Fréttablaðið - 19.02.2008, Side 35
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2008 19
Friðrik Ómar söngvari segir
að á bak við nafnið sem hann
beri sé skemmtileg saga.
„Faðir minn var mikill skák-
maður og skemmti mikið á
árshátíðum í sveitinni í gamla
daga. Hann hefur því alltaf
átt tvær fyrirmyndir, þá Frið-
rik Ólafsson skákmeistara og
Ómar Ragnarsson skemmti-
kraft og ég er skírður í höfuð-
ið á þessum tveimur mönn-
um“ segir Friðrik.
Í hvert skipti sem Friðrik
hittir Ómar Ragnarsson segir
hann að Ómar kalli hann
nafna og Friðrik telur sjálfan
sig góðan skemmtikraft og
ekki verri skákmann. Friðrik
er afar sáttur við nafn sitt og
gæti ekki hugsað sér að bera
annað nafn.
Friðrik segist eitt sinn
hafa kynnt sér hvað nafn sitt
þýddi. „Friðrik þýðir friðar-
höfðingi eða konungur og
það passar mjög vel við mig
því ég vill alltaf halda frið-
inn. Svo leyfi ég mér að vera
konungur í hjáverkum,” segir
Friðrik að lokum og hlær.
NAFNIÐ MITT: FRIÐRIK ÓMAR
Heitir eftir tveimur fyrirmyndum föður síns
FRIÐRIK ÓMAR Er
ánægður með nafnið
sitt.
Jazzklúbburinn Múlinn held-
ur áfram starfsemi sinni með
nýrri fimmtán tónleika dag-
skrá. Fyrstu tónleikar vor-
tónleikaraðar verða fimmtu-
daginn 21. febrúar á DOMO
Bar, Þingholtsstræti 5.
Fyrstu tónleikar á vor-
önn eru til heiðurs djassgít-
aristanum Jóni Páli Bjarna-
syni sem varð 70 ára gamall
á dögunum. Á tónleikunum
munu margir af helstu djass-
leikurum þjóðarinnar leika
með Jóni sem er einn þekkt-
asti djassgítarleikari Íslands
fyrr og síðar að því er fram
kemur í fréttatilkynningu
frá klúbbnum.
Jazzklúbburinn Múlinn er
samstarfsverkefni Félags
íslenskra hljómlistarmanna,
FÍH og Jazzvakningar.
Klúbburinn heitir í höfuðið
á helsta djassgeggjara þjóð-
arinnar, Jóni Múla Árnasyni,
sem jafnframt var heiðurs-
félagi og verndari Múlans.
Múlinn er styrktur glæsi-
lega af Reykjavíkurborg og
Tónlistarsjóðnum að því er
fram kemur í fréttatilkynn-
ingu.
Afmælistónleikar til heið-
urs Jóni Páli hefjast 21.00 á
fimmtudaginn næstkomandi
á DOMO og er þúsund króna
aðgangangseyrir.
Tónleikar vegna
afmælis Múlans
DJASSGEGGJARI Jón Páll Bjarnason er einn þekktasti djassgítarleikari
fyrr og síðar.
Háskóli Íslands veitir í dag
í fyrsta sinn sameiginlega
doktorsgráðu með erlend-
um háskóla.
Mathieu Fauvel verður
heiðursins aðnjótandi en
hann varði doktorsverkefn-
ið í verkfræði við Grenoble
Institute of Technology,
INPG, hinn 28. nóvember.
Verkefnið var unnið undir
sameiginlegri handleiðslu
leiðbeinenda frá INPG og
Háskóla Íslands. Fauvel
flytur doktorsfyrirlestur
sinn í Háskóla Íslands í dag
kl. 15, í Aðalbyggingu HÍ,
hátíðarsal. Að loknum fyrir-
lestrinum mun Ebba Þóra
Hvannberg, forseti verk-
fræðideildar, veita Fauvel
doktorsskírteini frá verk-
fræðideild Háskóla Íslands
Doktorsverkefnið ber tit-
ilinn „Spectral and Spatial
Methods for Classification
of Urban Remote Sensing
Data“ og fjallar um þróun
aðferða til greiningar yfir-
borðs jarðar með flokk-
un fjarkönnunarmynda frá
þéttbýlissvæðum.
