Fréttablaðið - 04.02.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 50004. febrúar 2008 — 34. tölublað — 8. árgangur
RÚTUR SKÆRINGUR SIGURJÓNSSON
Öllum áhugamálunum
sinnt í einu horninu
heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
FASTEIGNIR
Allt á einni
hæð
Sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Bæði í músík og myndlist
Rútur slappar af í uppáhaldshorninu með heimilisköttinn Baktus í fanginu. Í glugganum má sjá indónesíska gítarinn og sjónvarp-
ið góða nýtist bæði sem kvikmyndatjald og tölvuskjár. Einnig glittir í skissur og málverk eftir Rút.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
SPRENGIDAGURINN
Saltkjöt og baunir er eldað
á flestum heimilum að
minnsta kosti einu
sinni á ári og því ágætt
að eiga potta og skálar
sem hæfa baunasúpunni.
HEIMILI 2
SMEKKLEGIR HÁFAR
Háfar þykja hið mesta
þarfaþing í öll eldhús sem
eitthvað eru notuð. Fyrst
voru þetta óttaleg ferlíki
en núna fást smekklegir
háfar sem fara vel með
öðru í eldhúsinu.
HEIMILI 3
UPPLÝSINGAR O
is
ing Mjódd
Staðsetning í Mjódd
www.ovs.is
upplýsingar og innritun í síma 588-1414
Vinnuvélanámskeið
Næsta námskeið hefst
8. febrúar n.k.
fasteignir 4. FEBRÚAR 2008
Tvær innbyggðar upp-
þvottavélar í eldhúsinu
Húsið að Furuvöllum 2 er 211 fermetrar að stærð en þar af er bílskúrinn 26 fermetrar.
Bóas
Sölufulltrúi
699 6165
boas@remax.is
Gunnar
Sölufulltrúi
899 0800
go@remax.is
Þórarinn
Jónsson Hdl.
Löggiltur
fasteignasali Hringdu núna 699 6165
Verðmetum FRÍTT fyrir þig!
Norðurbraut 1, 220 Hafnarfjörður
OPIÐ HÚS
Í DAG MILLI
KL. 18.30 – 19.00
Verð 41.900.000
Verð 59.900.000
Smárarimi 27, 112 Reykjavík
ÁSGEIR FRIÐGEIRSSON
Var stuðnings-
maður Liverpool
Fagnaði sigri á sínu gamla félagi.
FÓLK 30
MÁNUDAGUR
Frá upphafi til enda
Kristín Magnússon starfaði í sjávar-
útvegsráðuneytinu frá stofnun
þess árið 1970 og þar til það
var sameinað landbúnaðar ráðu -
neytinu nú um áramót.
TÍMAMÓT 16
Heath var
háður kókaíni
Ástralski leikarinn
átti við fíkniefna-
vanda að stríða.
FÓLK 25
FÓLK Upplýst var í gær hver
morðinginn í sjónvarpsþættinum
Pressu er. Reyndist það vera
fjármálastjórinn Davíð Ólafsson
sem leikinn er af hinum þrítuga
Höskuldi Sæmundssyni, starfs-
manni Landssambands æskulýðs-
félaga. Höskuldur segir að það
hafi verið einna erfiðast að þurfa
að þegja yfir þessu í það hálfa ár
sem liðið er síðan tökum lauk á
sjónvarpsþáttaröðinni. „Reyndar
komu bróðursynir mínir með
þessa kenningu strax eftir þriðja
þátt og fóru að kalla frænda sinn
öllum illum nöfnum,“ segir
Höskuldur. - fgg / sjá síðu 30
Morðinginn í Pressu:
Kallaður öllum
illum nöfnum
af bróðursonum
Vonarstjörnur
þessa árs
Verður Steed Lord
næsta Sprengjuhöllin?
FÓLK 24
Hvöss norðanátt Úrkoma verður
víða um land og hiti yfir frostmarki
sunnan- og austanlands.
VEÐUR 4
SKEMMTANIR „Það er ýmislegt sem menn gleyma
þegar þeir fara út að skemmta sér,“ segir Jón
Jónsson, ritstjóri á strandir.is, um eftirmál þorra-
blótsins sem haldið var á Hólmavík á laugardags-
kvöld.
Meðal fjölmargra muna sem gestir skildu eftir sig
voru falskar tennur. „Ég hugsa að tennurnar séu
komnar til skila núna og held reyndar að menn hafi
þóst vita hver átti þær,“ segir Jón.
Tennurnar voru langt í frá einu óskilamunirnir og
voru húsverðir í félagsheimilinu fram eftir degi í
gær að afhenda þá eigendum sínum. Jón segir að fólk
hafi gleymt töskum, sjölum, jökkum, kápum og
höfuðfötum að ógleymdum skóm og símum.
„Það er óhætt að segja að þetta var feikigott ball.
