Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 58

Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 58
30 10. mars 2008 MÁNUDAGUR Nýttu þér þetta TILBOÐ og stofnaðu rei kning á spron.is16% vaxtaauki! A RG U S / 08 -0 10 0 Enska bikarkeppnin: Middlesbrough-Cardiff 0-2 0-1 Peter Whittingham (9.), 0-2 Roger Johnson (23.). Bristol Rovers-West Bromwich 1-5 0-1 James Morrison (16.), 0-2 Ishmael Miller (30.), 1-2 Danny Coles (32.), 1-3 Miller (69.), 1-4 Kevin Phillips (73.), 1-5 Miller (85.). Enska úrvalsdeildin: Sunderland-Everton 0-1 0-1 Andy Johnson (55.) Tottenham-West Ham 4-0 1-0 Dimitar Berbatov (8.), 2-0 Dimitar Berbatov (10.), 3-0 Gilberto (85.), 4-0 Darren Bent (90.). Wigan-Arsenal 0-0 Lengjubikarinn: Fram-ÍA 2-1 0-1 Andri Júlíusson, 1-1 Jón Þorgrímur Stefánsson, 2-1 Henrik Eggerts. Grindavík-Valur 1-4 0-1 Helgi Sigurðsson, 0-2 Helgi Sigurðsson, 0-3 Helgi Sigurðsson, 0-4 Helgi Sigurðsson, 1-4 Andri Steinn Birgisson, víti. KA-Þróttur R. 1-0 1-0 Almarr Ormarsson (73.) Fjarðabyggð-HK 1-1 0-1 Mitja Brulc (5.), 1-1 Guðmundur Atli Stein þórsson (75.) KS/Leiftur-Þróttur R. 1-3 1-0 William Geir Þorsteinsson, 1-1 Carlos Bernal, 1-2 Hallur Hallsson, 1-3 Andrés Vihjálmsson. FH-Fjölnir 4-0 1-0 Jónas Grani Garðarsson (20.), 2-0 Atli Viðar Björnsson (57.), 3-0 Tryggvi Guðmundsson (66.), 4-0 Tryggvi Guðmundsson (69.). KR-Víkingur R. 4-0 1-0 Björgólfur Takefusa (10.), 2-0 Guðjón Bald vinsson (66.), 3-0 Guðjón Baldvinsson (89.) , 4-0 Guðmundur Pétursson (90.) . Spænski fótboltinn: Barcelona-Villarreal 1-2 0-1 Marcos Senna, víti (31.), 1-1 Xavi (67.), 1-2 Jon Dahl Tomasson (81.), Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á bekknum. Real Madrid-Espanyol 2-1 0-1 Valdo (29.), 1-1 Gonzalo Higuaín (43.), 2-1 Raúl, víti (72.). Ítalski körfuboltinn Air Avellino-Lottomatica Roma 64-72 Jón Arnór Stefánsson skoraði 11 stig á 17 mínút- um í sigri á bikarmeisturunum. Jón Arnór hitti meðal annars úr 3 af 4 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. ÚRLSITIN Í GÆR KÖRFUBOLTI Friðrik Ingi Rúnars- son, framkvæmdastjóri KKÍ og Sigurður Ingimundarson, lands- liðsþjálfari A-landsliðsins, heim- sóttu þá Jón Arnór Stefánsson og Loga Gunnarsson um helgina og í síðustu viku og fóru yfir komandi landsliðsverkefni með leikmönn- unum sem og forráðamönnum félaga þeirra. Jón Arnór leikur með Lottomatica Roma í ítölsku úrvalsdeildinni en Logi með Farho Gijon í spænsku silfurdeildinni. „Við höfum ekki gert neitt af því undanfarin ár að fara á heimavelli strákanna sem hafa verið að spila úti. Þetta er byrjunin á því og eitt- hvað sem þekkist hjá öðrum sam- böndum. Strákarnir eru líka mjög ánægðir og það kemur kapp í þá að fá einhverja í heimsókn til þess að sjá í hvaða umhverfi þeir eru. Það var líka markmiðið að ræða sumarið og haustið og sýna klúbb- unum það að við viljum að þessir strákar séu með landsliðinu öllum stundum.