Fréttablaðið - 19.02.2008, Side 39

Fréttablaðið - 19.02.2008, Side 39
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2008 23 A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið Bresku fyrirsætuna Jordan langar til að ættleiða barn frá Búlgaríu eftir að hún sá heimildarmynd um barnaheimili þar í landi í sjónvarpinu. „Ég hef pláss fyrir annað og Peter myndi hjálpa til,“ segir fyrirsætan, sem á þrjú börn fyrir: Harvey, fimm ára, og hinn tveggja ára gamla Junior og Princess Tiaamii, sjö mánaða, með eiginmanni sínum, Peter Andre. Eva Longoria Parker er stór- hrifin af því að fljúga. Hún flýgur oft heimshorna á milli til að hitta eiginmann sinn, körfuboltastjörnuna Tony Parker, og virðist nota tímann í að sinna öðru hugðarefni sínu. „Ég elska að fljúga, því þá fæ ég að sofa. Maður getur sofnað og verið kominn til Ástralíu degi síðar. Það er best í heimi,“ segir leikkonan. Uma Thurman kveðst hafa notið þess sérstaklega að kyssa meðleikara sinn, Colin Firth, í myndinni The Acc- idental Husband. Hann er nefnilega einn fárra mótleikara Umu sem eru hærri en hún. Uma er 1,83 metrar á hæð, en Firth fjórum senti- metrum hærri. „Þetta var æðislegt! Ég þurfti ekki að vera álút, halla mér eða standa í skurði. Það var svo skemmtilegt að geta verið á hælum,“ segir hún. David og Victoria Beckham end- urnýjuðu hjúskaparheitið á laun fyrir tæpum tveimur árum. David skipulagði athöfnina og kom Victoriu á óvart. Aðeins nánir vinir og fjölskylda parsins voru viðstödd athöfnina, sem fram fór á heimili þeirra í Engandi, „Beckingham Palace“. Hjónin fengu sér svo tattú í stíl til minningar um athöfnina – rómversku tölu- stafirnir VIII.V.MMVI minna þau á dagsetninguna 8. maí 2006. FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.