Fréttablaðið - 19.02.2008, Qupperneq 43
ÞRIÐJUDAGUR 19. febrúar 2008 27
16-LIÐA
ÚRSLIT
512 5100 | SYN.IS | VERSLANIR VODAFONE
Í KVÖLD KL. 19:30
LIVERPOOL
INTER MILAN
MEISTARADEILDIN
Í KVÖLD KL. 19:30
Liverpool – Inter Milan Sýn
Roma – Real Madrid S‡n Extra
Olympiakos – Chelsea S‡n Extra 2
Á MORGUN KL. 19:30
Arsenal – AC Milan S‡n
Lyon – Man. Utd. S‡n Extra
Celtic – Barcelona S‡n Extra 2
Upphitun hefst kl. 19:00
Umfjöllun um alla leiki kvöldsins kl. 21:40
30%
aukaafslá
ttur af fyr
sta
mánuðinu
m ef þú ka
upir
áskriftina
á stod2.is
m.v. 12 má
naða
skuldbind
ingu
Iceland Express-deild karla:
ÍR-KR 87-83
Stig ÍR: Nate Brown 21, Hreggviður Magnússon
18, Tahirou Sani 11, Sveinbjörn Claessen 10,
Steinar Arason 8, Ólafur Jónas Sigurðsson 8,
Ómar Sævarsson 7, Eiríkur Önundarson 4.
Stig KR: Joshua Helm 20, Helgi Már Magnússon
17, Brynjar Þór Björnsson 15, Avi Fogel 10, Jerem-
iah Sola 10, Fannar Ólafsson 5, Darri Hilmarsson
4, Skarphéðinn Ingason 2.
Grindavík-Fjölnir 89-83
Stig Grindavíkur: Jonathan Griffin 29 (10
fráköst), Páll Axel Vilbergsson 29, Adama Darboe
11 (9 stoðsendingar), Þorleifur Ólafsson 9, Páll
Kristinsson 6, Igor Beljanski 5.
Stig Fjölnis: Anthony Drejaj 23, Sean Knitter
18 (15 frák.), Pete Strobl 17, Tryggvi Pálsson
10, Níels Dungal 9, Kristinn Jónasson 4, Helgi
Þorláksson 2.
Iceland Express-deild kvk:
Hamar-KR 80-75
Stig Hamars: La K. Barkus 26, Iva Milevoj 21,
Fanney Guðmundsdóttir 13, Hafrún Hálfdánard.
11, Jóhanna Sveinsdóttir 8, Álfhildur Þorsteins. 1.
Stig KR: Candace Futrell 25, Hildur Sigurðardóttir
23, Sigrún Ámundadóttir 11, Helga Einarsdóttir 5,
Guðrún Þorsteindóttir 4, Rakel Margrét Viggós-
dóttir 4, Guðrún Ámundadóttir 3.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Manchester United og
Chelsea drógust ekki saman í átta
liða úrslitum ensku bikarkeppn-
innar þegar dregið var í gær og
því gæti svo farið í fyrsta sinn í
123 ár að sömu lið mætist í
úrslitaleiknum tvö ár í röð.
Chelsea heimsækir Liverpool-
banana í Barnsley á meðan
Manchester United tekur á móti
Hermanni Hreiðarssyni og
félögum í Portsmouth.
Í hinum leikjunum mætast
Bristol Rovers og West Bromwich
Albion annars vegar og svo mun
Cardiff City heimsækja annað
hvort Sheffield United eða
Middlesbrough, sem þurfa að
mætast aftur eftir markalaust
jafntefli í vikunni. - óój
Man. Utd og Chelsea:
Drógust ekki
saman í bikar
FÓTBOLTI Bræðurnir Arnar og
Bjarki Gunnlaugssynir eru hættir
við að hætta knattspyrnuiðkun og
munu spila eitt tímabil í viðbót
með FH-ingum. Þetta kemur fram
á stuðningsmannasíðu FH,
fhingar.net. Þetta er góð tíðindi
fyrir bikarmeistarana enda voru
þeir bræður liðinu mikilvægir á
síðustu leiktíð. - hbg
Góð tíðindi fyrir FH-inga:
Arnar og Bjarki
áfram í FH
ÁFRAM Í FIRÐINUM Arnar og Bjarki
Gunnlaugssynir leika áfram í hvítu treyj-
unum næsta sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI ÍR vann fjögurra stiga
sigur á Íslandsmeisturum KR, 87-
83, í Seljaskóla í gær og fóru langt
með spilla fyrir deildarmeistara-
draumum Vesturbæinga sem
duttu fyrir vikið niður í 3. sæti þar
sem Grindvíkingar unnu 89-83
sigur á Fjölni á sama tíma.
ÍR-ingar voru ákveðnari frá
byrjun, voru 24-23 yfir eftir fyrsta
leikhluta og 46-40 yfir í hálfleik.
Þeir komust meðal annars vel frá
því að leika í átta mínútur án Nate
Brown (KR vann þær 21-14) sem
lenti í villuvandræðum.
Hálfleiksræða Benedikts Guð-
mundssonar, þjálfara KR, kveikti
greinilega í hans mönnum og þá
aðallega í Jeremiah Sola og KR-
ingar voru komnir 57-62 eftir
aðeins sex mínútna leik í seinni
hálfleik. ÍR-ingar voru hins vegar
ekkert á því að gefa sig, komu sér
aftur inn í leikinn undir frábærri
stjórn Nates og höfðu síðan betur í
spennuþrungnum lokaleikhluta.
KR-ingar týndu Joshua Helm gegn
svæðisvörninni og hann náði ekki
einu skoti á körfuna í 4. leikhluta.
Meistararnir létu Nate líka stela
fjórum boltum af sér á lokamínút-
unum sem vóg þungt í svona jöfn-
um leik.
Nate Brown (21 stig, 10 stoð-
sendingar, 9 fráköst, 7 stolnir) átti
stórleik í liði ÍR en eins var Hregg-
viður Magnússon (18 stig) sterkur
þótt hann hitti ekki vel og Ómar
Sævarsson, Ólafur Sigurðsson og
Steinar Arason komu með 23 stig
og mikinn kraft af bekknum.
Hjá KR nýtti Helm færin sín vel
þegar hann þá fékk boltann en
bestur var þó Helgi Már Magnús-
son. Brynjar Þór Björnsson setti
líka niður stór skot í lokin en
útlendingarnir þrír skoruðu aðeins
þrjú stig saman í fjórða leikhluta.
KR-liðið má ekki við því að Jerem-
iah Sola spili bara annan hálfleik-
inn en öll 10 stig og 7 fráköst hans
komu í seinni hálfleik. - óój
Grindvíkingar tóku annað sætið af KR í gærkvöldi í Iceland Express-deild karla:
Nate Brown var KR erfiður
EIN AF TÍU Nate Brown gefur hér eina
af 10 stoðsendingum sínum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN