Tíminn - 16.06.1981, Qupperneq 4
Þriöjudagur 16: júnf 1981
CPPLYSINGAR
OG AÐSTOÐ
Höfum opnað aftur
i nýju húsnæði
Þökkum þeim sem veitt hafa aðstoð við
bygginguna
Verið velkomin og njótið þjónustu okkar
Söluturninn við Bústaðaveg
Lausar stöður
Staöa fulltrúa og staöa ritara á skrifstofu Tækniskóla ts-
lands eru lausar til umsóknar
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavik, fyrir 12. júli n.k.
Menntamálaráöuneytiö, 12. júni 1981
Auglýsing
um skoðun léttra bifhjóla
í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur
Mánudagur
Þriöjudagur
Fimmtudagur
Föstudagur
15. júni R-1 til R-250
16. júni R-251 til R-500
18. júni R-501 til R-570
19. júni R-751 til R-1025
Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda
daga við bifreiðaeftirlitið að Bildshöfða 8,
kl. 08:00 til 16:00.
Sýna ber við skoðun, að lögboðin vátrygg-
ing sé i gildi. Tryggingargjald ökumanns
og skoðunargjald ber að greiða við
skoðun.
Skoðun hjóla, sem eru i notkun i borginni,
er skrásett eru i öðrum umdæmum, fer
fram fyrrnefnda daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sinu til
skoðunar umrædda daga, verður hann lát-
inn sæta sektum samkvæmt umferðarlög-
um og hjólið tekið úr umferð hvar sem til
þess næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að
máli.
11. júni 1981
Lögreglustjórinn i Reykjavik.
fréttln
Simneiuinál leitt tii lykta eítis* íimmlán ára þól
.... r
bit;ii>iA licfiu iiu Vfiið vigi i svumiiiiliim Suiiiufitiilúliim-
K«>uú«j;ux hfitif xnxkuiA.nV .ið jmi Suniií-íobióAh ftirgi liii h;»h
cn skitii juiflkaðui .r> tktxigi i hlckkjuxo i K.«it|n>> \
k.xsi.iia. Joii >;»! <l.nmtux txl d.itiða a (fdv**r'*
.ii. eu |»;i vai Suiniefa. svstú \\J& 1 V '
^ fj&v* V
ba^sY
T-:»> .*v' &*£**<!£
.<iilt kvcA:
„ >v.uk«namxJ
il::!<ií Iti:
■ Um fyrri helgi, þegar
ungur maður frá Eyrar-
landi i Fljótsdalshreppi,
Sveinn Ingimarsson, var
að lita eftir kindum i
svonefndu Bessastaða-
árgili i Fljótsdal, gekk
hann þar fram á haus-
kúpu úr manni, og við
nánari athugun virtist
liggja þarna heil beina-
grind.
Arnar Jensson, lögregluvarð-
stjóri á Egilsstöðum, sagði að
t ÍRtntr Sumuiu i
;»f Ju'ixni risix.
Wiutit- j.'.ns
í ciu J»ví mAin níijáxi. » íx Síimicf.i
' .<» > slíktx haitii;» uíj.iiKÍ t ;íf. R.um
;ir iiji.i J».«u :»;í jxsst ;i» mxi.A !x»»|ti?i
I k tllpkius > ititiuhjú \ysh»»:».::»í»>
\íisbrcí.iiiMtm« rciiarfai.
Máh<»ck*!»iJ í-víu: ii.<u> \V
f ;<{ fa;\<r>XÍsivM:::?'U Simjicit
hrndm iimitmi i.« <»»<>»» » iu;» ;»r
[ jnift U-r ckkl ivrr <;. áiið l?r>i.
inrmiri >.u vikift i«.< <.»»:!».<•;«S
iux;«;< i<V.h»r h.tfnar. \ ú:i»«\<»x;
»<ki»< ií.ii!;u .1 rartnwvkii <* <1,
».::», i íiimt Siftúl.t h::|
imim fti V {»< }:<.•'. < S:!U»» J« >1:» ;»f
ysiUitiu fioiSu xrift <k«
<«r x«!«-;u |>j< fu< />■> <v,
» :» »»:cft< • <• »l<ft:r >•;<;« k «}i.:A
|>;iíin«iA<js;- ckki v»ð, ;«\ i:;<í.» v< (
irhhr i <Jú<»<«»ii, ciida fioiftti ;«.*
v< -- *
uxris í iut-siarrifí.
htm.uxits ls;:fti: : N* j.imiug J«»ir
}»<•<• lij .ru v>«r;;ii*y;:»:;»ft«»f M.«skúv! H »»» U u;m
<«< !*• >«•.>»•}«» s<í!uix:i;:ft;u- Jmxs- ! »>;<l Sxumvfit U'k:
’«»?! Joks ,«ipj> -«ft l ;u:»fs>l.uft::m I ! ii.utM<ft {J.Xl 't:
Mimufultiiiftil
j -j, f
* m ?
Urp 1 'T 3:
, rtMutJ
ú íjiJ^
■ Sunnefumálin vöktu mikla athygli á sinum tlma. Þessi úrklippa er
úr öldinni okkar.
