Fréttablaðið - 01.04.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
1. apríl 2008 — 88. tölublað — 8. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Aðalsteinn Bernharðsson lögreglumaður er í
góðu formi og segist verða alveg ómögulegur ef
hann missir úr æfingu.
Aðalsteinn þarf að vera í góðu formi vegna vinnu
sinnar í lögreglunni en einnig þjálf
Lögreglu kól
Aðalsteinn segir það enga afsökun þegar fólk ber
fyrir sig að hafa ekki tíma fyrir íþróttir. Fimmtán til
tuttugu mínútur á dag séu alveg nóg til að halda sér í
ágætis formi og einungis þurfi að skipul
vel.
Æfir líka á nóttunni
Aðalsteinn tekur vel á því í ræktinni fimm daga vikunnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vorráðstefna Miðstöðvar mæðraverndar verður haldin 18. apríl næstkomandi á Hilton Nordica Reykjavík. Fjallað verður um konur í yfirþyngd á með-göngu og rætt um mataræði, hreyf-ingu, áhættuþætti og fleira. Skráning er á www.islands-fundir.is.
Ljósabekkjum hefur fækkað töluvert hér á landi síðan árið 2005 samkvæmt könnun á vegum Geislavarna
ríkisins og
Umhverf-
isstofnunar. Samkvæmt könnun-inni eru alls 196 bekkir á land-inu núna en þeir voru 277 árið 2005.
Fræðslubanki um vítamín og steinefni hefur verið opnaður á netinu á vegum Lýðheilsustöðvar og Matvælastofnunar. Í bankanum eru upplýsingar um þessi efni og hvernig hægt er að uppfylla þörf líkamans fyrir þau með fjölbreyttu fæði. Sjá www.lyd-heilsustod.is/vitamin.
ALLTAF BESTA VERÐIÐ
VEÐRIÐ Í DAG
AÐALSTEINN BERNHARÐSSON
Korter á dag nóg til
að halda sér í formi
heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Tímamót hjá lífeyrisþegum
Í dag eru fyrstu skrefin stigin í þá
átt að að bæta hag lífeyrisþega og
einfalda almannatryggingakerfið,
skrifar Jóhanna Sigurðardóttir.
UMRÆÐAN 16
Mæðravernd í Níkaragva
Þróunarsamvinnu stofn-
un Íslands hefur staðið
fyrir byggingu mæðra-
húsa í Níkaragva og
var hið fimmta opnað
á dögunum.
TÍMAMÓT 18
VERKTAKAR
Réttindi og skyldur
verktaka
Sérblað um verktaka
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Verum í sambandi
Farsímasambandi hefur
verið komið á við
Hótel Bjarkarlund, þar
sem tökur á Dagvakt-
inni hefjast hvað úr
hverju.
FÓLK 30
RÖGNVALDUR HVANNDAL
Hneyksla húsmæður
í Vesturbænum
Upptökum á fimmtu plötu Hvanndalsbræðra að ljúka
FÓLK 24
verktakarÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2008 Árni Jóhannsson hjá SIBetra að menn tryggi sig gegn óvönduðum vinnubrögðum.
BLS. 4
í Bankastræti kl. 11
Ókeypis áfylling á bílinn í dag
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
4
02
96
0
4/
08
FASTEIGNIR Velta á fasteigna-
markaði hefur verið um 25 millj-
örðum minni það sem af er þessu
ári, miðað við sama tímabil í fyrra.
Veltan hefur verið rúmlega 37
milljarðar á þessu ári en hún var
rúmlega 62 milljarðar á fyrstu
þremur mánuðum ársins í fyrra.
Samtals var 1.110 kaupsamn-
ingum þinglýst á fyrstu þremur
mánuðum ársins en 2.143 á
fyrstu þremur mánuðum ársins í
fyrra. „Það eru miklir óvissu-
tímar í efnahagsmálum og ljóst
að erfitt er að spá um þróun
mála. Líklegt má þó telja að fast-
eignaverð muni lækka en það er
erfitt að segja hversu mikið,“
segir Oddgeir Ágúst Ottesen,
aðjúnkt við viðskiptafræðideild
Háskólans í Reykjavík.
Ásdís Kristjánsdóttir, hjá grein-
ingardeild Kaupþings, segir kóln-
unina vera mikla en hún sé í takt
við það sem gert var ráð fyrir í
hagspá bankans frá því í febrúar. Í
sama streng taka Hörður Garðars-
son hjá greiningardeild Glitnis og
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir hjá
greiningardeild Landsbankans.
Deildirnar gera allar ráð fyrir að
verð á fasteignum muni lækka að
nafnvirði á þessu ári, Kaupþing
um tvö til þrjú prósent, Lands-
bankinn um allt að fimm prósent
og Glitnir um þrjú prósent.
Deildirnar gera allar ráð fyrir
því að munur á fasteignaverði
milli hverfa og sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu muni aukast;
það verði hærra á stöðum þar sem
eftirspurn er tiltölulega stöðug en
lækka, jafnvel skarplega, þar sem
eftirspurnin er lítil en framboðið
mikið. Fasteignamat ríkisins hefur
ekki tekið saman hvernig fast-
eignaverð hefur þróast milli sveit-
arfélaga og hverfa.
Grétar Jónasson, framkvæmda-
stjóri Félags fasteignasala, segir
„frost“ ríkja á fasteignamarkaðn-
um og það geti haft alvarlegar
afleiðingar. „Stjórnvöld hafa sagst
ætla að fella niður stimpilgjaldið
og eftir því bíða fjölmargir kaup-
endur. Það getur haft alvarlegar
afleiðingar ef algjör doði ríkir í
langan tíma á markaðnum. Það er
líka óábyrgt af hálfu stjórnvalda að
stuðla að því að gera ástandið verra
en það gæti verið, með því að
segjast ætla að fella niður gjöld en
tímasetja það ekki nánar.“ - mh
Fasteignaviðskiptin
25 milljörðum minni
Fasteignamarkaðurinn hefur snöggkólnað á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Greiningardeildirnar gera ráð fyrir allt að fimm prósenta lækkun á fasteigna-
verði að nafnvirði á árinu. Óvissan mikil, segir aðjúnkt í viðskiptafræði.
VÍÐA BJART VEÐUR Í dag verður
norðaustan 10-18 úti við suðaustur-
ströndina annars 5-10. Stöku él
norðaustan og austan til annars
víða bjart veður, einkum sunnan og
vestan til. Hiti breytist lítið.
VEÐUR 4
0 -1
0
33
HÖFUNDARRÉTTUR „Hann sendi
mér póst þessi strákur. Baðst
afsökunar á að hafa stolið
brandaranum mínum. Og spurði
hvort ég gæti
reddað
honum úr
þessari
klípu,“ segir
Hugleikur
Dagsson,
rithöfundur
og teiknari.
Fyrir
skömmu
barst
Hugleiki sem sagt tölvupóstur
þar sem nemandi við California
Polytechnic State University
sagði sínar farir ekki sléttar.
Hann hafði freistast til að
endurteikna brandara úr bókinni
Should You Be Laughing at this?,
fyrstu bók Hugleiks, og birta í
skólablaðinu sem sinn. Upp komst
um verknaðinn og skólayfirvöld
vísuðu honum umsvifalaust úr
skólanum. „Þarna eru vissulega
önnur viðhorf en hér eru,“ segir
Hugleikur. - jbg/sjá síðu 30
Dýrkeypt grín:
Rekinn
fyrir ritstuld
MÓTMÆLI Þeir Jón Karl Einarsson
og Atli Óskar Fjalarsson mótmæltu
hækkun bensínverðs með því að
þrengja að umferð á Langholtsvegi
í gær.
„Hækkunin fer ekkert framhjá
okkur því ég er á vespu og hann
Jón er með æfingaleyfi á bíl,“ segir
Atli Óskar. „Við ætluðum fyrst að
stoppa umferð en létum svo nægja
að vera á hálfri akrein svo fólk
þurfti að sveigja fram hjá okkur.
Lögreglan kom og var með
einhvern skæting og við viljum
ekki komast í kast við lögin. Við
gerum þá kannski eins og Helgi
Hóseasson og stöndum á gang-
stéttinni.“
Helgi var einmitt hinumegin við
götuna með sín reglulegu mótmæli
og segir Atli að hann hafi tekið
félagsskap þeirra vel. - jse
Ungir piltar á Langholtsvegi:
Mótmæltu háu
bensínverði
HUGLEIKUR DAGSSON
MÓTMÆLI Á LANGHOLTSVEGI Menn láta heyra í sér við Langholtsveg en þar voru tvenn mótmæli í gær á einum gatnamótum.
Helgi Hóseasson var þar öðrum megin en ungir piltar sem mótmæltu hækkun bensínverðs hinum megin. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Háspenna í
körfunni
Snæfellingar mokuðu
Njarðvík-
ingum út
úr úrslita-
keppninni.
ÍÞRÓTTIR 26
NEYTENDAMÁL „Okkur finnst tíma-
bært að almenningur átti sig betur
á því hversu stóran hlut ríkið hrifs-
ar til sín,“ segir Stefán Karl Segatta,
framkvæmdastjóri neytendasviðs
Skeljungs.
Milli klukkan hálfátta og hálftíu í
dag verður bensínlítrinn seldur á
107,20 krónur og dísilolía á 117,40
krónur hjá Skeljungi við Bústaða-
veg, sem samsvarar því að ekki séu
greidd eldneytisgjald í ríkissjóð
heldur aðeins virðisaukaskattur.
Fullt sjálfsafgreiðsluverð með olíu-
gjaldinu er 149,40 fyrir bensín og
158,40 krónur fyrir olíuna.
„Skeljungur mun að sjálfsögðu
greiða gjöldin eftir sem áður og
tekur því á sig þann kostnað sem
lækkuninni fylgir. Því miður höfum
við ekki bolmagn til að bjóða þetta
lengur en í tvo tíma en allir sem
koma í röðina fyrir hálftíu fá
afgreiðslu,“ segir Stefán Karl.
Mikill þrýstingur hefur verið á
ríkisstjórnina að lækka olíu- og
bensíngjald vegna hækkandi olíu-
verðs ytra og gengisfalls íslensku
krónunnar.
„Olíufélögin eru tilneydd að
hækka sitt útsöluverð í takt við
hækkandi heimsmarkaðsverð en
ríkið hins vegar getur vel lagt sitt
af mörkum með því að draga úr
þessari skattpíningu,“ segir Stefán
Karl. - gar/jse
Skeljungur lækkar verð á bensíni og dísilolíu sem nemur olíugjaldi:
Bensínlítrinn á 107,20 krónur