Fréttablaðið - 19.02.2008, Side 42
26 19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Landsliðsmaðurinn Sverre Andreas Jakobsson segir að hugurinn
stefni enn heim á leið þó svo lið frá bæði Þýskalandi og Danmörku
séu að sýna honum áhuga.
„Ég fékk meðal annars símtal frá Magnusi Andersson, þjálf-
ara FCK, á dögunum. Það var gaman að þeir skyldu hafa
samband og bjóða mér samning, sem ég reyndar hafnaði.
Það segir manni að ég hafi verið að gera eitthvað rétt,“
sagði Sverre léttur en samningur hans við Gummersbach
rennur út í sumar. Hann sagðist nú ekki hafa trúað
því alveg í fyrstu að Andersson væri sjálfur að
hringja. „Ég hélt að það væri verið að gera
eitthvert grín í mér og bjóst allt eins við
því að Auddi [Blöndal] kæmi hlæjandi
í símann.“
Sverre segist enn fremur hafa fengið
fyrirspurnir frá liðum í Þýskalandi en ekkert hafi enn gerst sem
komi í veg fyrir að hann flytji heim í sumar.
„Það hafa verið lítilsháttar þreifingar og fyrirspurnir en ekkert á
alvarlegu stigi. Mér liggur ekkert á og mun eðlilega skoða allt
sem kemur upp með opnum huga. Ég geri í raun ekki ráð fyrir að
taka endanlega ákvörðun um neitt fyrr en í mars en í augnablikinu
stefnir hugur minn og fjölskyldunnar á að koma heim,“ sagði Sverre
en hann hefur verið í viðræðum við nokkur íslensk félög sem vilja
ólm fá hann í sínar raðir. Sverre stóð sig frábærlega með Fram
eftir að hann kom heim frá Bandaríkjunum og það leiddi til
þess að hann fór til Gummersbach og komst í íslenska
landsliðið.
Sverre sagði að fín stemning væri í Köln þessa
dagana enda er sannkallaður stórleikur hjá félag-
inu í Meistaradeildinni á morgun þegar Ólafur
Stefánsson og félagar í Ciudad Real koma í
heimsókn.
„Það verður virkilega skemmtilegt verkefni.
Það búast fáir við því að við eigum mögu-
leika þannig að pressan er á þeim. Það
verður gaman að kljást við Óla og hann fær
hraustlegar móttökur hjá okkur löndum sínum
í leiknum. Það er óhætt að lofa því,“ sagði Sverre.
HANDKNATTLEIKSKAPPINN SVERRE JAKOBSSON: ENN EFTIRSÓTTUR AF BÆÐI ÞÝSKUM OG DÖNSKUM LIÐUM
Hafnaði FCK og stefnir enn á að koma heim
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið
FÓTBOLTI Sextán liða úrslit Meist-
aradeildar Evrópu hefjast í kvöld
með fjórum leikjum. Flestra augu
verða líklega á viðureign Liver-
pool og Inter sem mætast á
An field.
Verður áhugavert að sjá hvernig
Liverpool mætir til leiks eftir
slæmt tap fyrir Barnsley í bikarn-
um um síðustu helgi. Nokkrir
lykilmenn voru þá hvíldir en
Liverpool teflir eðlilega fram sínu
sterkasta liði í kvöld en þeir Gerr-
ard, Reina og Mascherano verða
allir með í kvöld.
Þó svo að gengi Liverpool heima
fyrir hafi verið dapurt er annar
bragur á liðinu í Meistaradeild-
inni, þar sem vel hefur gengið upp
á síðkastið og liðið búið að vinna
þrjá leiki í röð. Inter er að sama
skapi á mikilli siglingu í Meistara-
deildinni þar sem liðið hefur unnið
fimm leiki í röð. Inter er án Cesar,
sem er í banni, og Luis Jimenez er
meiddur. Luis Figo er einnig tæpur
vegna meiðsla.
Höfum trú á okkur
„Leikmenn liðsins hafa
fulla trú á því að við
getum unnið þennan
titil. Við höfum liðið
til að fara alla leið
enda með frábæra
leikmenn og við
verðum að
trúa á okkur.