Gömul mannabein fundust í
Bessastadaárgili í Fljótsdal:
ERU BEIN SUNN-
EFU FUNDIN?
þeir lögreglumenn þar hefðu þeg-
ar tilkynnt sýslumanni N-Múla-
sýslu um fundinn, þar sem svæði
þetta heyrir ekki undir Egils-
staðalögreglu, en sýslumaður
óskaði þess samt að þeir færu á
staðinn. Reyndust beinin liggja
undir hömrum þarna i gljúfrinu,
og hafði stórgrýti fallið úr hömr-
unum á fyrri tið, sem nú var orðið
grasgróið. Bendir það til þess að
beinin séu allgömul.
Tóku lögreglumenn með sér
þau beinin sem ofan á lágu, en
hrófluðu ekki frekar við staðnum,
þar sem ákveðið var að láta þjóð-
minjavörð vita af þeim. Sveinn
hafði sjálfur tekið með sér haus-
kúpuna, en á hana vantaði neðri
kjálka.
Skammt frá þeim stað i gilinu
þar sem beinin fundust, er hylur
sá sem Sunnefuhylur nefnist og er
til munnmælasaga þar eystra um
að þar hafi Sunnefa Jónsdóttir,
sem kunn er af hinum svonefndu
Sunnefumálum drekkt sér, — eða
þá að hún hafi orðið þarna úti, en
lik hennar mun ekki hafa fundist.
Þykir freistandi að giska á að
þarna kunni bein Sunnefnu að
vera fundin, en hún mun hafa lát-
ist 1757, tveimur árum áður en
endanlegur dómur var uppkveð-
inn á Alþingi i máli þeirra bróöur
hennar, sem alls var dæmt i þri-
vegis.
Þór Magnússon, þjóðminja-
vörður, vildi að vonum sem fæst
segja um þessa ágiskun. Sagði
hann að læknir hefði litið á beinin
sem eru mjög fúin og ætlað þau
vera frá siðustu öld, en þótt
nokkru geti skeikað, þegar dæma
á um slikt, eru þau örugglega
ekki svo gömul að bjóðminja-
safnið taki þau til varðveislu, en
til þess þyrftu þau að vera aftur
úr heiönum sið. Munu ýmsir
fræðimenn nú huga að hvort vitað
sé um mannskaða á þessum slóð-
um, sem skýrt gætu beinafund
þennan.
AM
Steingrfmur Hermannsson, sjávarútvegsrádherra:
Fréttasendingar á
morsi haf nar á ný
™,,Mér þykir ánægjulegt að geta
i dag tilkynnt, að fréttasendingar
með morsi verða teknar upp að
nýju”, sagði Steingrimur Her-
mannsson, sjávarútvegsráð-
herra, i ávarpi sinu á sjómanna-
daginn, en sem kunnugt er þá
hafa þessar sendingar legið niðri
nú um hrið vegna fjárskorts.
Steingrimur Hermannsson
sagöi i samtali við Timann að
fengist hefði aukafjárveiting til
aö standa straum af þessum
fréttasendingum og þvi hefði ver-
iö ákveðið aö koma þeim á aftur.
Steingrimur sagði i ávarpi sinu
að i ljós hefði komið að i vaxandi
mæli hefði verið reynt að leysa þá
nauðsynlegu þörf sem þessar
fréttasendingar eru með stutt-
bylgjusendingum útvarps, en i
ljós hefði komiö að það væri ekki
fullnægjandi.
Afi öðrum málum sem Stein-
grimur gat um i ávarpi sinu má
nefna oliuverö. Það kom fram i
máli hans að oliukostnaöur togar-
anna mun aö meðaltaii oröinn um
25% aflaverðmætis. Þvi væri við-
ast spáð að til lengri tima litið
myndi olian hækka i verði
a.m.k. 10%meiren verðbólga, og
ef fiskverð hækkar eins og verð-
lag almennt þá þýðir þetta að
oliukostnaður yrði orðinn um 45%
aflaverðmætis eítir 5 ár.
Þessu yrði að bregöast við
strax, og þvi sagðist Steingrimur
nú hafa látið hefja athugun á þvi
sem nefna mætti orkumál fisk-
veiðiflotans.
FRI
Verðmæti vertíðar-
aflans 12% minna
en í fyrra
■ Aflaverðmæti — metið á föstu
verðlagi — var 12% minna fyrstu
fjóra mánuði ársins en á sama
tima i fyrra og 7% minna en sömu
mánuði á árinu 1979, samkvæmt
yfirliti Þjóöhagsstofnunar um
framvindu efnahagsmála.
Samdráttur i afla á þessum
tima hefur i för með sér svipaðan
samdrátt á framleiðslu sjávaraf-
uröa, en mjög misjafnt eftir
greinum. Frysting botnfiskafurða
var nú um 20% minni, og fram-
leiðsla loönuafurða um 60%
minni. Saltfiskframleiðslan jókst
hinsvegarum 10% og mikil aukn-
ing varð á skreiðarframleiðslu.
Varðandi aðrar greinar þá er
álframleiöslan um 10% minni og
kí&iljárns um 26% minni. Fátt er
sagt vitað um framleiöslu i öörum
greinum þaö sem af er árinu.
—HEI.