Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 13
MÁNUDAGUR 10. mars 2008
REKSTUR Átta framhaldsskólar eiga
tíu prósent eða meira af fjárheim-
ildum í uppsöfnuðum rekstrar-
afgangi eftir árið 2007. Fjölbrauta-
skólinn við Ármúla er ríkasti
framhaldsskólinn í landinu. Hann
á 130 milljónir króna í sjóði. Iðn-
skólinn í Hafnarfirði kemur næst-
ur. Hann á 121 milljón króna og
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er í
þriðja sæti með 109 milljónir
króna.
Ólafur H. Sigurjónsson, aðstoðar-
skólameistari Fjölbrautaskólans
við Ármúla, segir að mikill fjöldi
nemenda, lítið húsnæði og margir
nemendur í fjarnámi hafi gert
skólanum kleift að skila miklum
rekstrarafgangi. Í vor hefjist
framkvæmdir og gert sé ráð fyrir
að skólinn eigi fyrir innréttingum
og búnaði. „Svo auðvitað rekum
við skólann vel,“ segir hann.
Jóhannes Einarsson, skóla-
meistari Iðnskólans í Hafnarfirði,
segist hafa á fimmta ár reynt að
fá húsnæðið stækkað. „Við búum í
húsi sem var frumkvöðlaverkefni
á sínum tíma og náðum hagstæð-
um samningum. Skipulagsbreyt-
ingar á námskrám hafa gefið
möguleika á að nýta húsnæðið
betur. Meðalaldur starfsmanna er
ekki nema sjö ár, þar af hefur
helmingur verið innan við fimm
ár og grunnlaun því í lægri kant-
inum. Fjármálastjórnin er öflug,
við höfum alltaf
getað staðið í
skilum en fyrst
og fremst er
þetta vegna
þess að við
búum þröngt.“
„Mig grunar
að skýringin sé
sú að við erum
með frekar hátt
hlutfall af fjar-
nemendum sem
hafa ekki reynst jafn dýrir og
hinir. Maður vonast svo til að hafa
aðhald og hagkvæman rekstur.
Við erum í nýlegu húsnæði og
ekki fer mikið í viðhald,“ segir
Eyjólfur Guðmundsson, skóla-
meistari í Austur-Skaftafells-
sýslu.
Gísli Þór Magnússon, skrif-
stofustjóri í menntamálaráðu-
neytinu, segir að skýringarnar á
sjóðasöfnuninni séu margvísleg-
ar. Framhaldsskólar hafi náð botni
í skuldum gagnvart ríkissjóði árið
2003 og verið að vinna sig úr þeim
síðan. Í sumum tilfellum hafi
rekstrar afgangur safnast upp í
langan tíma og aðrir skólar leggi
til hliðar fyrir framkvæmdum eða
fjárfestingum. ghs@frettabladid.is
ÓLAFUR H.
SIGURJÓNSSON
Fjölbraut við
Ármúla rík-
asti skólinn
Fjölbrautaskólinn við Ármúla er með 130 millj-
ónir króna í safnsjóði. Iðnskólinn í Hafnarfirði er
næstríkastur með 121 milljón. Framhaldsskólinn í
Austur-Skaftafellssýslu hefur einnig staðið sig vel.
LÍTIÐ HÚSNÆÐI OG MARGIR Í FJARNÁMI Átta framhaldsskólar eiga væna sjóði eftir
uppsafnaðan rekstrarafgang síðustu ára. Fjölbrautaskólinn við Ármúla er ríkastur,
hann á 130 milljónir króna í sjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
RÍKUSTU FRAMHALDSSKÓLARNIR
- Uppsafnaður rekstrarafgangur samkvæmt fjárheimild
Í sjóði Hlutfall af fjárheimildum 2007
Fjölbraut í Ármúla 130 milljónir 18
Iðnskólinn í Hafnarfirði 121 milljónir 22
Fjölbrautaskóli Suðurnesja 109 milljónir 18
Borgarholtsskóli 78 milljónir 10
MR 46 milljónir 10
Framhaldssk. í A-Skaftafellssýslu 32 milljónir 23
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum 26 milljónir 15
Framhaldsskólinn á Húsavík 25 milljónir 20
NEYTENDUR Flugfélögin Icelandair
og Iceland Express bjóða nú far-
þegum sínum upp á að innrita sig
í flug gegnum netsíður flugfélag-
anna. Farþegar sem innrita sig
með þessum hætti sleppa við
hefðbundna innritun á brottfarar-
stað. Er þetta gert til að spara
farþegum tíma og auka þægindi
þeirra.
„Þróunin er sú að langflestir
kaupa rafræna farseðla á netinu
og netinnritun er eðlilegt fram-
hald af því,“ segir Gunnar Már
Sigurfinnsson, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Ice-
landair. Hann segir Icelandair
hafa lagt áherslu á að byrja með
þessa þjónustu á Íslandi. „Við
munum svo innan tíðar bjóða upp
á netinnritun frá áfangastöðum
okkar erlendis.“
Til að byrja með verður vefinn-
ritun Iceland Express einungis í
boði fyrir farþega sem eru á leið
frá Kaupmannahöfn til Íslands en
fljótlega munu fleiri áfangastaðir
bætast við. - ovd
Liður í að auka þjónustu og spara tíma flugfarþega:
Flugfélögin bjóða
upp á netinnritun
Tilfinningatjón
er ekki metið
til fjár
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tm.is og fáðu skýr svör.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
M
I
41
09
8
02
/0
8
Áfallahjálp hjá TM
Þeir sem eru vel tryggðir fá efnisleg verðmæti sín bætt, en eftir stendur oft tilfinningatjón
sem ekki verður metið til fjár. Það er vel þekkt staðreynd að áföll eða slys geta haft í för
með sér áfallastreitu og leitt til langvarandi áfallaröskunar ef ekki er gripið í taumana.
TM gengur nú skrefinu lengra í þjónustu sinni og er eina tryggingafélagið á Íslandi
sem býður tjónþolendum upp á áfallahjálp í sínum tryggingaskilmálum.
Áfallahjálpin er veitt af sálfræðingi og er innifalin í Heimatryggingu TM.
Þannig vinnum við saman úr áfallinu og stuðlum að því að það hafi ekki neikvæðar
afleiðingar til lengri tíma fyrir viðskiptavini okkar.
Áfallahjálp TM TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tm.is / www.tm.is