Fréttablaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þráins Bertelssonar Í dag er mánudagurinn 10. mars, 70. dagur ársins. 8.03 13.38 19.15 7.49 13.23 18.57 Björgólfsfeðgar í mál við dæmdan dópsmyglara“. Segir í stórri fyrirsögn á frétta- miðlinum visir.is. Svo kemur fréttin: „Eignarhaldsfélagið Vatn og land sem er í eigu Björgólfs- feðga hefur höfðað mál á hendur Ársæli Snorrasyni. Ársæll var í október á síðasta ári dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir fíkni- efnasmygl í BMW málinu svo- kallaða. Björgólfsfeðgar hafa nú stefnt Ársæli fyrir dóm vegna vangoldinnar húsaleigu en hann býr í húsi við Laugaveg sem er í eigu félagsins.“ „Ársæll var eins og áður segir dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir aðild sína að BMW málinu en í því voru 15 kíló af amfetamíni og 10 kíló af hassi flutt til landsins í bensíntanki BMW bifreiðar. Áður hafði hann hlotið dóm í Hollandi fyrir fíkni- efnasmygl. Hann bíður nú afplán- unar eftir því sem Vísir kemst næst.” ÞETTA er athyglisverð frétt og rifjar upp þá ljótu hluti sem gerast stundum í fasteignabransanum og ég hef skrifað um áður: Peninga- menn fela fasteignasölum að sölsa undir sig eignir með öllum tiltækum ráðum. Vinsælt er þá að kaupa íbúð í fjölbýlishúsi, afhenda hana síðan til afnota fyrir vímu- efnaneytendur. Láta það síðan ber- ast meðal íbúðaeigenda að íbúðir hækki ekki í verði við að hafa svona fólk í húsinu og geti orðið með öllu óseljanlegar. FÓLK kann ekki að takast á við glæpamenn og lætur undan þrýst- ingi fasteignasalans. Þegar fast- eignasalanum hefur með þvingun- um og hótunum tekist að komast yfir tiltekna fasteign fer hann á fund húsbónda síns, vammlauss viðskiptajöfurs sem tekur við eigninni. Hinum stórhuga mann- vini og athafnaskáldi sem eignast svona fasteign klæjar í fingurna eftir því að geta látið framfarir hefjast. Aðeins eitt er eftir. Það er að koma út leigjendunum sem voru settir inn í hjallinn til að fæla burt húseigendur. Það er ekkert mál. Til þess höfum við dómstóla. VÍKJUM NÚ aftur að fréttinni hérna í upphafi sem auðvitað tengist svona ribbaldahætti ekki nokkurn skapaðan hlut. En af því að allir eiga nú að vera jafnir fyrir lögunum finnst mér að blaðamenn sem telja við hæfi að rifja upp sakaferil einhvers málsaðila eigi að rifja upp sakaskrá allra sem að málinu koma. Ekki bara þeirra fátæku. Sakamenn og sjentilmenn!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.