Fréttablaðið - 10.03.2008, Blaðsíða 8
8 10. mars 2008 MÁNUDAGUR
SAMGÖNGUR Miklabraut og Kringlu-
mýrarbraut eru tvær af megin-
umferðaræðum höfuðborgar-
svæðisins og eru gatnamót þeirra
ein fjölförnustu gatnamót
landsins. Miklar framkvæmdir í
þremur áföngum eru nú aftur
komnar á dagskrá en meðal til-
lagna eru mislæg gatnamót á
þremur hæðum og aðliggjandi
stokkar.
Voru tillögurnar kynntar á fundi
Umhverfis- og samgönguráðs
Reykjavíkurborgar í síðustu viku.
Er um samvinnuverkefni Vega-
gerðarinnar og Reykjavíkurborg-
ar að ræða en engar ákvarðanir
hafa verið teknar um frekari
framkvæmdir. Heildarkostnaður
er áætlaður 12,2 milljarðar króna
og er kostnaður vegna uppkaupa
þar ekki innifalinn.
Í stuttu máli mætti segja að
ofanjarðar verði hægari umferð í
hverfin við brautirnar en hraðari
umferð í gegnum svæðið fari í
stokkum undir gatnamót Miklu-
brautar og Kringlumýrarbrautar.
Samkvæmt tillögunum er áætlað
að byggja þar hringtorg sem verði
2,5 metrum hærra en núverandi
gatnamót.
Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, segir margt í tillögunum á
þeim nótum sem sjálfstæðismenn
hafi talað um. „Þó finnst mér að
sumt eigi eftir að slípa betur.“ Þá
telur hann mjög ánægjulegt að sjá
í tillögunum að stokkurinn sé far-
inn að ná vestur fyrir
Rauðarárstíg.
„Mér finnst augljóst að setja
stokk á Miklubrautina til móts við
Stakkahlíð og Miklatún í algeran
forgang,“ segir Dagur B. Eggerts-
son, borgarfulltrúi Samfylkingar-
innar. Það sé helsti flöskuhálsinn á
svæðinu en ekki gatnamót Kringlu-
mýrar- og Miklubrautar sem mikið
var breytt árið 2005. Telur Dagur
þær breytingar hafa sannað sig.
„Ég held að aðrar framkvæmdir
séu miklu brýnni,“ segir Dagur
sem vill að það sem kallað er þriðji
áfangi sé tekið fyrst fyrir. „Hitt á
að fara í samráðsferli eins og lofað
hefur verið.“
„Við tökum nú upp þráðinn og
ætlum að reyna að keyra eins
hratt og hægt er án þess að slá
neitt af samráði,“ segir Gísli Mart-
einn. Hann telur að hægt verði að
byrja framkvæmdir á árunum
2009 eða 2010. „Við höfum kallað
þetta umhverfislausnina þar sem
þetta er fyrst og fremst til að bæta
lífsgæði fólksins á svæðinu.“
olav@frettabladid.is
Stórframkvæmdir
í þremur áföngum
Stokkar og mislæg gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar eru aftur
komin á dagskrá. Lokaðir stokkar fyrir hraðari umferð með tveggja akreina
yfirborðsgötum fyrir hverfaumferð. Aðrar framkvæmdir sagðar brýnni.
GATNAMÓTIN Í DAG Um 80-85 þúsund
bílar fara um gatnamótin á hverjum
sólarhring. MYND/LÍNUHÖNNUN HF. - ONNO EHF
FYRIRHUGAÐ HRINGTORG Gatnamót Krinlumýrar- og Miklubrautar með hringtorgi og
stokkum. MYND/LÍNUHÖNNUN HF. - ONNO EHF.
PAKISTAN, AP Tveir stærstu
stjórnar andstöðuflokkarnir í Pak-
istan hafa ákveðið að taka höndum
saman og mynda samsteypu-
stjórn.
Asif Ali Zardari, eftirlifandi
eiginmaður stjórnarandstöðuleið-
togans Benazir Bhutto, undirritaði
í gær ásamt Nawaz Sharif, fyrrver-
andi forsætisráðherra, samning
um myndun samsteypu stjórnar.
