Fréttablaðið - 10.03.2008, Page 53

Fréttablaðið - 10.03.2008, Page 53
MÁNUDAGUR 10. mars 2008 25 Ein ástsælasta hljómsveit landsins, Sálin hans Jóns míns, er nákvæmlega tuttugu ára í dag. Afmælið er miðað við fyrstu tónleika sveitarinnar sem haldnir voru í Bíókjallaranum fimmtudagskvöldið 10. mars 1988. „Við höfðum ráðið okkur sem húsband í kjallaranum út marsmánuð og réðumst strax í að taka upp plötu fyrsta kvöldið, þannig að mikið var undir,“ segir Stefán Hilmarsson. „Það var mikil samkeppni um tónleikagesti þetta kvöld. Fyrir ofan okkur í Tunglinu var hljómsveitin E-X að spila og HAM að hita upp fyrir þá.“ Þetta var í fyrsta skipti sem HAM spilaði, svo HAM er nákvæmlega jafngömul Sálinni. E-X var að kynna nýja tveggja laga plötu, sem reyndar týndist á leiðinni til landsins og kom aldrei út. Í Casablanca við Skúlagötu var svo Geiri Sæm að spila með Hunangstunglinu. „Það var nokkuð líflegt á tónleikasviðinu á þessum tíma, enda internetið ekki komið til skjal- anna,“ segir Stefán. Það styttist óðum í 20 ára afmælis- tónleika Sálarinnar í Höllinni á föstudaginn. Um 5.000 manns hafa tryggt sér miða og stutt er í að verði uppselt. Tónleikadagskráin spannar allan ferilinn og verður myndum og myndböndum síðastliðinna 20 ára varpað upp á risaskjái. Í 13-platna kassanum „Vatnaskil“, sem kemur út í vikunni, verður ýmis fróðleikur um Sálina og fjöldi ljósmynda. Útgefandi og hljómsveitarmeðlimir hafa því legið í einskonar fornleifauppgreftri undanfarið. Margt hefur komið í ljós, meðal annars ljósmynd sem tekin var fyrir plötu um haustið 1991 af Stefáni í skræpóttri skyrtu. „Það var mikið búið að leita og búið að telja margar myndir af, meðal annars alla þessa sessjón frá 1991,“ segir Stefán. „Þarna skrýdd- ist ég forláta handgerðri og hand- málaðri skyrtu sem keypt var dýru verði erlendis. Pétur heitinn Kristjánsson var mjög hrifinn af skyrtunni og taldi að hún væri í það minnsta „fimmtán grýlna“, sem þóttu ansi góð meðmæli. Pétur hafði sérstakan mælikvarða á fatnað sem tók mið af því hversu margar „grýlur“ væri mögulegt að veiða á viðkomandi flík. Orðið grýla notaði hann eins og sumir nota orðin „gella“ eða „skvísa“, en það þótti honum alltof flöt orð. Óprúttinn tónleika- gestur tók svo skyrt- una ófrjálsri hendi nokkrum vikum eftir myndatökuna og hefur hennar verið sárt saknað síðan. Ef þessi fingralangi gestur hefur skyrtuna ennþá undir höndum, væri æskilegt að henni yrði skilað sem fyrst, og allra helst á föstudagskvöldið!“ gunnarh@frettabladid.is Sálin tuttugu ára í dag AUGLÝSING FYRIR FYRSTA GIGG SÁLAR- INNAR Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá. HVER LUMAR Á ÞESSARI SKYRTU? Stefán vill fá hana aftur, enda er hún „fimmtán grýlna“.                                                    Hljómsveitin Skátar fékk á dögunum verðlaunin „Sonicbids- listamaður vikunnar“ hjá hinu virta bandaríska tónlistartímariti CMJ. Viðurkenningin þýðir að hljóm- sveitin verður kynnt rækilega bæði í CMJ og á heimasíðu Sonicbids, en þar eru þær hljómsveitir kynntar sem sækja um að spila á hinum ýmsu tónlistarhátíðum. Á meðal þeirra eru SXSW í Texas, Popkomm í Berlín, Great Escape í Brighton og Iceland Airwaves. Fram undan hjá Skátum er spilamennska á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem fer fram 21. til 23. mars. Einnig stefnir sveitin á upptökur á nýjum lögum í apríl. Listamenn vikunnar SKÁTAR Hljómsveitin Skátar var valin Sonicbids-listamenn vikunnar. Bandaríski tónlistarmaðurinn Neil Young spilar á Hróarskeldu- hátíðinni í Danmörku í byrjun júlí. Sjö ár eru liðin síðan Young steig síðast á svið á Hróarskeldu við mjög góðar undirtektir. Á meðal þeirra sem hafa einnig boðað komu sína á hátíðina í sumar eru Radiohead, Chemical Brothers, Slayer, Band of Horses, My Bloody Valentine, The Streets og Teitur. Stefnir því allt í fjölbreytta og skemmtilega hátíð í ár eins og svo oft áður. Nánari upplýsingara má sjá á síðunum roskilde-festival.is og roskilde-festival.dk. Neil Young á Hróarskeldu Á meðan Christina Aguilera hefur hoppað af hamingju yfir nýjum og þrýstnari línum í kjölfar fæðingar er Nicole Richie, önnur nýbökuð móðir, ekki jafn hrifin - mömmu- brjóstin passa ekki við fataskápinn hennar. „Ég er oft í peysum sem sést í gegnum, en það er ekki druslulegt á mér þar sem það er ekkert að sjá. Nú get ég ekki farið í þær lengur,“ segir hún. FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.