Fréttablaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 54
26 10. mars 2008 MÁNUDAGUR NÝTT Í BÍÓ!NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919 SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000 12 12 7 12 12 16 7 14 7 SEMI PRO kl. 6 - 8 - 10 THE KITE RUNNER kl. 8 BE KIND REWIND kl. 10.10 BRÚÐGUMINN kl. 6 12 12 7 16 12 7 THE ORPHANAGE kl.6 - 8 - 10 AUGUST RUSH kl.5.30 - 8 - 10.30 BE KIND REWIND kl. 8 - 10.15 DIVING BELL kl.5.40 - 8 27 DRESSES kl.5.30 - 10.10 SEMI PRO kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 SEMI PRO LÚXUS kl. 3.45 - 5.50 - 8 - 10.10 BE KIND REWIND kl. 5.45 - 8 - 10.15 27 DRESSES kl. 8 - 10.30 ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 3.40 ÍSL. TAL JUMPER kl. 6 - 10.10 BRÚÐGUMINN kl. 3.40 - 5.50 - 8 SEMI PRO kl. 6 - 8 - 10 THE KITE RUNNER kl. 6 - 9 THERE WILL BE BLOOD kl. 8 INTO THE WILD kl. 10.10 ATONEMENT kl. 5.30 BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8 5% 5% 5% 5% FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM! !óíbí.rk045 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu S.V. - MBL. S.V. - MBL. B.B - 24 STUNDIR M.M.J - kvikmyndir.com -V.J.V. - Topp5.is / FBL - H.J. - MBL Topp5.is Hugljúf og í allan stað frábær mynd um drauma og hvernig þeir rætast ef maður bara vill trúa því. -24 Stundir REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS ÁLFABAKKA KRINGLUNNI SELFOSS AKUREYRI KEFLAVÍK THE BUCKET LIST kl. 6 - 8 - 10:10 7 AUGUST RUSH kl. 5:30 - 8 7 DARK FLOORS kl. 10:30 14 UNDRAHUNDURINN ÍSL TAL kl. 6 L NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 16 NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 VIP THERE WILL BE BLOOD kl. 10:30 16 STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 -10:10 7 P.S. I LOVE YOU kl. 8 L DIGITAL THE BUCKET LIST kl. 8 - 10:10 L THERE WILL BE BLOOD kl. 10:20 16 27 DRESSES kl. 8 L UNDRAHUNDURINN ÍSL TAL kl. 6 L THE BUCKET LIST kl. 8 7 STEP UP 2 kl. 6 - 10 7 JUNO kl. 8 7 DARK FLOORS kl. 10 16 NJÓTTU LÍFSINS ÓSKARSMYNDIRNAR ERU Í SAMBÍÓUNUM nánari upplýsingar um ÓSKARSMYNDIRNAR má finna á www.SAMbio.is ÞAÐ ELSKA ALLIR JUNO! BESTI VINUR MANNSINS AUGUST RUSH 27 DRESSES kl. 8 L DEATH AT A FUNERAL kl. 8 7 ATONEMENT kl. 10:10 12 SWEENEY TODD kl. 10:10 16 THE BUCKET LIST kl. 6 - 8:20 - 10:30 7 JUNO kl. 6 - 8 - 10:10 7 UNDRAHUNDURINN ÍSL TAL kl. 6:10 L STEP UP 2 kl. 8:20 - 10:30 7 - bara lúxus Sími: 553 2075 LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR SEMI-PRO kl. 6, 8 og 10 12 FLUGDREKAHLAUPARINN kl. 5.30, 8 og 10.20 12 RAMBO kl. 8 og 10 16 ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.30 L 2 - 24. Stundir - V.J.V., Topp5.is - M.M.J., kvikmyndir.com - S.V., MBL - L.I.B., topp5.is 20% afsláttur fyrir Vörðufélaga Músíktilraunir hefjast í kvöld í 26. skipti. Fyrst fóru þær fram árið 1982. Þessi uppskeruhátíð bíl- skúrsbandanna fer nú fram í Austurbæ eins og undanfarin ár og verður