Fréttablaðið - 10.03.2008, Qupperneq 2
2 10. mars 2008 MÁNUDAGUR
STJÓRNSÝSLA Lítið hefur þokast í
þeim áformum stjórnvalda að reisa
viðbyggingu við stjórnarráðshúsið
við Lækjartorg. Starfsemi forsætis-
ráðuneytisins hefur fyrir löngu
sprengt húsnæðið utan af sér og
leigir ráðuneytið samtals þrjár
hæðir í húsunum við Hverfisgötu 4a
og Hverfisgötu 6.
Nokkuð er um liðið síðan Fram-
kvæmdasýsla ríkisins mat þá kosti
sem í boði eru um framtíðarhögun
húsnæðismála ráðuneytisins. Athug-
uð var hagkvæmni óbreytts ástands,
kaup á núverandi leiguhúsnæði og
nýbygging á baklóð stjórnarráðs-
hússins. Leiddi athugunin í ljós að
síðastnefndi kosturinn væri
ódýrastur.
Tillaga að breytingu á stjórnar-
ráðsreitnum hefur verið til með-
ferðar í borgarkerfinu síðan 2004 án
þess að hafa mjakast mikið áfram.
Þó lét Ólafur F. Magnússon, sem þá
var áheyrnarfulltrúi Frjálslyndra
og óháðra í skipulagsráði, bóka á
fundi í júlí 2006 að tillaga sem þá
var til meðferðar gerði ráð fyrir of
miklu byggingamagni. „Bygging á
bak við stjórnaráðsbyggingu ætti
ekki að vera meiri en tvær hæðir og
skáþak myndi laga hana betur að
útliti stjórnaráðshússins og Banka-
strætis 3,“ lét Ólafur bóka.
Bolli Þór Bollason, ráðuneytis-
stjóri forsætisráðuneytisins, segir
engar ákvarðanir hafa verið teknar
um stærð eða útlit viðbyggingarinn-
ar. „Það þarf að kanna hvaða svig-
rúm er fyrir hendi,“ segir Bolli.
Þaðan af síður hafi kostnaður verið
metinn. „Næst á döfinni er að dusta
rykið af hugmyndum okkar og tala
við Reykjavíkurborg.“
Auk þess að rúma ekki starf-
semi forsætisráðuneytisins með
góðu móti stendur húsakosturinn
lögbundinni skjalavörslu og nauð-
synlegri öryggisvörslu fyrir
þrifum. Þá er aðgengi fatlaðra að
ráðuneytinu takmörk sett og í
raun á undanþágu.
Bolli segir engar tímasetningar
á framkvæmdum liggja fyrir en
ljóst sé að verkið taki tvö til þrjú
ár. Því muni fylgja talsvert rót og
rask og ekki úr vegi að ætla að ein-
hverjar fornminjar kunni að koma
í ljós ef og þegar ráðist verði í
framkvæmdir.
Baklóð stjórnarráðshússins -
sem að einum þriðja hluta er bíla-
stæði en annars gras - er að mestu
í eigu ríkisins en einhver hluti
hennar tilheyrir húsinu við Banka-
stræti 3 þar sem verslunin Stella
er.
bjorn@frettabladid.is
Nóatún mælir með
598 kr.kg.
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Gott á mánudegi
Ungnautahakk
SPRENGI
VERÐ!
Húsið var hannað og reist sem tugt-
hús og lauk smíðinni 1771. Rúmaði
það 16 stórglæpamenn og 54
venjulega fanga. 1816 var tugthús-
starfseminni hætt og fjórum árum
síðar varð húsið embættisbústaður
stiftamtmanns. Landshöfðingjar
höfðu aðsetur í húsinu 1873 til
1904 þegar heimastjórnin tók við og
það varð stjórnarráðshús. Um tíma
höfðu allir þrír ráðherrar Íslands
skrifstofur í húsinu og síðar forseti
Íslands í um tuttugu ár. Húsinu
hefur verið breytt talsvert í áranna
rás, jafnt að utan sem innan.
HEIMILD: ÚR SAMANTEKT ÞORSTEINS GUNNARSSONAR Á
FORSAETISRADUNEYTI.IS
BROT ÚR SÖGU STJÓRNARRÁÐSHÚSSINS
Áformað að byggja
við Stjórnarráðið
Tillaga að breyttu deiliskipulagi baklóðar stjórnarráðshússins hefur velkst
í skipulagskerfi Reykjavíkur í á fjórða ár. Forsætisráðuneytið vill byggja á
lóðinni enda hefur starfsemin fyrir löngu sprengt húsið utan af sér.
