Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 2
2 19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Ekki tókst að afla
allra gagna í strokumáli Annþórs
Kristjáns Karlssonar í gær, að sögn
Geirs Jóns Þórissonar yfirlögreglu-
þjóns. Þau liggja væntanlega fyrir í
dag og verður þá farið yfir málið í
heild.
Annþór var færður til geymslu í
lögreglustöðinni við Hverfisgötu á
fimmtudag. Var það gert til
hagræðingar við fangaflutninga,
því hann átti að mæta fyrir dómara
vegna kröfu lögreglustjóra um
framlengingu á gæsluvarðhaldi. Á
föstudag þurfti einnig að flytja hóp
fanga frá Litla-Hrauni til Reykja-
víkur þar sem kveðinn var upp yfir
þeim dómur í Pólstjörnumálinu. - jss
Strokumál Annþórs:
Enn verið að
afla gagna
BRETLAND, AP David Miliband,
utanríkisráðherra Bretlands, birti
í gær áður óbirt drög að skýrslu
um Írak sem upphaflega birtist
haustið 2002.
Í drögunum er hvergi að finna
þá fullyrðingu, sem stóð í
endanlegu skýrslunni, að Írakar
séu færir um að skjóta á loft
gereyðingarvopnum með aðeins
45 mínútna fyrirvara. Breska
stjórnin notaði þessa klausu
óspart til að rökstyðja nauðsyn
þess að gera innrás í Írak haustið
2003.
Gagnrýnendur hafa sagt að
starfsfólk á skrifstofu Tonys
Blair, þáverandi forsætisráð-
herra, hafi bætt þessari fullyrð-
ingu inn á síðustu stundu. - gb
Drög að Íraksskýrslu Breta:
Hvergi minnst
á úrslitaatriðið
DÓMSMÁL Nítján ára stúlka hefur
verið dæmd í þrjátíu daga
skilorðsbundið fangelsi fyrir
líkamsárás. Hún skallaði sautján
ára stúlku í andlitið fyrir utan
skemmtistaðinn Tropicana við
Stórhöfða í Reykjavík í lok janúar.
Fórnarlambið marðist á vinstri
augabrún og hnakka.
Stúlkan sem réðst á hina hafði
áður verið dæmd fyrir sams konar
líkamsárás í maí 2006. Þá var
refsingu frestað skilorðsbundið í
tvö ár, en sá dómur var tekinn upp
á ný við ákvörðun refsingar í
þessu máli. Hún var þar að auki
látin greiða sakarkostnað, rúmar
tuttugu þúsund krónur. - sþs
Nítján ára sett á skilorð:
Ýtti stúlku og
skallaði hana
LÖGREGLUMÁL „Maður er ekki alveg
rólegur að vita að eitthvað svona
geti verið á ferðinni,“ segir Hall-
dór Sigurkarlsson í Söðulsholti í
Eyja- og Miklaholtshreppi. Hann
gekk fram á dauða hryssu í stóði
nágranna síns á Rauðkollsstöðum
í síðustu viku. Þegar betur var að
gáð sást að hún hafði verið skotin
með riffli í gagnaugað. Hryssan
var fylfull.
„Ég hélt að hún hefði veikst,“
bætir Halldór við. „Þetta er það
síðasta sem manni dettur í hug.
Það uppgötvaðist ekki fyrr en
strákur hér á næsta bæ ætlaði að
fara að grafa hana, að blóð lak úr
nösunum á henni. Farið var að
skoða hana nánar og þá kom skot-
gatið í ljós í gagnauganu á henni.“
Halldór kveðst vera með dýrar
skepnur og efnileg tryppi í stóðinu
í Söðulsholti og fólk sé uggandi
eftir þennan atburð.
„Við vorum alveg grandalausir
fyrir þessu og sáum ekki strax
hvað var. Við töldum að hrossið
hefði drepist í stóðinu eins og ein-
staka sinnum getur gerst,“ segir
Auðunn Óskarsson á Rauðkolls-
stöðum, eigandi hryssunnar. Hún
var sex vetra ræktunarhryssa
undan hinum nafntogaða stóðhesti
Toppi frá Eyjólfsstöðum. Auðunn
segir að búið hafi verið að temja
hana og kosta nokkru til við hana.
