Fréttablaðið - 26.03.2008, Side 4
4 26. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Bassel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
5°
3°
-2°
0°
-1°
7°
7°
5°
6°
4°
21°
22°
8°
20°
9°
25°
15°
Á MORGUN
Hæg breytileg
átt um allt land
MÁNUDAGUR
Róleg austanátt
víðast hvar
2
-4
-6
-3
-3
-5
-3
0
8
8
10
7
6
5
12
8
12
7
5
-2
-2
-2
-2
-2
-4
-3
-2
0
-2
-3
-1 0
KÓLNAR Austan-
áttir eru ríkjandi á
landinu í vikunni,
og í dag verður
víðast hvar rólegt
- en þó má búast
við strekkingi
á annesjum.
Hitastigið verður
víðast hvar undir
frostmarki, kaldast
fyrir norðan.
Elín Björk
Jónsdóttir
Veður-
fræðingur
LÖGREGLUMÁL Kveikt var í yfir-
gefnu húsi við Hverfisgötu aðfara-
nótt þriðjudagsins. Hafði verið
kveikt í drasli og timbri á fyrstu
hæð hússins en vel gekk að slökkva
eldinn. Reykkafarar fundu sofandi
mann í risi hússins og björguðu
honum út en hann sakaði ekki.
Oft er brotist inn í yfirgefin hús
og hefur slökkvilið áður verið kall-
að að þessu tiltekna húsi, Hverfis-
götu 32-34, vegna íkveikju. Er það
eitt þeirra húsa sem til stendur að
rífa.
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins, segir slökkviliðið nú
vinna með Reykjavíkurborg að
kortlagningu umrædds svæðis.
Setja eigi upp verklagsreglur um
hvað eigi og megi gera en húsin
eru ekki í eigu Reykjavíkurborgar
heldur einstaklinga og fyrirtækja.
Segir hann þá vinnu hafa hafist
töluvert fyrir páska en hraða eigi
vinnunni.
„Þetta er ömurlegt tilvik og
menn hafa verið að benda á að
svona gæti komið upp,“ segir Jón
Viðar, sem telur mál sem þetta
ekki boðlegt. Hann segir slökkvi-
liðsmönnum stafa hætta af aðstæð-
um sem þessum. Húsin séu oft að
hálfu rifin, göt í gólfum, handrið
vanti og fleira. „Við erum að setja
mína menn í mikla hættu.“ Auk
þess sé alltaf hætta á að eldur
berist í nærliggjandi hús. - ovd
Slökkviliðsstjóri vill hraða vinnu við gerð verklagsreglna vegna yfirgefinna húsa:
Bjargað úr brennandi húsi
HÚSIÐ AÐ HVERFISGÖTU 32-34 Slökkvilið
hefur áður verið kallað að húsinu vegna
íkveikju. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UTANRÍKISMÁL Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra var
viðstödd setningu ráðstefnu um
alþjóðlega samvinnu á sviði
sjálfbærrar þróunar á Barbados í
gær.
Á ráðstefnunni er meðal
annars fjallað um samstarf
Íslands og þróunarríkja á
smáeyjum í Karíbahafi.
Utanríkisráðherrann fer fyrir
íslenskri sendinefnd, en utan ríkis-
ráðuneytið stendur að ráðstefn-
unni í samvinnu við Efnahags- og
félagsmálastofnun Sameinuðu
þjóðanna og stjórnvöld á
Barbados. Hana sækja fulltrúar
sextán þróunarríkja í Karíbahafi,
auk fulltrúa Sameinuðu þjóð-
anna. - sþs
Ingibjörg Sólrún í Karíbahafinu:
Samvinnufund-
ur í Barbados
VINNUMARKAÐUR
Innheimta á laun-
um og launa-
tengdum
gjöldum fyrir
starfsfólk á
veitingastaðnum
Thai í Keflavík
er komið til
lögfræðings
Matvís, Mat-
væla- og veit-
ingafélags Íslands.
Níels S. Olgeirsson, formaður
Matvís, segir að eigendur Thai
hafi erlenda matreiðslumenn í
vinnu og greiði þeim laun
samkvæmt taxta en ætlist til að
fólkið vinni eins mikið og þörf er
á án þess að vilja greiða yfir-
vinnutíma heldur ætlist bara til
að það sé inni í dagvinnulaunun-
um. Innheimta hafi verið reynd
án árangurs og því hafi málinu
verið vísað til lögfræðings. - ghs
Veitingastaðurinn Thai:
Launamál hjá
lögfræðingi
NÍELS S.
OLGEIRSSON
Er mataræðið
óreglulegt?
LGG+ er fyrirbyggjandi vörn!
Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar
máltíðir – allt þetta dregur úr innri
styrk, veldur þróttleysi, kemur
meltingunni úr lagi og stuðlar að
vanlíðan. Regluleg neysla LGG+
vinnur gegn þessum áhrifum og
flýtir fyrir því að jafnvægi náist
á ný. Dagleg neysla þess
tryggir fulla virkni.
H
V
Í T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
EFNAHAGSMÁL „Þeir sem hafa
milljón á mánuði og meira eiga
að lækka við sig launin og draga
saman seglin. Um leið á að stór-
bæta kjörin hjá þeim sem hafa
minnstar og meðaltekjurnar. Það
er nægt svigrúm til þess í
þjóðfélaginu.“
Þetta segir Ögmundur Jónas-
son, formaður BSRB og þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs.
