Fréttablaðið - 10.03.2008, Síða 62
34 10. mars 2008 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. hæfileika 6. 999 8. matargeymsla
9. útdeildi 11. íþróttafélag 12. deyfa
14. einkennis 16. tímaeining 17. gagn
18. kvenkyns hundur 20. búsmali 21.
tuldur.
LÓÐRÉTT
1. göngulag 3. í röð 4. pensillín 5.
dýrahljóð 7. köldusótt 10. fálæti 13.
of lítið 15. bakhluti 16. stefna 19.
mun.
LAUSN
„Ég er mjög ánægður og ham-
ingjusamur með frábærar mót-
tökur og viðbrögð,“ segir
Björgvin Halldórsson en miðar
eru að seljast upp á tónleika hans
í Cirkus-tónleikahöllinni í Kaup-
mannahöfn 24. apríl. Í höllinni,
sem tekur 900 manns í sæti,
kemur Björgvin fram ásamt
strengjasveit Sinfóníuhljóm-
sveitar konunglegu óperunnar í
Kaupmannahöfn og fleiri lista-
mönnum.
„Þetta er glæsilegt hús. Það
vantar svona hús hérna þar sem
hægt er að sitja, horfa á tónleika
og dansa og borða,“ segir Björg-
vin sem hlakkar mikið til. „Þetta
verður æðislega gaman. Ég verð
með gott fólk með mér og það er
ögrandi að gera svona.“
Bubbi Morthens verður einnig
með tónleika í Köben 18. október í
samstarfi við Iceland Express,
höfuðkeppninaut Icelandair sem
selur pakkaferðir á tónleika Björg-
vins. Tónleikar Bubba verða á
staðnum Falconer Salen, sem
tekur 2.000 manns, og hafa nokkur
hundruð miða selst hjá Iceland
Express á aðeins rétt rúmri viku.
Þetta verður ekki í fyrsta sinn
sem Björgvin og Bubbi fylgjast að
því fyrir tveimur árum héldu þeir
báðir tónleika í Laugardalshöll,
Björgvin með Sinfóníuhljómsveit
Íslands á meðan Bubbi hélt
afmælistónleika sína. Um síðustu
jól spiluðu þeir síðan aftur í
Höllinni, Björgvin á jólatónleikum
á meðan Bubbi hélt nýárstónleika
með Stórsveit Reykjavíkur.
Spurður hvort Bubbi sé að
herma eftir honum með tónleikum
sínum í Danmörku hlær Björgvin.
„Hann á ættir sínar að rekja til
Skandinavíu. Þetta er bara spenn-
andi. Ætli við séum ekki að reyna
að sýna Dönum rétta andlitið á
Íslendingum og rétta af orðsporið
sem fer af okkur þarna með ljúf-
um tónum.“ Björgvin vill heldur
ekki meina að þeir séu að berjast
um tónleikagesti. „Bubbi er búinn
að koma oft fram í Kaupmanna-
höfn og á örugglega fullt af aðdá-
endum þar.“
Sigurður K. Kolbeinsson, hjá
www.koben.is sem skipuleggur
tónleika Björgvins, segir ekki
hægt að líkja þeim við Bubba-tón-
leikana. „Þetta er bara eins og
munurinn á að selja flottan jeppa
eða traktor. Þetta er konsert í bíó-
sal hérna úti í bæ þar sem fólk
situr bara í úlpunum og horfir á
Bubba,“ segir hann. „Hann er
mjög góður út af fyrir sig og ég
dreg ekkert dul á að hann er topp-
listamaður. En við erum að gera
allt öðruvísi hluti. Við erum með
„dinnersjóv“ og fólk mætir í sínu
fínasta taui og svo er dans til
klukkan tvö um nóttina. Það er
ekki hægt að líkja þessu saman.“
Sigurður, sem skipulagði einnig
tónleika Sálarinnar og Stuðmanna í
Kaupmannahöfn í fyrra, er þegar
farinn að undirbúa nýja tón-
leika á næsta ári og ætlar
sér greinilega stóra hluti í
framtíðinni með íslenskum
tónlistarmönnum.
freyr@frettabladid.is
BJÖRGVIN OG BUBBI: MIÐAR Á DANMERKURTÓNLEIKA RJÚKA ÚT
Jeppi og traktor til sölu
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON Björgvin hlakkar mikið til að stíga á svið í Cirkus-tónleika-
höllinni í Kaupmannahöfn.