Jafnframt lýstu þeir því yfir að
þeir muni endurráða tugi dóm-
ara, meðal annars úr hæstarétt
landsins, sem Pervez Musharraf
forseti rak úr embætti á síðasta
ári til að tryggja sér áframhald-
andi setu á forsetastól.
Þjóðarflokkur Bhutto fékk 120
þingsæti í kosningunum í febrú-
ar og Múslimabandalag Sharifs
hlaut 90 þingsæti, þannig að
samanlagt hafa flokkarnir 210
sæti af 342. Stjórnarflokkur Mus-
harrafs hlaut aðeins 51 þingsæti
og hefur því glatað þing-
meirihluta.
Ólíklegt þykir að Musharraf
forseti muni taka vel í áform
þeirra um að endurráða dómar-
ana. Hann hvatti á laugardag
sigurvegara kosninganna til þess
að „láta pólitíkina eiga sig“ en ein-
beita sér að því að „stjórna
landinu“.
Musharraf hefur stjórnað í Pak-
istan síðan 1999 þegar hann steypti
stjórn Sharifs af stóli í valdaráni.
- gb
Sharif og ekkill Bhutto taka höndum saman um stjórnarmyndun í Pakistan:
Ætla að endurráða dómarana
ZARDARI OG SHARIF Leiðtogar stjórnar-
andstöðuflokkanna ætla að mynda
samsteypustjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
WWW.N1.ISN1 ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR
Nú hefur N1 hafið sölu á Biodísel sem er lífrænt endurnýjan-
legt eldsneyti, blandað í venjulega díselolíu. Biodísel er á
sama verði og venjuleg díselolía en mengar mun minna og
smyr bílinn betur.
N1 Hringbraut í Reykjavík
N1 Skógarseli í Reykjavík
N1 Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði
Biódísel fæst á eftirtöldum þjónustustöðvum:
FÆREYJAR Linjohn Christiansen, bæjarstjóri Skála-
víkur í Færeyjum, segir uppbyggingu eftir skemmd-
ir vegna óveðurs um mánaðamótin janúar/febrúar
ekki hafna af neinum krafti.
Landsverk sér um að meta skaðann, kostnað við
endurgerð sjóvarnargarðsins, dýpkun og fleira tengt
höfninni sem fór afar illa í óveðrinu. „Bakkinn
sunnan við höfnina er allur farinn,“ segir Linjohn.
Önnur félög meta skemmdir á byggingum og
kirkjugarðinum.
„Viðgerðirnar snúast um að endurgera varnirnar
og fyrirbyggja að eitthvað svona gerist aftur.“
Sjóvarnargarðurinn mun meðal annars ná lenga út.
Kostnaður á að liggja fyrir 14. mars.
„Fólk hefur það gott. Það missti báta í höfninni en
einnig brotnuðu bátar sem voru uppi á landi.“
Hann segir enga nýja báta komna í staðinn enda
sé bannað að nota höfnina í því ástandi sem hún er.
„Flestir hér í Skálavík eru í hlutastöfum á sjó en hér
vinna þó allir eitthvað tengt sjónum.“ Hluti fólksins
vinnur til dæmis við fiskvinnslu í næsta
bæjarfélagi.
Hann er þakklátur Íslendingum fyrir fjársöfnun
fyrir íbúa Skálavíkur sem stendur yfir til 14. mars.
„Við erum ein hérna úti í Atlandshafinu, Ísland og
Færeyjar, og það er gott að hjálpa hvor öðrum,“
segir Linjohn sem vonar að uppbyggingu ljúki fyrir
næsta vetur. - ovd
Bæjarstjóri Skálavíkur segir mat á tjóni sem óveður olli á höfninni ekki liggja fyrir:
Þakklátur íslensku þjóðinni
MIKLAR SKEMMDIR Í SKÁLAVÍK Brak úr bátum og mannvirkj-
um við höfnina náði langt upp á land. MYND/PALLI Á LAVA OLSEN