Hann gaf hrossunum út fyrir
ofan bæinn og hryssan lá dauð í
haganum um það bil fimmtíu
metra frá þjóðveginum.
Auðunn segir menn hafa verið
að gera því skóna að skyttur hafi
villst á hryssunni og ref, hafi hún
verið liggjandi. Mögulegt sé talið
að þarna hafi verið á ferðinni
menn á ljósaveiðum, sem keyrt
hafi með ljóskastara í leit að
refum. Þá er skotið á augað sem
glampar í kastljósinu.
Viðmælendur Fréttablaðsins
hafa bent á að veiðar af þessu tagi
séu ólöglegar. Bannað sé að skjóta
úr bíl. Þá megi ekki skjóta í byggð
nema með leyfi landeiganda.
„Maður skilur ekki hugsun
þeirra sem þarna hafa verið að
verki. Það er óskiljanlegt hvað
menn eru að þvælast með skot-
vopn í svartasta skammdeginu og
hundleiðinlegu veðri eins og var á
þessum tíma,“ segir Auðunn, sem
tilkynnt hefur atburðinn til lög-
reglu. - jss
Fylfull hryssa fannst
skotin í haganum
Þeim brá við, mönnunum í Eyja- og Miklaholtshreppi þegar þeir hugðust grafa
hryssu sem þeir töldu að hefði orðið sjálfdauð í haganum. Blóð tók að renna úr
nösum hennar við raskið og við nánari athugun sást skotgat á gagnauga hennar.
ÚTIGJÖF Hrossin voru á útigjöf þegar hryssan var skotin. Hún fannst liggjandi rétt við þjóðveginn. Fyrst var talið að hún hefði
orðið sjálfdauð en það reyndist öðru nær. FRÉTTABLAÐIÐ/ÚR SAFNI
Stefán, er ekki hreint rugl að
þrífa svona mikið?
„Jú, það er allt best í hófi. Val á
réttum hreinsiefnum og áhöldum er
hreinlega aðalmálið.“
Stefán Ingi Óskarsson hreinlætisráðgjafi
segir hægt að ná ótrúlegum árangri við
þrif á aðeins 25 mínútum áður en gesti
ber að garði.
UTANRÍKISMÁL Íslenskir húmanistar
hittust fyrir framan utanríkisráðu-
neytið í gær. Þeir afhentu ráðu-
neytisstjóra í fjarveru ráðherra
bréf með afstöðu Húmanistahreyf-
ingarinnar í Kenía til ástandsins
sem ríkt hefur í landinu undan-
farið.
Húmanistar kalla eftir því að
ofbeldið í Kenía verði stöðvað eins
fljótt og mögulegt er, að því er
fram kemur í tilkynningu.
Athöfnin í gær var hluti af
alþjóðlegri aðgerð húmanista, sem
reyna að þrýsta á deiluaðila í
Kenía, ríkisstjórnir og alþjóða-
stofnanir að bregðast við. - bj
Húmanistar skrifa ráðherra:
Ofbeldi í Kenía
verði stöðvað
NEYÐARKALL Húmanistar komu sér fyrir
við utanríkisráðuneytið í gær með borða
sem á stóð „SOS KENÍA“. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
mikla í Nóatúni!
Fiskivikan
Steinbítur
í mango curry Nóatún mælir með
998 kr.kg.
SKIPULAGSMÁL „Það er bara búið
að vera stappað,“ segir Guja Dögg
Hauksdóttir, sýningarstjóri sýn-
ingarinnar Vatnsmýrin – hug-
myndir um borg
sem nú stendur
yfir í Listasafni
Reykjavíkur.
„Svona skipu-
lagsplaköt með
línum og strik-
um geta verið
nokkuð tormelt
fyrir fólk svo
þegar ég tók
sýninguna að
mér ákvað ég
að reyna gæða
þetta lífi með viðburðum eins og
pallborðsumræðum, sviðsettu
uppboði og öðru slíku.“ Uppboðið
fór þannig fram að fólk gat keypt
lóðir í Vatnsmýrinni en miðað var
við það skipulag sem fylgir vinn-
ingstillögunni. „Reyndar fór svo
að einn sem var á móti því að
færa flugvöllinn reyndi að kom-
ast yfir sem flestar lóðirnar svo
hann gæti tryggt flugvöllinn í
sessi en hann gafst svo upp að
lokum,“ segir Guja Dögg.