Við vorum með hljómsveitina Kokteil. Hún er skipuð
tónlistarmönnum frá Hólmavík og Raufarhöfn sem
eru vinabæir. Það er alltaf mikið stuð þegar þeir
spila,“ segir Jón. Um mánuði eftir þorrablótið, sem
konurnar á Hólmavík sjá um, annast karlarnir mikla
góugleði. „Þá hugsa ég að síðustu óskilamunirnir frá
þorrablótinu komist til skila,“ segir Jón Jónsson. - gar
Hólmvíkingar viðskila við ótalmargt á ærlegri skemmtun í félagsheimilinu:
Gleymdi tönnunum á þorrablóti
UMHVERFISMÁL Það mun taka
lífríki Varmár í Hveragerði
nokkur ár að jafna sig eftir
klórlekann mikla sem varð frá
sundlauginni í Laugaskarði í
nóvember. Þetta mun vera ein af
niðurstöðum skýrslu Veiðimála-
stofnunar sem nú er tilbúin og
verður gerð opinber síðar í
vikunni eftir að bæjarstjórn
Hveragerðis hefur kynnt sér
innihaldið. Eins og kunnugt er
drapst allur fiskur sem var í ánni
neðan sundlaugarinnar þegar
klórinn lak í ána. Enn er ólokið
rannsókn á botndýrum sem eru
hluti fæðu fiskanna í Varmá. - gar
Skýrsla Veiðimálastofnunar:
Varmá nokkur
ár að jafna sig
LAUGASKARÐ Meðferð klórs hefur verið
breytt við sundlaugina í Laugaskarði.
MYND/EGILL
Stjörnusigur
Stjarnan
byrjar vel eftir
EM-fríið og
sótti góðan
sigur í
Digranesið
gegn HK í gær.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG
SLYS Karlmaður á sextugsaldri
skreið fótbrotinn í klukkustund
eftir hjálp þegar hann velti vél-
sleða við Landmannahelli seint í
fyrrakvöld. Fyrir tilviljun var
Flugbjörgunarsveitin á Hellu í fjöl-
skylduferð í næsta nágrenni, og
kom manninum til aðstoðar. Flogið
var með hann til Reykjavíkur þar
sem hann gekkst undir aðgerð.
„Maðurinn var í hópi sem gisti í
öðrum skála. Að því er ég best veit
var hann að keyra seint um kvöldið
og velti sleðanum yfir sig þannig
að hann fótbrotnaði illa,“ segir
Svanur Sævar Lárusson, formaður
björgunarsveitarinnar. „Hann
komst í skálana eftir að hafa skrið-
ið í klukkutíma eða svo. Við vorum
með okkar færasta fólk í fyrstu
hjálp á staðnum, sem sinnti
honum.“
Svanur segir manninn hafa verið
illa leikinn og örmagna. Fóturinn
hafi brotnað á að minnsta kosti
tveimur stöðum, og eitt beinbrot-
anna opið. Hann hafi ekki getað
komið upp orði heldur klórað í
ferða félaga sína til að vekja þá.
Slysið varð um miðnætti og barst
tilkynning til lögreglu um klukkan
hálf tvö. Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar fór í loftið tæpum klukkutíma
síðar. Þegar hún hafði nálgast
Landmannahelli var veður og
skyggni það slæmt að hún gat ekki
lent. Því var ákveðið að keyra slas-
aða manninn á snjóbíl björgunar-
sveitarinnar að Búrfelli, þar sem
þyrlan gat lent. Að því loknu var
ekið með hann að þyrlunni, sem
lagði af stað til Reykjavíkur um
klukkan sjö í gærmorgun.
Maðurinn gekkst undir aðgerð í
gær og líður eftir atvikum. Hann
var það þrekaður að hann treysti
sér ekki til að tala við blaðamenn.
Svanur segir sveitina hafa verið
í svokallaðri vetrarferð, þar sem
börnum er leyft að koma með til að
sjá um hvað björgunarstarf snúist.
Það hafi svo sannarlega tekist, þó
að þau hafi flest sofið atburði
næturinnar af sér. - sþs / sjá síðu 4
Skreið í klukkutíma
með opið beinbrot
Karlmaður í vélsleðaferð skreið með opið beinbrot í klukkustund eftir hjálp.
Björgunarsveit var í fjölskylduferð í næsta skála og kom manninum til hjálpar.
BOLLA, BOLLA Bolludagurinn er í dag en fjölmargir hafa tekið forskot á sæluna og keypt sér bollur undanfarna daga. „Það hefur
verið nóg að gera frá því við fengum allar tegundirnar á föstudag og reyndar tóku allnokkrir vel við sér á þriðjudag þegar við
fengum smá sýnishorn“ segir Sólborg Guðmundsdóttir, verslunarstjóri Bakarameistarans í Glæsibæ. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN