Fréttablaðið - 19.02.2008, Page 46
30 19. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT 2. ílát 6. í röð 8. hópur 9.
kúgun 11. mun 12. hengingartré 14.
safna saman 16. borðaði 17. fúadý
18. umrót 20. þys 21. yfirstétt.
LÓÐRÉTT 1. ílát 3. bor 4. eyja í Mið-
jarðarhafi 5. svelg 7. stífa 10. angan
13. útdeildi 15. svari 16. spíra 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vasi, 6. rs, 8. lið, 9. oki,
11. ku, 12. gálgi, 14. smala, 16. át, 17.
fen, 18. los, 20. ys, 21. aðal.
LÓÐRÉTT: 1. trog, 3. al, 4. sikiley, 5.
iðu, 7. skástoð, 10. ilm, 13. gaf, 15.
ansi, 16. ála, 19. sa.
Þekkingar- og háskólasamfélagið á gamla varnar-
svæðinu á Miðnesheiði er smám saman að taka á sig
mynd þekkingar og háskólasamfélags. Leifar
fortíðar eru þó á hverju strái og ekki skrýtið,
bandaríski herinn var hér lengi. Bandarískar
áletranir eru enn inni í íbúðarhúsum og í kjörbúð-
inni, sem heitir nú Samkaup, er ennþá auglýst á
kælinum „Cold beer cases inside“. En þetta mjakast.
Táknmynd varnarstöðvarinnar, herþotan frá Nato
sem stóð stolt nálægt gömlu flugstöðinni, var
fjarlægt á dögunum.
„Hún var nú bara sett í geymslu hér inni á svæð-
inu,“ segir Kjartan Þór Eiríksson, framkvæmdastjóri
Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. „Hún var hífð
upp á bíl og flutt um set. Þotan verður nú varla þarna
í geymslunni lengi. Hún er á vegum utanríkisráðu-
neytisins og henni verður eflaust fundinn góður
staður í framtíðinni.“
Girðingin, sem nær utan um svæðið og kom
áratugum saman í veg fyrir að Íslendingar kæmust í
bjór og Baby Ruth, stendur enn. „Það er ágætt að
hafa hana til að beina umferðinni um ákveðnar
leiðir,“ segir Kjartan. „Hún kemur líka í veg fyrir að
krakkar séu að fara beint út á Reykjanesbrautina.
Girðingin verður þó fjarlægð á endanum.“
Voldug varðskýli taka á móti manni þegar heyrt inn
á svæðið. Hér stóðu brúnaþungir dátar með alvæpni
en nú getur hver sem er keyrt framhjá mannlausum
skýlunum. Þau voru byggð til að standast skriðdreka-
árás svo það verður ekki auðvelt að rífa þau. „Við
bíðum nú eftir að sjá frekari skipulagspælingar áður
en við förum að rífa eitthvað,“ segir Kjartan. „Og svo
má eflaust nota þessi skýli í eitthvað. Ein hugmynd
sem sett var fram í gríni er að selja pulsur í þeim –
eða smurðar beyglur.“ - glh
Natóþotan farin í geymslu
„Já, þetta er alveg ótrúlegt helvíti. Ég var eitthvað
pirraður út í Bandaríkin þegar ég gerði þetta verk,
mynd af Monu Lisu og skírði hana Wa1mART.com.
Sem hluta af verkinu. Í framhaldinu skrifaði ég mér
lén á internetinu með sama heiti: wa1mart.com,“
segir Lárus H. List listamaður á Akureyri.
Verslunarkeðjan og stórfyrirtækið bandaríska
Wal-Mart hefur stefnt Lárusi fyrir gerðardóm í
Genf í Sviss þar sem málið verður tekið fyrir eftir
tæpar þrjár vikur. Þar mun fyrirtækið freista þess
að ná léninu af Lárusi. Verkið gerði Lárus fyrir um
tveimur árum og sýndi í galleríinu Klink og Bank.
Hann fékk fljótlega upp úr því bréf frá lögmönnum
Wal-Mart þar sem honum var bent á að lénin walm-
art.com og wa1mart.com væru lík og hann væri að
valda fyrirtækinu skaða. „Ég sagði bara „fuck the
system“. Og benti þeim á að Warhol hefði nú gert
Campellsúpuna frægu. Þeir gætu bara keypt verkið
af mér. Enda nafnið hluti verksins og þjónar ákveðn-
um tilgangi.“
Þeir Wal-Mart menn hefðu betur gert það því
Lárus lætur sig ekki. Og skírskotar til þess að hér
sé um list að ræða. Leið og beið en í síðustu viku
fékk Lárus þykka möppu með málsskjölum senda
frá Bandaríkjunum. Hann telur líklegt að kostnað-
ur við slík lögfræðiálit sem þar eru kynnt skipti
milljónum. Verkið hefur hins vegar nú þegar þjón-
að tilgangi sínum. Móna Lísa hafi verið listamönn-
um uppspretta ýmissa hugleiðinga; hvort hún væri
á túr, hvort hún væri tvíkynja og svo framvegis en
þetta verk átti að vísa til græðisvæðingar Banda-
ríkjanna sem allt vilja gleypa. Og það hefur nú
komið á daginn.
Tekur nú þessi saga enn einn snúning því vel
þekktur lögmaður á Englandi, Graham Ross, sem
hefur sérhæft sig í réttindamálum í tengslum við
Netið, hafði sambandi við Lárus. Ross hafði haft
spurnir af málinu og bauðst til að verja Lárus í
Genf. Lögmanninum breska virðist það augljóst að
listamaðurinn sé í fullum rétti að festa sér þetta lén.
jakob@frettabladid.is
LÁRUS H. LIST: VERKIÐ VÍSAR TIL GRÆÐGISVÆÐINGAR USA
Wal-Mart í mál við ís-
lenskan myndlistarmann
WALMART.COM Verkið eftir Lárus sem velti hinu þunga hlassi.
Órjúfanlegur partur verksins er nafn þess og lénið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÁRUS H. LIST Stjörnulögmaðurinn Graham Ross hefur ákveð-
ið að leggja honum lið í komandi málaferlum við Wal-Mart.
TÁKNMYND VERNARANS
Natoþotan er farin inn í
geymslu.
Hlustun á X-ið hefur dregist
saman að undanförnu og mælist
nú aðeins 1,5 prósent í aldurs-
hópnum 12-49 ára. Þetta er niður-
staða nýrrar hlustendakönnunar
Capacent Gallup. Á meðan hafa
meðal annars 16 prósent á þess-
um aldri stillt á poppstöðina FM
957. Hið alræmda stríð milli
hnakka og rokkhunda virðist því
vera til lykta leitt með stórsigri
hnakka. Hvorki Brynjar Már
Valdimarsson, dagskrárstjóri FM
957, né Þorkell Máni Pétursson,
dagskrárstjóri X-ins, vildu tjá sig
um málið en útvarpsstöðvarnar
eru báðar í eigu 365 miðla.
Útvarpskönnunin var fram-
kvæmd á sama hátt og sjónvarps-
könnunin sem nýlega var kynnt,
með rafrænum hætti. Að sögn
Guðna Rafns Gunnarssonar, ráð-
gjafa hjá Capacent, eru þetta
mun nákvæmari tölur en þær
sem fengust með svokölluðum
dagbókarkönnunum. Þátttakend-
ur í könnuninni bera svokallaðan
pdm-mæli sem nemur útvarps-
merki viðkomandi útvarps-
stöðvar.
Rekstur svokallaðra rokk-
stöðva virðist vera nokkuð erfið-
ur hér á landi ef marka má þessa
niðurstöðu. Fyrir jól var tilkynnt
að X-FM væri hætt sínum útsend-
ingum en sú lokun hefur ekki
haft áhrif á hlustun X-ins. Sam-
kvæmt hlustendakönnun sem
framkvæmd var í lok ársins
2007 og í byrjun þessa með
sama hætti hefur hlustun á X-
ið dregist saman um eitt pró-
sentustig en FM 957 bætir
við sig á milli kannanna.
- fgg
Hnakkarnir jarða rokkarana
VILJA EKKI TJÁ SIG
Hvorki Þorkell Máni né
Brynjar Már vildu tjá sig
um niðurstöður hlust-
endakönnunar Capacent.
Boðið verður upp á íslenskt þema
í anddyri Laugardalshallarinnar fyrir
tónleika Egils Ólafssonar og
félaga í Þursaflokknum
á laugardagskvöld. Fjórir
glímukappar munu
etja þar kappi
hver við annan
auk þess sem
tveir harmon-
ikkuleikarar
munu halda
uppi góðri
stemn-
ingu. Einnig verður boðið upp á
brennivínsskot og hákarl fyrir þá
tónleikagesti sem eru hrifnir af ekta
íslenskum þorramat. Hvort aðrir
gestir eigi eftir að taka hákarlalykt-
inni í Höllinni eins fagnandi er aftur
á móti annað mál.
Euro-bandinu hefur bæst góður
liðstyrkur. Þannig hefur
sjálft Eurovison-tröllið
Páll Óskar sett saman
texta við lag þess
„Fullkomið líf”
sem heitir nú
„This is your
life” og þannig
munu þau
Friðrik Ómar
og Regína
Ósk syngja lagið
í Smáralind á laugardag.
Þeir hjá Ríkissjónvarpinu leituðu
víða hófanna meðal erlendra Euro-
vision-stjarna með að
koma og auka enn á
fjörið sem væntan-
legt er á laugardag.
Enda mæltist vel fyrir
þegar Bobbysocks
komu um árið.
Leitað var
til Johnny
Logan en
hann mun
vera að
syngja á
föstudagskvöld og kemst ekki. Þá
var norska Eurovisionstjarnan Ketil
Stokkan undir smásjá lengi vel en
ekkert verður af því að hann komi
og syngi því hann átti ekki heim-
angengt. Þannig að þetta verður
strípað gaman. -fb/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Mér finnst eiginlega alltaf
notalegast að fara á Hornið
niðri í bæ. Helst svona þegar há-
degistraffíkin er búin, og fá sér
þá kannski einn öl í leiðinni.“
Ívar Örn Sverrisson, leikari.