“ Jón Arnór Stefánsson var ekki með íslenska liðinu síðastliðið haust vegna pressu frá félagi sínu en nú er staðan önnur. Friðrik Ingi var ánægður með ferðina. Strákarnir eru spenntir „Þetta hefur gengið ljómandi vel. Strákarnir eru mjög spenntir og finnst margt spennandi fram- undan og við erum bjartsýnir á að þetta gangi allt vel upp fyrir sum- arið og haustið,“ segir Friðrik Ingi en allar líkur eru á að þeir Jón Arnór og Logi mun spila áfram með þessum liðum á næsta tíma- bili. Þessi heimsókn mun því örugg- lega stuðla að því að strákarnir geti tekið þátt í undirbúningi landsliðsins fyrir B-deild Evróu- keppninnar sem hefst í haust. „Jón Arnór verður áfram og Logi verður örugglega áfram ef liðið fer upp í LEB1 sem þeir eru að berjast um núna, því hann er með tryggðan samning takist lið- inu það. Ef það gerist þá ætlar hann að skoða sín mál og kanna markaðinn. Honum líður mjög vel þarna og þetta er mjög flott, höllin er stór og það er mikill körfubolta- áhugi í borginni enda er þetta lið sem var í efstu deild fyrir nokkr- um árum síðan,“ segir Friðrik Ingi. Það hittist svo á að Logi eign- aðist sitt fyrsta barn rétt á meðan þeir Sigurður og Friðrik Ingi voru í heimsókn. Eignaðist sitt fyrsta barn „Við ákváðum þennan tíma í sam- ráði við þau og barnið átti ekki að koma þá. Svo þegar við vorum á flugvellinum í Róm, á leiðinni til Madríd í milliflugi áður en við síðan flugum til Asturias, þá hringdi hann í mig og sagði að hún væri bara komin á fæðingardeild- ina og hann yrði þar svolítið mikið og vissi ekki hvað myndi gerast. Hann vildi endilega að við kæmum þannig að við héldum okkar striki og fórum til hans. Logi hleypti okkur inn í íbúðina sína og dreif sig síðan aftur á sjúkrahúsið. Hann kom síðan heim um nóttina sigurreifur enda nýbúinn að eign- ast stúlku,“ lýsir Friðrik Ingi sem er farinn að plana hópferð til Rómar. „Það þarf að skoða það fyrir úrslitakeppnina hjá þeim í vor og eins fyrir næsta ár að fara með einhverja hópferð út til Róm og leyfa fólki að koma og sjá þetta. Þetta er mjög stór og mikill heim- ur hér í Róm og ég held að maður hafi ekki sjálfur áttað sig alveg á því hversu stórt og vinsælt þetta er,“ segir Friðrik Ingi sem segir Jón Arnór vera eitt af andlitum Lottomatica-liðsins. „Jón Arnór er utan á stærstu adidas-búðinni í borginni. Hann hefur verið í myndatöku hjá adidas ásamt Del Rossi, miðju- manninum hjá fótboltaliðinu. Hann er þekktur og maður fann það þegar við löbbuðum með honum niður í bæ að fólk þekkti hann, vissi hver hann var og er að fylgjast með honum. Þetta er til- komumikið og mjög gaman að upplifa þetta,“ sagði Friðrik Ingi að lokum. ooj@frettabladid.is Jón Arnór er þekkt andlit í Róm Framkvæmdastjóri KKÍ og þjálfari A-landsliðsins heimsóttu atvinnumennina Jón Arnór Stefánsson og Loga Gunnarsson sem eru að gera það gott í ítalska og spænska körfuboltanum. TILKOMUMIKIÐ Friðrik Ingi Rúnarsson, framkvæmdastjóri KKÍ, var ánægður með ferðina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN LOGI GUNNARSSON Spilar með Farho Gijon á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI JÓN ARNÓR STEFÁNSSON Spilar með Lottomatica Roma á Ítalíu. NORDICPHOTOS/AFP FÓTBOLTI Topplið Arsenal náði aðeins markalausu jafntefli gegn Wigan í ensku úrvalsdeildinni í gær og Manchester United getur