Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 37
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2008
Þjóðminjasafnið heldur áfram með
stórskemmtilegar sérfræðileið-
sagnir sínar í dag kl. 12.05. Þá mun
Árni Björnsson þjóðháttafræðing-
ur leiða gesti um grunnsýningu
safnsins og fjalla sérstaklega um
myndir af íslenskum dýrlingum
sem finna má á meðal gripa.
Árni veltir fyrir sér ýmsum
spurningum um dýrlinga, svo sem
hvernig þeir voru valdir, hvort
samkeppni hafi verið milli þeirra
innbyrðis og hvaða hlutverki þeir
gegndu. Þá er einnig umhugsunar-
efni hvers vegna íslensku dýrling-
arnir voru ekki viðurkenndir af
páfanum. Jafnframt mun Árni í
leiðsögn sinni fjalla um jarteina-
sögur og hlutverk þeirra.
Trú á dýrlinga skipaði frá upp-
hafi kristni í landinu mikilvægan
sess í trúarlífi Íslendinga. Í Krist-
inna laga þætti segir meðal annars
að menn skuli trúa á Guð einan og
„á helga menn til árnaðarorðs sér
og blóta eigi heiðnar vættir“. Fólk
mátti trúa á og tilbiðja Guð en
ákalla dýrlinga. Ef til vill hafa þeir
að einhverju leyti tekið við hlut-
verki goðmagna og vætta. Dýrling-
arnir nutu mikilla vinsælda meðal
almennings og með tímanum eign-
uðust Íslendingar líka sína eigin
dýrlinga, Jón Ögmundsson, Þorlák
helga og Guðmund góða.
Sérfræðileiðsagnir Þjóðminja-
safnsins eru haldnar annan hvorn
þriðjudag í hádeginu. Sérfræðingar
bæði innan safns og utan taka þá
fyrir afmarkaða hluta grunnsýn-
ingarinnar og sérsýninga í sam-
ræmi við sérfræðiþekkingu sína.
Leiðsagnirnar eru ætlaðar almenn-
ingi og ættu allir að hafa gaman af.
Aðgangur að leiðsögninni er
ókeypis og öllum opinn. - vþ
Fjallað um íslenska dýrlinga
Kvikmyndasafn Íslands stendur fyrir
sýningu á tékknesku kvikmyndinni
Ástir ljóshærðrar stúlku í leikstjórn
Milos Forman í Bæjarbíói í Hafnarfirði í
kvöld kl. 20.
Kvikmyndin, sem er frá árinu 1965,
fjallar um táningsstúlkuna Andulu sem
vinnur í skóverksmiðju í tékkneskum
smábæ þar sem meirihluti íbúanna
er konur. Stjórnvöldin reyna að
lagfæra kynjahlutfallið með því að
koma flokki hermanna fyrir í
bænum, en stúlkum bæjarins
bregður í brún þegar hermennirn-
ir reynast vera miðaldra karl-
menn sem stefnt er til móts við
þær á grátbroslegum dansleik.
Andulu líst margfalt betur á
píanóleikarann frá Prag í dans-
hljómsveitinni, sem tælir hana
upp á herbergi eftir ballið. Hann
býður henni að heimsækja sig í Prag en þegar
hún bankar upp á hjá foreldrum hans vita þau
ekki hvaðan á þau stendur veðrið.
Myndin hlaut geysigóðar viðtökur á sínum
tíma, bæði í heimalandinu og erlendis. Í henni
koma fram bæði atvinnu- og áhugaleikar-
ar og fékk enginn þeirra handrit í
hendur heldur einungis lýsingu
leikstjórans á aðstæðum og því
sem segja átti. Útkoman er
óborganleg. Myndin er sýnd
á filmu og er með dönskum
texta.
- vþ
Ljóshærð stúlka Formans
MILOS FORMAN Mynd hans um ljós-
hærða stúlku verður sýnd í Bæjarbíói í
kvöld.
Það verður glatt á hjalla í Hlégarði í Mosfellsbæ
næstkomandi föstudagskvöld en þá kemur þar fram
Latínsveit Tómasar R. og leikur suðræna og hressandi
tónlist. Það er hið framtakssama Tónlistarfélag
Mosfellsbæjar sem stendur fyrir tónleikunum.
Latínsveit Tómasar R. hefur starfað síðan 2002, en
þá kom út Kúbanska, fyrsti geisladiskur Tómasar með
frumsamdri latíntónlist. Diskurinn fékk tvær
tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna og afar
lofsamlega dóma í hérlendum jafnt sem erlendum
fjölmiðlum. Árið 2003 hélt Tómas til Havana og
hljóðritaði nýtt efni með kúbönskum tónlistarmönn-
um. Útkoman úr því ævintýri var svo geisladiskurinn
Havana sem hlaut hvarvetna góðar móttökur.
Latínsveit Tómasar R. hefur spilað vítt og breitt um
landið á síðustu árum auk þess að hafa leikið á
djasshátíðum og klúbbum í Færeyjum, Noregi,
Þýskalandi og Spáni og árið 2006 lék hún bæði á helsta
djassklúbbi Moskvuborgar, Le Club, og í því sögu-
fræga húsi Casa de la Amistad í Havana.
Latínsveit Tómasar R. er skipað sjálfum Tómasi R.
á kontrabassa, Óskari Guðjónssyni á saxófón,
Kjartani Hákonarsyni á trompet, Samúel J. Samúels-
syni á básúnu, Ómari Guðjónssyni á gítar, Matthíasi
M. D. Hemstock á trommur og slagverk og Eyþóri
Gunnarssyni á kóngatrommur.
Hlégarður verður opnaður kl. 20 á föstudagskvöld
og tónleikarnir hefjast kl. 21. Forsala aðgöngumiða á
þessa spennandi tónleika fer fram í Bókasafni
Mosfellsbæjar, Kjarna, virka daga frá kl. 12 til 19.
Miðinn kostar 2.000 kr., en eldri borgarar, nemar og
öryrkjar fá miðann á 1.500 kr. - vþ
Suðræn stemning í Hlégarði
TÓMAS R. EINARSSON Kemur fram ásamt Latínsveit sinni í
Mosfellsbæ á föstudag.
REFILSAUMAÐ ALTARISKLÆÐI Ein birt-
ingarmynd íslenskra dýrlinga.
Ný norræn matargerðarlist í
Norræna húsinu
17. – 24. febrúar 2008.
Glæsileg dagskrá alla vikuna.
Norrænt hlaðborð í hádeginu og á kvöldin.
Dagskrá þriðjudag 19. febrúar:
11.00 Claus Meyer er einn þekktasti kokkur og
matarfrumkvöðull Dana. Hann stofnaði og
rekur meðal annars veitngashúsið NOMA í
Kaupmannahöfn, sem er talið vera eitt af
fimmtán bestu veitingastöðum í heiminum í
dag. Claus Meyer verður í dag með dagskrá
og vinnustofu fyrir börn um bragðskyn og
matarupplifun. Honum til aðstoðar er
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir.
13.15 Fyrirlestur: Stefnumótun hönnuða og
bænda.Flytjendur eru Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir og Brynhildur Pálsdóttir
vöruhönnuðir / Listaháskóli Íslands.
15.00 Hið nýja norræna eldhús – næst stærsta
eldhús í heiminum! Kynnir er danski
meistarakokkurinn Claus Meyer.
16.00 Heimur vínsins. Fyrirlestur og vínsmökkun.
Sérfræðingar frá ÁTVR sjá um kynninguna.
Aðgangseyrir 1000 kr. Aldurstakmark er 20
ár. Takmarkaður fjöldi miða.
Stór matvælakynning 21. - 24. feb. frá
kl. 12.00 (21. feb. er aðeins fyrir fagfólk).
Samtals 40 framleiðendur frá Danmörku,
Íslandi, Svíþjóð og Noregi. Frá Íslandi kynna
Matarkistan og Matarbúrið framleiðslu sína.
Aðgangseyrir. Takmarkaður fjöldi miða.
Nánari upplýsingar og bókanir ásamt allri
dagskránni á
www.midi.is
www.nordice.is
27. febrúar
28. febrúar
2.mars