Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 10
10 19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
BANDARÍKIN, AP George H.W. Bush
eldri, sem var forseti Bandaríkj-
anna 1989-93, lýsti í gær yfir
stuðningi við John McCain í
prófkjörsbaráttu Repúblikana-
flokksins um útnefningu sem
forsetaefni flokksins.
Bush sagði McCain hafa
„mótast í deiglu stríðs“ og sagðist
telja hann best búinn undir það að
leiða bandarísku þjóðina á
komandi árum.
McCain sagðist stoltur af því að
njóta stuðnings frá Bush eldri.
McCain hefur hins vegar
harðlega gagnrýnt núverandi
forseta, George W. Bush yngri.
- gb
George Bush eldri:
Styður McCain
sem forsetaefni
SAMGÖNGUR Áform nýs meirihluta
í borgarstjórn, um að gefa öllum
börnum, öryrkjum og öldruðum
frítt í strætó, gætu þýtt að prenta
þyrfti 30.000 persónuskilríki fyrir
yngsta aldurshópinn, að sögn
Reynis Jónssonar, framkvæmda-
stjóra Strætós.
Áformin hafa reyndar enn ekki
verið kynnt fyrirtækinu en Reynir
kveður stjórnmálamennina hljóta
að gera það, fyrr en síðar.
Verði þau að veruleika fá flestir
Reykvíkingar frítt í vagninn, utan
hrausts, ungs og vinnandi fólks.
Ármann Kr. Ólafsson, stjórnar-
maður Strætós, hefur lýst því yfir
að hægt væri að spara um fimmtíu
milljónir árlega með því að láta af
innheimtu fargjalda. Reynir stað-
festir að ýmis vandkvæði fylgi því
að aðeins einn hópur þurfi að
borga. Til dæmis þarf að prenta
áðurnefnd skilríki fyrir alla hina.
Að auki mun bannað, samkvæmt
lögum um persónuvernd, að
afhenda börnum persónuskilríki
án skriflegs samþykkis foreldra.
Þá mun fólk, sem starfar að lýð-
heilsumálum, óttast um að hætta
sé á að börnin hætti að hreyfa sig
og taki bara strætó í staðinn.
Síðast en ekki síst hafa nokkrir
foreldrar látið í ljósi áhyggjur af
því að gefa eigi börnunum frítt í
strætó. Afkvæmin geti þá ferðast
frjáls með strætó, hvenær sem er
og hvert sem er. - kóþ
Ýmsar flækjur fylgja því að gefa yngsta aldurshópnum frítt í strætó:
Börnin vantar 30.000 skilríki
LEIÐ 15 ÚR GRAFARVOGI Áhyggjufullir
foreldrar hafa látið í sér heyra vegna
hugmyndar um að gefa öllum börnum
frítt í strætó. Börnin geta þá ferðast á
eigin vegum frá Seltjarnarnesi og allt
upp á Akranes. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HUGLEIÐA FRAMTÍÐ BORGAR
Fimmtíu rúmum var í gær komið fyrir
á torginu Grote Markt í Groningen
í Hollandi til þess að fólk gæti lagst
þar til hvílu stundarkorn og íhugað
framtíð borgarinnar. NORDICPHOTOS/AFP
! "##$%& !
'&
()*
+ *, % )"# &+ -.
-/
& & ) , ,01&1)!. )
,01 2 ), &,3' 4 3!
6 3' , &, ! "##7
89 &) 1! "##7
5%( ,)& 9),& & ) !!"##7
()&1) ! ,01,2 ) -/
) 3' , 3 &
9)3'
9)&9 2 )
5%( ,0'3' 14 3(:,
) , , ):;&) 3'
) , &,3' < !&) ,:
=,!
%4 & 9) )(), ,%& & (,&
,9 ,(,0& ! ! ->?-.! &) &)
)(), 9) %4 & %& 4 -.
)! *& &) ()*!&)2 )*6 3'
9)6 &9 & ))3 ,, (,6!3 "*
@ 4 A&)()&&) )&)&)!BBB )
3'
Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is
360.000,- kr.AFSLÁTTURFullt verð kr. 1.360.000,-
Tilboð kr. 1.000.000,-
Árgerð: 2006
Aukahlutir: Grjótgrind, tvöföld
gaskútafesting og skyggni
STÓRLÆKKAÐ VERÐ ÁNOTUÐUM FERÐAVÖGNUMYearling 103 fellihýsi
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið
SLYS Átján ára drengur slasaðist
alvarlega í hörðum árekstri fólks-
bíls við hús á Akranesi um klukk-
an þrjú í gær. Honum var haldið
sofandi í öndunarvél á gjörgæslu-
deild Landspítalans þegar Frétta-
blaðið fór í prentun. Ökumaður-
inn, einnig átján ára, slapp án
alvarlegra meiðsla.
Samkvæmt lögreglu var bíln-
um ekið norður Vesturgötu þegar
ökumaður missti stjórn á honum,
fór yfir steinvegg og hafnaði á
hlið húss. Höggið var svo þungt
að hluti veggjarins þeyttist inn í
íbúðina, sem var mannlaus. Bíll-
inn er gjörónýtur.
Piltarnir voru báðir með-
vitundar lausir þegar lögregla kom
að, en hvorugur var með bílbelti.
Þeir voru fluttir á Sjúkrahúsið á
Akranesi, en þaðan var farþeginn
fluttur á Landspítalann í Reykja-
vík til frekari aðhlynningar.
Að sögn bæjarlæknis á Akra-
nesi er ökumaðurinn með meðvit-
und og líður bærilega.
Orsakir slyssins eru ekki ljósar,
og er lögreglurannsókn hafin.
Vitað er að ökumaðurinn tók fram
út öðrum bíl skömmu áður en
slysið varð. Vegurinn var einnig
blautur þegar bíllinn fór út af.
- sþs
Átján ára drengur þungt haldinn eftir harðan árekstur:
Fór af veginum og
hafnaði á húsvegg
ÓNÝTUR Eins og sjá má er bíllinn, sem er af BMW-tegund, gjörónýtur eftir árekstur-
inn. Stórt gat kom á húsvegginn þar sem bíllinn lenti, en íbúðin fyrir innan var
mannlaus. MYND/SKESSUHORN