Verkefnið var meðal
annnars stutt af Jules
Verne-áætlun íslenskra
og franskra stjórnvalda,
PAI EGIDE, Rannsókna-
sjóði Háskóla Íslands og
Rannsóknasjóði vísinda- og
tækniráðs.
Sameiginleg
doktorsgráða
FRÖNSK ÍSLENSK DOKTORSGRÁÐA Franski doktorsneminn Mathieu
Fauvel fær fyrstu sameiginlega doktorsgráðuna.
Ástkær bróðir okkar,
Benedikt Jónasson
Munkaþverárstræti 44, Akureyri,
er látinn.
Útför auglýst síðar.
Jóna S. Jónasdóttir
Jónas Jónasson
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn Bjarnason
andaðist á Hrafnistu laugardaginn 9. febrúar síðast-
liðinn. Bálför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks
á Grensás og Hrafnistu fyrir hlýhug og einstaka
umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristlaug Vilfríður Jónsdóttir
og fjölskylda.
Okkar ástkæri
Jón Hilmar Jónsson
líffræðingur frá Úthlíð,
Sléttuvegi 3, Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 16. febrúar sl.
Gísli Sigurðsson Jóhanna Bjarnadóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Björn Sigurðsson
Sigrún Sigurðardóttir Guðmundur Arason
Kristín Sigurðsson Werner Rasmusson
Baldur Sigurðsson Kristbjörg Steingrímsdóttir
Guðný Guðnadóttir.
Okkar ástkæra
Nikolína Helgadóttir
frá Suður-Vík
lést á heimili sínu að Kumbaravogi miðvikudaginn
13. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu
fimmtudaginn 21. febrúar kl. 15.00.
Matthildur Valfells
Sigríður Ásgeirsdóttir
Vigfús Ásgeirsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Steingrímur Helgason
stórkaupmaður,
lést á dvalarheimilinu Eir að morgni 17. febrúar.
Verður jarðsunginn frá Langholtskirkju fimmtudaginn
21. febrúar kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er
bent á minningarsjóð FAAS (alzheimer.is)
Unnur Heba Steingrímsdóttir Nikulás Róbertsson
Helga Guðrún Steingrímsdóttir Eiríkur Hauksson
Jón Hólmgeir Steingrímsson Soffía Hilmarsdóttir
Ingunn Steingrímsdóttir
og barnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hörður Guðmundsson
hárskerameistari, Funalind 13, Kópavogi,
áður til heimilis í Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
22. febrúar kl. 15.00.
Rósa Helgadóttir
Helga Harðardóttir
Halla Harðardóttir
Þóra Harðardóttir Sigurgeir Þorleifsson
Inga Sigríður Harðardóttir Gunnar Guðjónsson
og barnabörn.
Elskulegur sonur okkar, bróðir, frændi og
vinur,
Finnur Freyr Guðbjörnsson
Kirkjuvegi 5, Keflavík,
lést á sjúkrahúsi í Taílandi þann 7. febrúar síðastliðinn.
Útför hans verður gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mið-
vikudaginn 20. febrúar klukkan 14.00.
Guðbjörn Ragnarsson Stefanía Finnsdóttir
Kam Senglee
Sigurður Hólm Guðbjörnsson Kristjana Eyvindsdóttir
Guðmundur Kristján Guðbjörnsson Sigurlaug Finnsdóttir
Guðbjörn Þór Sigurðsson
Margrét Sigurðardóttir Bjarni Ágústsson
Tinna María Sigurðardóttir Rúnar Þór Ólason
Davíð Freyr Guðmundsson Þórdís Jakobsdóttir
Stefán Berg Guðmundsson Eva Helgadóttir
Þórunn Þorbjörg Guðmundsdóttir
og aðrir ættingjar og vinir.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Birna Halldórsdóttir
Dalalandi 1, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
föstudaginn 15. febrúar sl.
Laufey Vilhjálmsdóttir Samir Bustany
Halldór Vilhjálmsson Bryndís Helgadóttir
Sigríður Vilhjálmsdóttir Þórarinn Þórarinsson
barnabörn og barnabarnabörn.