Fréttablaðið - 12.03.2008, Qupperneq 22
[ ]
Undirritaðir hafa verið samningar milli stjórn-
valda og hönnuða um rekstur Hönnunarmið-
stöðvar.
Ráðherrar menntamála og iðnaðar skrifuðu í síðustu
viku undir þjónustusamning við fulltrúa níu fagfé-
laga hönnuða og arkitekta um rekstur Hönnunarmið-
stöðvar. Hönnunarmiðstöðin tekur við af Hönnunar-
vettvangi, þróunarverkefni iðnaðarráðuneytis,
Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Samtaka iðnaðarins,
Útflutningsráðs, Reykjavíkurborgar og Forms
Íslands - samtaka hönnuða. Eitt af verkefnum
Hönnunarvettvangs var að undirbúa stofnun
Hönnunarmiðstöðvar sem er nú orðin að veruleika.
Íslensk hönnun hefur verið í stöðugri sókn
undanfarin ár en eins og fram kemur á heimasíðu
Hönnunarmiðstöðvar er áætlað að um 1.500 hönnuðir
og arkitektar séu nú starfandi á Íslandi. Sá hópur fer
ört stækkandi en auk þeirra sem stunda nám erlendis
útskrifar Listaháskóli Íslands á hverju ári vöruhönn-
uði, fatahönnuði og grafíska hönnuði og hófst kennsla
í arkitektúr árið 2003. Dennis Davíð Jóhannesson,
fulltrúi Arkitektafélags Íslands í stjórn Hönnunar-
miðstöðvar, segir nú kominn grundvöll fyrir samfélai
hönnuða og arkitekta með tengsl við landið.
„Það hefur bæði háð okkur en líka verið kostur að
fólk komi úr ýmsum áttum og úr mismunandi
skólum. Það verður mikil breyting núna þegar stórir
hópar koma úr Listaháskólanum og með Hönnunar-
miðstöðinni er verið að að tengja saman öll þessi
mismunandi svið hönnunar. Hönnuðir munu geta
unnið saman og ég vil meina að hönnun og arkitektúr
séu sterkasta vopnið í samkeppni í dag.“
Dennis segir hlutverk Hönnunarmiðstöðvarinnar
einnig vera að koma á tengslum milli almennings og
hönnuða. Mikilvægt sé að vekja áhuga hjá fólki og
upplýsa það um hönnun og byggingarlist.
„Við þurfum að ná til unga fólksins og ég sé fyrir
mér fræðslu um hönnun og byggingarlist á öllum
skólastigum. Umhverfið endurspeglar það þjóðfélag
sem við búum í. Við notum hönnun og arkitektúr til
að skapa verðmæti, gera umhverfið fallegra og auka
samkeppnishæfni borgarinnar og atvinnulífsins í
landinu. Með Hönnunarmiðstöð skapast grundvöllur
til þess.“
Dennis nefnir líka þá sögu sem við búum yfir á
Íslandi í byggingarlist og hönnun og að virða beri
gamlar byggingar og muni.
„Ég vona að Hönnunarmiðstöðin verði til þess að
hér verði ekki eitthvert alþjóðlegt umhverfi líkt öllu
öðru. Hér verði til eitthvað sérstakt sem tengist
okkar rótum, menningu og veðráttu. Íslensk hönnun.“
heida@frettabladid.is
Verðmætin eru í hönnun
Valdís Vífilsdóttir innanhúss-
arkitekt breytti um lit í eldhús-
inu hjá sér.
„Ég breytti síðast í eldhúsinu og
sprautaði innréttinguna svarta,
bætti við nokkrum skápum og setti
svarta borðplötu úr steini,“ segir
Valdís. „Ég er mjög ánægð með
breytinguna. Ég var með viðarplötu
áður á borðunum en nú er allt orðið
svart því á gólfinu voru svartar
steinflísar. Eldhúsið varð allt miklu
aðgengilegra og auðveldara í þrif-
um.“
Valdís tók alla íbúðina sína í gegn
fyrir nokkru og ætlar sér ekki í
frekari framkvæmdir í bráð. „Ég
held að ég sé búin að gera allt sem
hægt er að gera í þessari íbúð en ég
tók hana alveg í gegn á sínum tíma.
Skipti um gólf og tók niður veggi,
setti nýja lýsingu og endurnýjaði
glugga og hurðir. Það er mjög mikið
svart hjá mér án þess að vera kulda-
legt. Ég hef mjög gaman af að
blanda gömlu og nýju saman og vil
hafa smá grófleika líka, ekki of stíl-
hreint heldur líka heimilislegt.“
Sem innanhússarkitekt hefur Val-
dís áhuga á hönnun og leggur metn-
að í vandaða muni. „Ég leitast við að
kaupa hönnun, bæði í húsgögnum
og nytjamunum, og bíð þá frekar
bara eftir því að geta keypt hlutinn.
Ég er alltaf veik fyrir skandin-
avískri húsgagnahönnun en svo er
gaman að eiga eitthvað eftir Starck
og Eames. Ítölsk hönnun er líka
mjög spennandi.“ - rat
Eldhúsið allt svart
Valdís Vífilsdóttir inanhússarkitekt breytti nýlega eldhúsinu. RÉTTABLAÐIÐ/GVA
Pottablóm er kjörið að umpotta á vorin og þá er líka góður
tími til að sá kryddjurtum í potta. Basilíka er einföldust í ræktun
fyrir byrjendur.
Dennis Davíð Jóhannesson arki-
tekt segir íslenska hönnun skapa
verðmæti og fegra umhverfið.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N