Fréttablaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn
10. mars, 70. dagur ársins.
8.03 13.38 19.15
7.49 13.23 18.57
Björgólfsfeðgar í mál við dæmdan dópsmyglara“.
Segir í stórri fyrirsögn á frétta-
miðlinum visir.is. Svo kemur
fréttin: „Eignarhaldsfélagið Vatn
og land sem er í eigu Björgólfs-
feðga hefur höfðað mál á hendur
Ársæli Snorrasyni. Ársæll var í
október á síðasta ári dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir fíkni-
efnasmygl í BMW málinu svo-
kallaða. Björgólfsfeðgar hafa nú
stefnt Ársæli fyrir dóm vegna
vangoldinnar húsaleigu en hann
býr í húsi við Laugaveg sem er í
eigu félagsins.“ „Ársæll var eins
og áður segir dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir aðild sína að BMW
málinu en í því voru 15 kíló af
amfetamíni og 10 kíló af hassi
flutt til landsins í bensíntanki
BMW bifreiðar. Áður hafði hann
hlotið dóm í Hollandi fyrir fíkni-
efnasmygl. Hann bíður nú afplán-
unar eftir því sem Vísir kemst
næst.”
ÞETTA er athyglisverð frétt og
rifjar upp þá ljótu hluti sem gerast
stundum í fasteignabransanum og
ég hef skrifað um áður: Peninga-
menn fela fasteignasölum að sölsa
undir sig eignir með öllum
tiltækum ráðum. Vinsælt er þá að
kaupa íbúð í fjölbýlishúsi, afhenda
hana síðan til afnota fyrir vímu-
efnaneytendur. Láta það síðan ber-
ast meðal íbúðaeigenda að íbúðir
hækki ekki í verði við að hafa
svona fólk í húsinu og geti orðið
með öllu óseljanlegar.
FÓLK kann ekki að takast á við
glæpamenn og lætur undan þrýst-
ingi fasteignasalans. Þegar fast-
eignasalanum hefur með þvingun-
um og hótunum tekist að komast
yfir tiltekna fasteign fer hann á
fund húsbónda síns, vammlauss
viðskiptajöfurs sem tekur við
eigninni. Hinum stórhuga mann-
vini og athafnaskáldi sem eignast
svona fasteign klæjar í fingurna
eftir því að geta látið framfarir
hefjast. Aðeins eitt er eftir. Það er
að koma út leigjendunum sem
voru settir inn í hjallinn til að fæla
burt húseigendur. Það er ekkert
mál. Til þess höfum við dómstóla.
VÍKJUM NÚ aftur að fréttinni
hérna í upphafi sem auðvitað
tengist svona ribbaldahætti ekki
nokkurn skapaðan hlut. En af því
að allir eiga nú að vera jafnir fyrir
lögunum finnst mér að blaðamenn
sem telja við hæfi að rifja upp
sakaferil einhvers málsaðila eigi
að rifja upp sakaskrá allra sem að
málinu koma. Ekki bara þeirra
fátæku.
Sakamenn og
sjentilmenn!