því náð eins stigs forskoti vinni liðið leikinn sem meistararnir eiga inni. Leikur Arsenal var ekki sann- færandi í gær og liðið skapaði sér ekki mikið af færum. Emmanuel Adebayor og Cesc Fabregas fengu bestu færin fyrir hlé og það kveikti ekki í liðinu að Robin van Persie kom inn á í seinni hálfleik og spilaði í fyrsta sinn í tvo mán- uði. Þetta var þriðja jafntefli Ars- enal í röð í deildinni en áður hafði liðið gert 2-2 jafntefli við Birmingham og 1-1 jafntefli við Aston Villa. „Ég er viss um að við náum okkur á strik á ný en við erum ekki að fá nógu mörg stig þessa dagana. Við þurfum bara að halda rónni, einbeitingunni og trúnni og þá hef ég trú á að liðið geti unnið titil- inn,“ sagði Ars- ene Wenger, stjóri Arsenal, en liðið hefur nú tveggja stiga forskot á Manchester United og átta stiga forskot á Chel- sea sem voru bæði upptek- in í bikarnum og léku því ekki um helgina. Andy Johnson tryggði Everton 0-1 sigur á Sunderland, en með því komst liðið aftur upp að hlið nágranna sinna í Liver- pool í baráttunni um fjórða og síð- asta sætið inn í Meistaradeildina. „Þetta voru frá- bær úrslit eftir það sem við geng- um í gegnum í vikunni. Það eru allir að segja að lið vinni ekki leiki þegar þau koma til baka úr Evrópuferðum en við höfum afsannað það nokkrum sinnum í vetur,“ sagði David Moyes, stjóri Everton en liðið tapaði 0-2 fyrir Fiorentina í Evrópukeppninni í síðustu viku. West Ham vörnin virðist vera í molum því liðið fékk á sig fjögur mörk þriðja leikinn í röð í 0-4 tapi fyrir Tottenham á White Hart Lane. Dimitar Berbatov skoraði tvö mörk fyrir Spurs sem lék manni fleira allan seinni hálfleik eftir að Luis Boa Morte fékk sitt annað gula spjald rétt fyrir hlé. „Við vorum að spila við Chel- sea, Liverpool og nú Spurs. Við gáfum þeim öllum heimskuleg mörk og þetta var hræðileg vika,“ sagði Alan Curbishley, stjóri West Ham. - óój Everton fór upp að hlið Liverpool í 4. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og West Ham steinlá einu sinni enn: Þriðja jafnteflið í röð hjá toppliði Arsenal SVEKKELSI Mathieu Flamini og félagar í Arsenal hafa aðeins fengið þrjú stig af síðustu níu mögulegum. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Eftir sögulegan laugar- dag í ensku bikarkeppninni héldu óvæntir hlutir áfram að gerast í gær þegar Cardiff sló út úrvals- deildarliðið Middlesbrough. Það er því ljóst að Hermann Hreiðarsson og félagar í Portsmouth eru eina úrvals- deildarliðið í undanúrslitunum en þar eru líka 1. deildarliðin Cardiff, Barnsley og svo West Brom sem vann 5-1 stórsigur á Bristol Rovers á útivelli í gær Cardiff vann Middlesbrough 2- 0 á útivelli þar sem bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1927 að velskt lið er komið svona langt í bikarnum en það ár vann einmitt Cardiff bikarinn. Cardiff er aðeins í 14. sæti í ensku 1. deildinni. Ishmael Miller skoraði þrennu fyrir West Brom sem er komið í undanúrslitin í fyrsta sinn síðan 1982. - óój Enska bikarkeppnin í fótbolta: Ár litlu liðanna FÖGNUÐUR Cardiff sló Boro út í gær. NORDIPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.