BAKHLIÐ STJÓRNARRÁÐSHÚSSINS Áform eru uppi um að reisa viðbyggingu á baklóð
Stjórnarráðsins. Málið hefur velkst í nokkur ár innan borgarkerfisins en ráðuneytis-
stjóri forsætisráðuneytisins segir næst á dagskrá að dusta rykið af hugmyndunum og
tala við Reykjavíkurborg. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
INDLAND, AP Hundruð útlaga frá
Tíbet leggja af stað í dag í
mótmælagöngu frá Indlandi til
Tíbet. Með göngunni vilja þeir
mótmæla bæði innlimun Tíbets í
Kína og því að Kína haldi
Ólympíuleikana í sumar.
Tíbetarnir reikna með að verða
hálft ár á leiðinni frá Dharamsala
á Indlandi alla leið upp til Tíbet,
þar sem haldið verður yfir
landamærin til Tíbets um það
leyti sem Ólympíuleikarnir
hefjast í Kína.
Gangan verður aðeins ein af
fjölmörgum mótmælaaðgerðum
sem skipulagðar hafa verið í
aðdraganda Ólympíuleikanna.
- gb
Útlagar frá Tíbet mótmæla:
Ganga frá Ind-
landi til Tíbet
SKÁK „Mín skoðun er að tölvur hafi drepið sígilda
skák,“ segir Boris Spasskí, fyrrverandi heims-
meistari í skák, sem er á landinu í tilefni af Alþjóð-
legri skákhátíð í minningu Bobbys Fischer.
Spasskí teflir lítið þessa dagana, nema til
hátíðarbrigða. „Ég er mjög svartsýnn á framtíð
skák íþróttarinnar og í raun lífsins sjálfs,“ segir
Spasskí. „Ég kenni börnum skák og reyni að sýna
þeim hvernig hægt sé að nota tölvur sem þjón í
skákinni.“
Fjórir stórmeistarar tefla á sérstöku minningar-
móti um Fischer sem fram fer á þriðjudag. Í gær
undirrituðu Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti
Skáksambands Íslands, og Lárus Welding, forstjóri
Glitnis, samstarfssamning um stuðning við
skákíþróttina á Íslandi.
Fischer og Spasskí háðu einvígi um heimsmeist-
aratitilinn í Reykjavík árið 1972 og beið Spasskí
lægri hlut. Hann segir að heimsmeistaratitillinn í
skák hafi verið gjaldfelldur síðari ár og að Garrí
Kasparov hafi verið seinasti „klassíski“ heims-
meistarinn í skák.
Spasskí minnist Bobbys Fischer vinar síns með
hlýju. „Ég talaði oft við Bobby síðustu árin og hitti
hann. Hann lét lítið fyrir sér fara á Íslandi og hélt
sig neðanjarðar,“ segir Spasskí. „Og nú er hann
neðanjarðar að eilífu.“ - sgj
Stórmeistarinn Boris Spasskí er svartsýnn á framtíð skákíþróttarinnar:
Tölvurnar drápu klassíska skák
HÁTÍÐARDAGSKRÁ TIL HEIÐURS FISCHER Fjöldi erlendra
stórmeistara er kominn til landsins vegna skákhátíðarinnar.
Spasskí er til vinstri með svört sólgleraugu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
DÓMSMÁL Héraðsdómur Suður-
lands dæmdi á föstudaginn
Andrzej Kisiel í fjögurra ára
fangelsi fyrir að hafa nauðgað
konu í porti bakvið hús eftir
dansleik í Vestmannaeyjum.
Í dómi héraðsdóms kemur fram
að Andrzej hafi gerst sekur um
hrottafengna árás á kynfrelsi
konunnar með mjög alvarlegum
afleiðingum fyrir hana. Hafi hún
ekki enn getað hafið fullt starf
eða einbeitt sér að námi. Þá er
honum gert að greiða konunni
tvær milljónir í miskabætur, auk
vaxta, sem og allan sakarkostnað
sem samtals nemur rúmri einni
og hálfri milljón króna. - ovd
Sæti fjögurra ára fangelsi:
Dæmdur sekur
um nauðgun
SVÍÞJÓÐ Eldsnemma í gærmorgun
sprakk öflug sprengja í Vasastan-
hverfinu í Stokkhólmi, svo fólk
hrökk upp með andfælum og
minntist sprengjuárásar á
svipuðum stað árið 2004.
Tugir rúða brotnuðu í húsum
við Surbrunnsgötu og var götunni
lokað strax og lögregla kom á
vettvang.