tekið hart á því. Tíu hljómsveitir spila hvert kvöld vik- unnar, samtals fimmtíu sveitir. Öll kvöldin opnar húsið kl. 18 en dag- skrá hefst stundvíslega kl. 19. Miðaverð er 800 kall. Úrslita- kvöldið verður svo haldið í Lista- safni Reykjavíkur á laugardaginn. Hljómsveitirnar eru hefðbundið bland í poka. Á Músíktilraunum má finna blýþung rokkbönd, gáskafull flippbönd, spekingsleg listabönd og allt þar á milli. Allar hljómsveitirnar eru þó með af fullri alvöru enda kostaði 6.000 kall að skrá sig. Að vanda eru stelpur í miklum minnihluta þrátt fyrir jafnréttisátak undangeng- inna ára. Í kvöld stíga sem dæmi fjórar stelpur á svið en 37 strákar. Í ár var einni hljómsveit vísað frá keppni vegna formgalla. Hljómsveitin DJ Flugvélar og Geimskip hafði gefið út disk hjá Melar Records og selt í 12 Tónum. Það er stranglega bannað svo sveitin tók pokann sinn. Í sjö manna dómnefnd sitja full- trúar fjölmiðla. Fréttablaðið leggur fram tónlistarspekúlantinn Steinþór Helga Arnsteinsson. Músíktilraunir hefjast í kvöld SIGRAÐI Í FYRRA Rokkbandið Shogun. Royal Family-Divorce er önnur breiðskífa hinnar alíslensku Stór- sveitar Nix Noltes sem þó sérhæf- ir sig í þjóðlagatónlist frá Austur- Evrópu. Áður hefur Stórsveitin sent frá sér plötuna Orkídeur Havaí. Lögin á hinum konunglega fjölskylduskilnaði eru öll búl- görsk þjóðlög eins og þorri síð- ustu plötu. Stórsveitin heldur sig semsagt á svipuðum nótum enda átti maður ekki von á því að teknar væru einhverjar U-beygjur. Alls telur Stórsveit Nix Noltes ellefu manns, ef marka má upp- lýsingar í umslagi plötunnar, og er því stórsveit í orðsins fyllstu. Hljómsveitin er líka stórsveit að því leyti að hún inniheldur stór- menni í íslensku tónlistarlífi, landslið grasrótartónlistarmanna. Því kemur ekki óvart að spila- mennskan á plötunni er á engan hátt fálmkennd heldur svo bylm- ingsþétt að Stórsveitin gæti slegið við hvaða innfæddu búlgörsku bandi sem er. Hljómurinn er samt pönkaðri og háværari en gengur og gerist í flutningi tónlistar frá Austur- Evrópu. Rafmagnsgítarar eru áberandi, allt að því taumlausir og fá jafnvel að surga með tilheyr- andi látum. Trommu- og ásláttar- leikur skipar stóran sess og er hreint út sagt stórbrotinn en sem fyrr eru það blásturs- og strengja- hljóðfærin sem hjálpast við að skapa aðalandrúmsloftið. Tónlist plötunnar er tónlist hinna miklu tilfinningasveiflna. Í Trakijska Racenica og Wedding Rachenitsa er ofsinn allsráðandi á meðan gleðin er meira áberandi í Pajdusko og Kopanitsa. En eins og sönnum skilnaði sæmir er treginn sjaldnast langt undan og sorgin kemur oft við sögu. Þannig býr ólýsanleg sorgarþjáning yfir Atmadja Duma Strachilu (Revo lut- ion Song) og þungi síðustu þriggja Horo(dans)-laganna fer ekki framhjá neinum. Fljótt á litið – eða rétta sagt hlustað – er fátt hægt að setja út á þessa plötu. Hins vegar mætti að einhverju leyti gagnrýna laga- valið. Valið er fjölbreytt en engin afgerandi lög fá að hljóma og sveitin nær ekki að framkalla eins mörg úrvalslög og ætla mætti. En þegar jafn færir tón- listarmenn og þeir sem skipa Stórsveit Nix Noltes koma saman og leika þessa tegund tónlistar, af þeirri innlifun sem raun ber vitni, býður formið ekki upp á að útkoman verði slæm. Steinþór Helgi Arnsteinsson Skínandi skilnaður TÓNLIST Royal Family-Divorce Stórsveit Nix Noltes ★★★★ Austur-Evrópu danssveiflan heldur áfram hjá Stórsveitinni og er jafnvel enn tilfinningaþrungnari en áður. Gamlar plötur frá Bítlaárunum seljast dýru verði á netinu. Rúnar Júlíusson seldi eina plötu á fjörutíu þúsund krónur. Ein verðmætasta íslenska hljómplata sögunnar er tvöfaldi smáskífupakkinn Umbarumbamba, sem útrásararmur Hljóma, Thor‘s Hammer, fékk gefinn út í Englandi á vegum Parlaphone merkisins árið 1966. Samtals eru sex lög á plötunum tveimur og hefur plötutvennan fengið safnara til að punga allhressilega út í þau fáu skipti sem hún er boðin til sölu. Mega þeir sem vilja vel með farin eintök allt eins eiga von á að þurfa að borga því sem nemur um 200.000 íslenskar krónur fyrir þennan sjaldséða grip. „Þetta er ágætis peningur fyrir eldgamlar plötur,“ segir Rúnar Júlíusson. „Það eru sumir sem vilja eiga upprunaleg eintök en það má fá alla þessa tónlist á disknum From Keflavík with Love og meira til. Ég á nú bara eitt eintak af Umbarumbamba, sem er ekki til sölu, en fyrir sirka tuttugu árum kom Svíi til mín og froðufelldi alveg þegar hann sá að ég átti aukaeintak. Hann suðaði svo mikið að ég seldi honum það að lokum á fjörutíu þúsund kall.“ Thor‘s Hammer ævintýrið stóð yfir þegar Pétur Östlund spilaði á trommur með bandinu. „Þetta var lægðin hjá Hljómum,“ segir Rúnar. „Við spiluðum blús og vorum í útrás í London, fyrstir íslenskra hljómsveita. Þetta efni var tekið upp út í London við góð skilyrði og mér finnst þetta hafa elst vel. Verðið sem fólk er að borga fyrir plöturnar segir að þetta efni hefur lifað í meira en fjörutíu ár og er þetta þá ekki orðið sígilt? Miða þeir ekki við fjörutíu ár í klassíkinni?“ Eintök af Umbarumbamba eru ekki á hverju strái og það má jafnvel fá gott verð fyrir hálfköruð eintök. Þannig seldist eitt á dögunum á eBay á 215 dollara þótt aðeins væri um að ræða aðra plötuna í litljósrit- uðu umslagi, ekki upprunalegu. Hljómsveitin Thor‘s Hammer fékk einnig tvö lög gefin út á smáskífu í Bandaríkjunum hjá Columbia merkinu og sú plata er einnig sjaldséð. Nú er eintak í boði á Ebay á 300 dali. Verðmæti hluta breytist í tímans rás. Á útsölu- markaði Steina í kringum 1990 mátti kaupa Umba- rumbamba á fimmtíu kall. Gamla íslenska fimmtíu- kallaseðla má nú aftur á móti kaupa á Ebay á 6 dali. gunnarh@frettabladid.is Gamalt bítl á okurprís RÚNAR, ENGILBERT, GUNNAR OG ERLINGUR SIRKA 1967 Engilbert hefur hér leyst Pétur Östlund af hólmi og Thor‘s Hammer ævintýrinu er lokið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.