„Þess má geta að þeir sem eiga
vinningstillöguna eru fjórir Skot-
ar sem heita Graeme Massie, Stu-
art Dickson, Alan Keane og Tim
Ingleby. Þeir eru farnir að setja
mark sitt á byggð ból hér á landi
en þeir áttu einnig vinningstillög-
una á framtíðarskipulagi á Akur-
eyri árið 2005, svo þau virðast
nokkuð glögg þessu skosku gests-
augu,“ segir hún kankvís.
Vegna mikillar aðsóknar hefur
verið ákveðið að hafa sýninguna
opna til klukkan tíu að kvöldi mið-
vikudags og fimmtudags. „En
sýningunni lýkur á fimmtudag
enda verðum við að rýma fyrir
rjúkandi pottum sem fylgja Food
and fun sem byrjar á laugardag-
inn. Ef það væri ekki á dagskrá
myndum við sennilega bara fram-
lengja þetta því fólk er greinilega
mjög áhugasamt um þetta.“
- jse
Sýningin Vatnsmýrin – hugmyndir um borg nýtur vinsælda:
Mikill áhugi á Vatnsmýrinni
ÚR VATNSMÝRINNI Mikill áhugi er hjá
fólki að kynna sér framtíð Vatnsmýrar-
innar. Mönnum gengur þó sitthvað til
eins og sannaðist á sviðsettu uppboði
þegar maður reyndi að kaupa sem flest-
ar lóðir til að tryggja flugvöllinn í sessi.GUJA DÖGG
HAUKSDÓTTIR
FRAKKLAND, AP Meira en þúsund
lögreglumenn fóru á stúfana eld-
snemma í gærmorgun og hand-
tóku tugi manna í nokkrum
úthverfum Parísar. Hinir hand-
teknu eru flestir á þrítugsaldri og
sakaðir um aðild að óeirðunum
þar í nóvember síðastliðnum.
Lögreglan fór hús úr húsi,
braut upp hurðir og óð inn í íbúð-
ir í hverfunum Villiers-le-Bel,
Sarcelles, Gonesse og Arnouville,
þar sem innflytjendur eru í meiri-
hluta.
Alls voru 35 manns handteknir
og höfðu flestir þeirra áður kom-
ist í kast við lögregluna fyrir
ofbeldisglæpi.
Gagnrýnendur segja aðgerðirn-
ar sýndarmennsku eina, ætlaða til
þess að styrkja stöðu Nicolas Sar-
kozy forseta fyrir sveitarstjórnar-
kosningar í næsta mánuði.
Lögreglan býst við að þessar
harkalegu aðgerðir kalli á frekari
óeirðir næstu daga. Í gærkvöld
voru því hundruð lögreglumanna í
Villiers-le-Bel viðbúnar því að
lenda í átökum.
Miklar óeirðir brutust út í
Villiers-le-Bel, skammt norðan við
París, og næstu hverfum dagana
25. og 26. nóvember eftir að tveir
unglingspiltar á vélhjóli létust í
árekstri við lögreglubifreið.
- gb
Lögreglan í Frakklandi réðst til atlögu gegn ungum innflytjendum í París:
Tugir manna handteknir
VÍGALEGIR Hópur lögreglumanna á ferð
í Villiers-le-Bel í gær. NORDICPHOTOS/AFP
SVEITARSTJÓRNIR Laun bæjarstjór-
ans í Fjallabyggð, Þóris Kr.
Þórissonar, hafa verið hækkuð úr
700 þúsund krónum í 800 þúsund
auk þriggja
prósenta
verð lags-
hækkunar.
„Það er í
hæsta máta
óeðlilegt og
óheppilegt að á
þessum
tímapunkti séu
laun hans
hækkuð svo
langt umfram
almennar launahækkanir,“ segir
minnihlutinn í bæjarstjórn Fjalla-
byggðar.
Meirihlutinn segir hins vegar
að samanburður á launakjörum
bæjarstjóra á Norðurlandi hafi
sýnt að bæjarstjóri Fjallabyggð-
ar fengi umtalsvert lægri laun en
aðrir bæjarstjórar. - gar
Bæjarstjórinn í Fjallabyggð:
Launin hækka
um 100 þúsund
ÞÓRIR KR.
ÞÓRISSON
SPURNING DAGSINS