Saga Liver-
pool í Evr-
ópu talar
sína máli
og við
viljum
halda
upptekn-
um hætti
og berjast
fyrir tilveru-
rétti okkur í
keppninni,“ sagði
Fabio Aurelio,
varnar maður Liver-
pool. Leikurinn í
kvöld er fyrsta viður-
eign félaganna í Evr-
ópu síðan leiktíðina
1964-65. Þá vann
Inter seinni leikinn
heima, 3-0, eftir að
hafa tapað úti, 3-1.
Rimma Olympiakos
og Chelsea í Grikk-
landi er einnig mjög
áhugaverð. Fastlega
er búist við því að
Avram Grant, stjóri
Chelsea, tefli fram
þeim Nicolas Anelka
og Didier Drogba
saman í framlín-
unni. Michael
Essien verður
svo væntanlega í
varnarhlutverki á
miðjunni með þá Frank Lampard
og Michael Ballack fyrir framan
sig.
„Ef þetta félag vill verða enn
stærra verðum við að komast í
úrslit og vinna. Það er ekki hægt
að segja að Chelsea sé að verða
stærra ef við komumst ekki í
úrslit, sem er takmark okkar. Við
ætluðum að gera það á tveim árum
en núna viljum við komast í úrslit
í ár. Ég mun ekki linna látum fyrr
en við komumst í úrslitaleikinn,“
sagði Avram Grant en félögin hafa
aldrei mæst áður í Evrópukeppn-
um. Olympiakos hefur aldrei kom-
ist lengra en í sextán liða úrslitin.
henry@frettabladid.is
Rífur Liverpool sig upp?
Meistaradeild Evrópu fer á fullt á nýjan leik í kvöld þegar sextán liða úrslitin
hefjast. Liverpool tekur á móti Inter en Chelsea fer til Grikklands.
UNDIR PRESSU
Rafa Benitez, stjóri
Liverpool, er undir
mikilli pressu þegar
Liverpool tekur á móti
Inter á Anfield í kvöld.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
VETUR Í GRIKKLANDI Það er kalt í Grikklandi þar sem Didier Drogba og félagar í
Chelsea sækja Olympiakos heim. NORDIC PHOTOS/AFP
MEISTARADEILD EVRÓPU
Leikir kvöldsins:
Liverpool - Inter SÝN
Olympiakos - Chelsea SÝN EXTRA 2
Roma - Real Madrid SÝN EXTRA
Schalke - Porto
FÓTBOLTI KR og Breiðablik
eignuðust um helgina tvo
Íslandsmeistara þegar Íslands-
mótið innanhúss fór fram hjá
yngri flokkum. Nú var í fyrsta
skiptið leikið eftir Futsal-reglum.
KR vann 4. flokk karla og 2.
flokk kvenna en Blikar unnu 3.
flokk kvenna og 5. flokk karla.
Auk þeirra vann Snæfellsnes 2.
flokk karla, Víkingur vann 3.
flokk karla, HK vann 4. flokk
kvenna og loks vann KS 5. flokk
kvenna. - óój
Íslandsmótið innanhúss:
KR og Breiða-
blik unnu flesta
> Tíðinda líklega að vænta í dag
Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst kemur líklega í ljós
í dag hvort af því verði að Geir Sveinsson taki við íslenska
handboltalandsliðinu af Alfreð Gíslasyni. HSÍ hafði sam-
band við Geir síðastliðinn miðvikudag og hann hefur haft
fimm daga til þess að fara yfir málið með sjálfum sér og
HSÍ. Sem fyrr vörðust forsvarsmenn HSÍ allra frétta í gær
þegar eftir því var leitað. Eftir sem áður var þó kvartað yfir
ágangi fjölmiðla en formaður HSÍ segir að málin hefðu
klárlega gengið betur fyrir sig hefðu þeir fengið að vinna
landsliðsþjálfaramálin í friði. Það þykja Fréttablaðinu
frekar ódýr ummæli og vinnubrögð af hálfu
HSÍ en nákvæmlega engar upplýsingar
hafa fengist frá þeim síðan Alfreð lýsti því
yfir að hann væri hættur.