Spurður hverjir eigi að lækka
laun sín kveðst Ögmundur
einkum horfa til starfsfólks í
fjármálakerfinu, forstjóra og
„hirðarinnar í kringum þá. „Þeir
sem hafa rakað til sín milljónum
verða að draga saman. Það sem
hægt er að hækka er líka hægt að
lækka,“ segir
hann.
Ósamið er
milli ríkis og
sveitarfélaga og
flestra stétta
innan vébanda
BSRB. Ögmund-
ur segir að þrátt
fyrir breyttar
aðstæður hafi
markmið samn-
inganna ekki
breyst. „Tvennt
þarf að gerast. Annars vegar þarf
að brúa það bil sem hefur skapast
vegna tuttugu prósenta launa-
gliðnunar milli stórra geira á
almennum markaði og fólks í
almannaþjónustu.
Hins vegar þarf að efna gefin
fyrirheit um að bæta kjörin hjá
umönnunarstéttum, löggæslu-
mönnum og almennt því fólki
sem starfar í almannaþjónustu.
Það þarf að takast á við þetta
hvernig sem viðrar í þjóð-
félaginu.“
Ögmundur telur það almennt
vilja viðsemjenda stéttarfélag-
anna að bæta kjör en óttast að
þeir notfæri sér ástandið nú til að
umbylta samningakerfinu og
reyna eftir mætti að innleiða ein-
staklingsbundna samninga. Slíkt
er eitur í beinum Ögmundar sem
hann segir munu skapa misrétti á
vinnustöðum.
Um þegar orðnar og boðaðar
verðhækkanir á vörum og
þjónustu segir Ögmundur sláandi
hvernig gengislækkanir hafi nær
samtímis áhrif á allt verðlag. Þá
séu aldrei neinar birgðir til og
verðið hækki undir eins. Þegar
gengið styrkist séu hins vegar
alltaf til svo miklar birgðir að
ekki sé unnt að lækka verð í
marga mánuði.
Og Ögmundur brýnir lands-
menn til árvekni. „Það á að vera
verk þjóðarinnar númer eitt, tvö
og þrjú að fylgjast með að hún sé
ekki snuðuð af hálfu óprúttins
liðs sem nýtir sér þetta ástand til
hins ýtrasta.“ bjorn@frettabladid.is
Milljónamennirnir
lækki við sig launin
Ögmundur Jónasson vill að hátekjufólk lækki eigin laun og dragi saman seglin.
Hann telur núverandi efnahagsárferði veita tækifæri til stórfelldrar kjarajöfn-
unar í samfélaginu. Nægt svigrúm sé til að hækka laun lág- og millitekjufólks.
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
STAÐAN METIN Starfsfólk fjármálakerfisins, forstjórar og „hirðin í kringum þá“ er það
fólk sem Ögmundur Jónasson vill að lækki við sig launin. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BANDARÍKIN, AP Bandarísk kona á
sextugsaldri, sem var í siglingu
með fjölskyldu sinni undan strönd-
um Flórída, lést eftir árás stórrar
arnarskötu. Við árásina féll konan
aftur fyrir sig, lenti með höfuðið á
bátstokknum og lést samstundis.
„Þetta er furðulegasta slys sem
ég hef nokkru sinni heyrt um,“
sagði Jorge Pino hjá Fiska- og villi-
dýrasamtökum Flórída. „Líkurnar
á því að þetta gerist eru svo litlar
að við trúum því eiginlega ekki að
þetta hafi gerst.“ Pino hefur séð
skötur sem þessar stökkva upp í
loftið en afar sjaldgæft er að þær
stökkvi á manneskjur eða hluti.
- fb
Óvæntur atburður í Flórída:
Skata varð
konu að bana
Hraðakstur við Borgarnes
Tólf voru teknir fyrir hraðakstur í
umdæmi lögreglunnar í Borgar-
nesi á mánudaginn og aðfaranótt
þriðjudags. Mjög mikil umferð var í
umdæminu en hún gekk að mestu
vel fyrir sig.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Bílvelta á Holtavörðuheiði
Ökumaður velti bíl sínum á Holta-
vörðuheiði á mánudagskvöldið.
Endaði bíllinn á hjólunum aftur og
var honum ekið í Borgarnes þar sem
ökumaður og tveir farþegar hans
tilkynntu um slysið. Þá sakaði ekki.
Hált var á slysstað.
ELDUR Slökkvilið höfuðborgar-
svæðisins var kallað að Waldorfs-
kólanum Sólstöfum í Hraunbergi í
Breiðholti laust upp úr klukkan
ellefu í gærmorgun.
Allt tiltækt lið var sent á
staðinn. Mikill svartur reykur
barst frá skólanum sem er í
þremur samliggjandi timbur-
húsum. Komst slökkvilið fljótlega
að eldinum sem var í miðrými
bygginganna og gekk greiðlega að
slökkva eldinn. Í ljós kom að
heitavatnslögn hafði einnig farið í
sundur og þurfti slökkviliðið að
ganga frá því ásamt reyklosun.
Slökkvistarf tók um klukkustund.
Mikil mildi þykir að engin skyldi
vera í húsunum þegar eldurinn
kom upp þar sem frí var í skólan-
um í gær. Eldsupptök eru ekki ljós
en málið er í rannsókn. - ovd
Slökkviliðið brást hratt við:
Eldur í skóla í
Breiðholtinu
WALDORFSKÓLINN SÓLSTAFIR Greiðlega
gekk að slökkva eldinn sem kom upp í
miðrými skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GENGIÐ 25.03.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
150,2834
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
74,7 75,06
148,86 149,58
116,21 116,87
15,577 15,669
14,368 14,452
12,331 12,403
0,7427 0,7471
121,92 122,64
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR