Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 38
19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Bakvarðasveitinni í Merzedes Club sárnar
að vera legið á hálsi að geta ekki sungið
bakraddir og barið bumbur í senn. Ekki síst
í ljósi þess að ái eins þeirra samdi Öxar við
ána.
„Þetta er bölvað kjaftæði, manni sárnar að heyra
þetta. Við erum alveg stórgóðir söngvarar,“ segir
sjálfur Gaz-man í Merzedes Club.
Mikil spenna er meðal þátttakenda í Eurovision
söngvakeppninni. Þannig heyrist að buffin í
Mercedes Club, sem flytja lag Barða Jóhannssonar
„Hó hó hó, we say hey hey hey“ eigi í stökustu
vandræðum með slá taktinn og syngja „hó!“ og
„hey!“ um leið. Því hafi þurft að beygja reglurnar og
skaffa aukabakraddir úr röðum húsbands Ríkissjón-
varpsins – en þegar út er komið mega aðeins sex
flytja lagið. Fylgir sögunni að söngþjálfari þeirra,
Hildur Guðný, kennari hjá í FÍH, sé að verða
gráhærð. En þetta er einhver mesta vitleysa sem
Gaz-man hefur heyrt. „Ég hef ekki klikkað á nótu
frá því ég mætti í minn fyrsta söngtíma. Og þeir eru
að standa sig vel, Egill og Hanzi. Við gætum alveg
tekið þetta þrír.“
Og til marks um ótvíræða tónlistarhæfileika Gaz-
mans má nefna að hann er kominn af miklum
tónlistarættum. Langafi hans hét Helgi Helgason
tónskáld og samdi hann meðal annars Öxar við ána.
Takk fyrir það. Móðir hans Auður Jacobsen fékk
inni í Söngskóla Reykjavíkur óvenjulega ung en hún
þreytti inntökupróf hjá Garðari Cortes og Guðmundi
Jónssyni.
„Svo unnu Ingi Gunnar og Eyjólfur Kristjánsson
tónlistarmenn hjá afa Gaz-Man, Úlfari Jacobsen, og
ég var alltaf sem polli með í för. Og söng með þeim
alla rútubílaslagara frá a til ö. Já, það voru skemmti-
legir tímar,“ segir Gaz-man sem telur sig sannarlega
ekki eiga það skilið að vera bendlaður við að halda
hvorki lagi né takti.
Gaz-man segist sjaldan eða aldrei hafa tekið í
neinu eins skemmtilegu og Eurovision. Aukin harka
gerir þetta bara enn skemmtilegra. „Þá verður
meira gaman að vinna þetta. Við erum saman allan
sólarhringinn og ég helli ofan í þá próteindrykkjum
til að massa þá upp. Það verður rosalegt „show-ið“ á
laugardaginn. Við erum með öll trompin ónotuð. Og
munum rífa þakið af Smáralindinni. Bíðið bara og
sjáið.“ jakob@frettabladid.is
Gaz-man af tónlistarættum
GAZ-MAN KAMPAKÁTUR Bölvað kjaftæði að hann geti ekki
sungið enda samdi afi hans Öxar við ána.
„Þátturinn verður mjög
opinskár. Ég vil að fólk
sjái hvernig ég er í
alvöru og dæmi
svo fyrir sjálft sig.
Og ef það hatar
mig ennþá
eftir það er
það þess eigið
val.“
DENISE RICAHRDS
UM VÆNTANLEGAN
RAUNVERULEIKAÞÁTT
SINN.
„Það er svo mikið af fólki í
heiminum sem gerir
grín að mér að
ef ég gæti ekki
gert grín að
sjálfri mér væri
eitthvað mikið
að.“
VICTORIA BECKHAM
HEFUR SKOPSKYN.
„Ég er hrifin af bómull-
arnærbuxum. Ég þarf ekki
blettatígursmunstrað leður til
að finnast ég kynþokkafull.“
NELLY FURTADO FINNST BÓMULL BETRI.