Plötusnúðurinn Baldur Héðinsson er tilnefndur
í kosningu um besta plötusnúð Boston-borgar
annað árið í röð. Það er vikublaðið The Phoenix
sem stendur fyrir kosningunni, en Baldur fór
einmitt með sigur af hólmi í henni fyrir ári.
„Þetta virðist ætla að verða árlegur við-
burður,“ segir Baldur og hlær við. Svo vill til að
tveir af hinum fjórum plötusnúðunum sem
hljóta tilnefningar blaðsins eru ágætis vinir
hans. „Þetta er tiltölulega vinalegt, en það er
ljóst að bræður munu berjast,“ segir hann
kíminn. Baldur segir tónlistarsenuna ytra hafa
breyst töluvert. „Ég spila mest eitthvað sem
myndi kallast minimal teknó og elektró-house,
tónlist sem Íslendingar þekkja örugglega af
Sirkus, Kaffibarnum og Barnum. Þetta er farið
að heyrast miklu meira hérna úti núna,“ segir
hann.
Baldur kíkir reglulega heim á Klakann og
notar þá oftar en ekki tækifærið til að spila fyrir
landsmenn, stundum í félagi við bróður sinn.
„Hann og systir mín eiga það bæði til að kippa í
plötur. Bróðir minn gengur undir nafninu DJ
Skeletor, sem einhverjir ættu að kannast við.
Systir mín er hins vegar að stíga fyrstu sporin í
þessu,“ útskýrir Baldur, sem útilokar því ekki
þrefalt systkinagigg í framtíðinni.
Hann stundar nú doktorsnám í hagnýtri
stærðfræði við Boston University, og býst við
að ljúka því á næstu einum, tveimur árum. Hvað
þá tekur við segir hann enn óljóst. „Það er
margt spennandi að gerast heima, en svo er líka
alltaf eitthvað í boði úti í heimi sem maður
hefur ekki prófað,“ segir Baldur.
Kosning The Phoenix stendur yfir til 20.
mars, að sögn Baldurs. Nánari upplýsingar er að
finna á www.thephoenix.com.
- sun
DJ Baldur er ennþá vinsæll í Boston
TILNEFNDUR Í ANNAÐ SINN Baldur Héðinsson er aftur
tilnefndur í kosningu um besta plötusnúð Boston-
borgar, en hann bar sigur úr býtum í kosningunni í
fyrra.
BUBBI
MORTHENS
Bubbi heldur
sína tónleika
18. október í
samstarfi
við Iceland
Express.
„Vá, ég hlusta á svo margt.
Til dæmis diskinn Dót með
Fræbbblunum ef ég vil vinna
hratt og örugglega, en svo bara
Dylan og Megas út í eitt.“
Gerður Bjarnadóttir, kjólameistari hjá
Hnappi ehf.
Þegar íslenska krónan er jafn há
gagnvart erlendum gjaldmiðlum
og hún hefur verið undanfarið
eykst til muna netverslun Íslend-
inga í erlendum búðum. Stór hluti
þessara kaupa fer fram í Amazon-
netbúðinni, bæði þeirri amerísku
og þeirri ensku. Þar kaupir fólk
aðallega bækur, dvd-diska og tón-
listardiska. Nú er svo komið að
pósturinn er hættur að keyra út
bréf sem eru undir tveimur kíló-
um og sendir í staðinn tilkynn-
ingu um að pakkann megi sækja
á pósthúsið. „Þetta hefur nú ekk-
ert með Amazon að gera heldur
er þetta bara verklag sem hin
Norður löndin hafa verið að taka
upp að undanförnu og við byrjuð-
um á 1. febrúar,“ segir Anna
Katrín Halldórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölu-
sviðs Póstsins. „Þó fellur slatti af
Amazon-pökkum undir þetta við-
mið. Ég hef svo sem engar tölur
yfir það hversu stór prósenta af
því sem fer í gegn hjá okkur er
pantað frá Amazon, en það er stór
hluti og alltaf að verða stærri.
Krónan er búin að vera svo hag-
stæð lengi svo það er mikið keypt
erlendis frá.“
En borgar þetta sig? Það er
stóra spurningin. Krónan fer
lækkandi svo nú eru kannski
síðustu forvöð að nýta sér ástand-
ið. Hjá Tollinum (tollur.is) er
reiknivél sem hægt er að nota til
að gera samanburð. Bækur eru
tollfrjálsar en bera sjö prósenta
virðisaukaskatt, eins og tónlistar-
diskarnir. Þeir bera hins vegar
tíu prósenta toll. Dvd-diskar eru
líka með tíu prósenta toll og 24,5
prósenta virðisaukaskatt að auki.
Tollur og vaskur er lagður á
erlendu upphæðina með flutn-
ingskostnaðinum inniföldum.
Ofan á allt saman leggur Póstur-
inn svo hið óvinsæla „toll-
meðferðargjald“, 450 kall á
hverja einustu sendingu, hvort
heldur um er að ræða eina bók
eða hundrað. - glh
Íslendingar flykkjast að á Amazon
KASSAR FRÁ AMAZON Stór hluti af
umsvifum Póstsins.
Hljómsveitin HAM er tvítug í dag,
rétt eins og Sálin hans Jóns
míns. Þessar ólíku stórhljómsveitir
spiluðu báðar í fyrsta sinn á sama
blettinum kvöldið 10. mars 1988;
HAM í Tunglinu, Sálin undir þeim
í Bíókjallaranum. Á meðan Sálin
blæs nú til afmælisveislu heyrist
ekki múkk frá HAM, enda segir
söngvarinn Sigurjón Kjartansson
það spurningu hversu kúl það sé
að halda upp á svona stórafmæli.
Hann er nú staddur á
Tenerife þar sem
hann slappar
af og skrifar nýja
sjónvarpsþætti.
Hann segir
hvergi betra að
skrifa um íslenskan raunveruleika.
Margar helstu
hefðarfrúr landsins
lögðu leið sína í
fjáröflunarkvöldverð
Unifem á Íslandi í
Frímúrarahúsinu á
laugardagskvöldið,
en miðaverð var 70
þúsund krónur. Á
meðal kvöldverð-
argesta voru Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra, frú Vigdís Finnbogadóttir,
sem var heiðursgestur
kvöldsins, Dorrit
Moussaieff, fata-
hönnuðurinn Stein-
unn Sigurðardóttir,
fjölmiðlakonurnar
Inga Lind Karls-
dóttir og Andrea
Róberts, stílistinn Agnieszka
Baranowska, Dísa í World Class,
og Kristín Ólafsdóttir. Gestirnir,
sem voru um 250 talsins, klæddust
flestallir hvítu, enda hvítt þema á
kvöldverðinum.
Að kvöldverði loknum lögðu þær
skemmtanaglöðustu leið sína á
La Primavera, þar sem dansað
var fram eftir nóttu. Þar var karl-
mönnum leyft að taka þátt í gleð-
inni, sem Björn Hlynur Haralds-
son nýtti sér þegar hann mætti
með konu sína, Rakel Garðars-
dóttur, upp á arminn. Björgólfur
Thor Björgólfsson skaut einnig
upp kolli á La Prima-
vera, mögulega á
leið heim frá árshátíð
Landsbankans sem
haldin var í Egilshöll
sama kvöld.
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. im, 8. búr, 9. gaf,
11. kr, 12. slæva, 14. aðals, 16. ár, 17.
nyt, 18. tík, 20. fé, 21. taut.
LÓÐRÉTT: 1. rigs, 3. áb, 4. fúkkalyf, 5.
urr, 7. malaría, 10. fæð, 13. van, 15.
stél, 16. átt, 19. ku.