Lögreglan handtók fljótlega 29
ára gamlan mann sem er grunað-
ur um verknaðinn.
Sprengjan sprakk undir bifreið,
sem er í eigu fyrirtækis sem
rekur nokkra skemmtistaði í
miðborg Stokkhólms. - gb
Sprenging í Stokkhólmi:
Tilræðismaður
var handtekinn
DÓMSMÁL Dómstólar á Íslandi
þurfa að efla almannatengsl sín,
rétt eins og aðrar stofnanir og
fyrirtæki hafa gert á undanförnum
árum, segir Eiríkur Tómasson
lagaprófessor.
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttardómari sagði í viðtali
við Fréttablaðið í gær að dómarar
ættu að tjá sig meira um dómara-
störfin á opinberum vettvangi.
Eiríkur tekur undir þetta viðhorf
Jóns Steinars.
„Þeir verða þó að varast að fjalla
um einstök dómsmál. Þeir mega
ekki dragast inn í pólitískar
umræður og dægurmál, því þá
teljast þeir ekki lengur sjálfstæðir
og óvilhallir,“ segir Eiríkur. „Í
fyrsta lagi eiga dómararnir að tala
í gegnum dómana sjálfa og rök-
styðja úrlausnir sínar betur.“
Dómstólar hófu fyrir nokkrum
árum að birta niðurstöður sínar á
netinu. Eiríkur segir það hafa
verið gott skref. Einnig gætu dóm-
stólarnir ráðið sér almannatengsla-
fulltrúa eða fjallað reglulega um
þróun dómsmála í fjölmiðlum.
„Mér finnst opin og almenn
umræða um niðurstöður dómstóla
vera af hinu góða og í henni eiga
að taka þátt bæði dómarar, lög-
menn og aðrir lögfræðingar,“
segir Helgi Jóhannesson, formað-
ur Lögmannafélags Íslands.
„Dómari á hins vegar að gæta þess
að ræða ekki opinberlega um dóm
sem hann kvað upp sjálfur.“ - sgj
Lagaprófessor segir að almannatengsl íslenskra dómstóla þurfi að efla:
Dómstólar kynni sig betur
SAMDHONG RINPOCHE Forsætisráð-
herra útlagastjórnar Tíbets í Dharamsala
á Indlandi. NORDICPHOTOS/AFP
Ökulagabrot á Selfossi
Lögreglan á Selfossi handtók fjóra
ökumenn fyrir ölvunarakstur og einn
fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna
um helgina. Voru ökumenn fluttir til
skýrslu- og sýnatöku á lögreglustöð
en fengu að fara að því loknu. Málin
eru í rannsókn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Sendiherra vísað úr landi
Stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi hafa rekið
sendiherra Bandaríkjanna úr landi
og kallað eigin sendiherra heim frá
Washington. Aðgerðirnar eru viðbrögð
stjórnar Lúkasjenkos forseta, við
ásökunum bandarískra stjórnvalda
um einræðisstjórnarhætti.
HVÍTA-RÚSSLAND
Ungir ölvaðir ökumenn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
tók níu ökumenn fyrir ölvunarakstur
aðfaranótt laugardagsins. Átta þeirra
voru karla á aldrinum 18 til 27 ára.
Ein kona, 22 ára var meðal þeirra sem
lögreglan stöðvaði.
Guðfríður, var Spasskí hrókur
alls fagnaðar?
„Nei, hann var drottning dagsins.“
Boris Spasskí, fyrrverandi heimsmeistari
í skák, er á landinu í tilefni af Alþjóðlegri
skákhátíð í minningu Bobbys Fischer.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er forseti
Skáksambands Íslands.
HELGI
JÓHANNESSON
EIRÍKUR
TÓMASSON
LÖGREGLUMÁL Ökumaður bifreiðar
sofnaði og missti stjórn á bifreið
sinni rétt vestan við Kúagerði á
Strandaheiði á Reykjanesbraut í
gærmorgun.
Lenti bifreið mannsins utan í
sendibifreið sem hann ók á eftir,
en ökumaður hennar náði með
snarræði að koma í veg fyrir
frekara tjón. Var maðurinn
fluttur á lögreglustöð til skýrslu-
og sýnatöku þar sem grunur þótti
á að hann væri undir áhrifum
fíkniefna.
Fékk hann að fara heim eftir að
hafa sofið úr sér vímuna.
Reyndist hann einnig sviptur
ökuréttindum. - ovd
Réttindalaus undir áhrifum:
Sofnaði og ók
á sendibifreið
SPURNING DAGSINS