrst að
þetta væri einhver tittur þvi
hann tók dræmt í færið i byrjun.
Hann hafði varla lokið við að
segja svo er fiskurinn rifur um
30 fet af linunni út og stekkur
siðan allur upp úr vatninu.
„Þetta er svaka bolti strák-
ar” kallaði Þorsteinn
Á eftir fylgdi nær hálftima bar-
átta við að landa laxinum og
vakti hún mikla athygli og undir
lokin voru rúmlega tugur
manna byrjaður að fylgjast
með.
Einn áhorfendana óð út i
vatnið er laxinn var byrjaður að
þreytast og beið þar til laxinn
var við fætur hans og tók hann
þá fagmannlega upp úr vatninu.
Þorsteinn var að vonum
ánægður með fenginn þvi hann
átti alls ekki von á að fá lax
þarna en hann tók á 12 gr. silfr-
aðan Toby spún.
„Þettaer • meiri hörku byrj-
unin á timabilinu hjá mér i ár”
sagði Þorsteinn er hann hafði
landað fisknum.
Veiðihornið hafði spurnir af
þvi að fyrr i vikunni höfðu
komið á land úr vatninu 4 laxar
en eins og áður sagði er óvenju-
legtað fá hann svona snemma á
sumrinu úr Meðalfellsvatni.
—FRl
■ Þorsteinn Indriðason með
laxinn. Tfmamynd Friðrik.
Danmerkurferó
fyrir draumaveró
með flugi, gistingu, flutningi til og frá flugvelli erlendis og íslenskri fararstjórn
frá kr. 1.680
Brottför 25. júní kl. 19.15—Heimkoma 30. júní kl. 21.00
Af sérstökum ástæðum getum við boðið upp á einstaklega
ódýra sex daga ferð til Danmerkur með gistingu í sumar-
húsum Dansk Folke Ferie. Ferðin erætluð félagsmönnum
í aðildarfélögum Samvinnuferða-Landsýnar og geta þeir
tryggt sér ferðina gegn framvísun félagsskírteinis og
greiðslu 500 króna staðfestingargjalds. Rétt er að panta
strax, sætaframboð takmarkast af einni flugferð og engum
sætum er unnt að bæta við.
Aðildarfélög
Alþýðusamband Islands (Alþýðuorlof)
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
Stéttarsamband bænda
Landssamband íslenskra samvinnustarfsmanna
Bandalag háskólamanna
Samband íslenskra háskólamanna
Gisting
Marielyst: Sumarhúsin í Marielyst standa við eina af allra
bestu baðströndum Danmerkur, syðst á eyjunni Falster.
Gilleleje: Sumarhús á norðurhluta Sjálands, í gullfallegu
landslagi við ágæta baðströnd.
Kaupmannahöfn - Hamborg
Það er auðvelt að láta sér líða vel allan tímann í sumar-
húsunum, en engu að síður verður efnt til stuttra
skoðunarferða og m.a. farið í dagsferð til Kaupmanna-
hafnar og sérstaka kvöldferð í Tívolfið í Kaupmannahöfn.
Tilvalið er einnig að skreppa yfir til Hamborgar og efnt
verður til annarra skoðunarferða ef áhugi er fyrir hendi.
Skelltu þér með í snaggaralega ferð til Danmerkur - það
hefur sjaldan verið auðveldara
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899