Fréttablaðið - 01.04.2008, Side 6
6 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Vörur að andvirði
um 32 milljarða króna voru
fluttar til landsins í febrúar, en á
sama tíma voru fluttar út vörur
fyrir 19,5 milljarða króna.
Vöruskiptajöfnuður var því
neikvæður um 12,5 milljarða
króna.
Þetta er ríflega tvöfalt hærri
upphæð en í febrúar í fyrra,
þegar vöruskiptajöfnuður var
óhagstæður upp á 5,5 milljarða
króna á sama gengi, samkvæmt
frétt á vef Hagstofu Íslands.
Fyrstu tvo mánuði ársins var
verðmæti útflutnings 8,9 millj-
örðum króna minna en á sama
tíma í fyrra, á sama gengi. Það
nemur um sautján prósentum. - bj
Vöruskiptajöfnuður í febrúar:
Tvöfalt óhag-
stæðari en 2007
SAMDRÁTTUR Um 7,6 prósentum
minni verðmæti fengust fyrir útfluttar
sjávarafurðir fyrstu tvo mánuði ársins en
á sama tíma í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P.
HEILBRIGÐISMÁL Fóstureyðingum
fjölgaði lítillega á árinu 2006
samanborið við tvö árin þar á
undan. Fram kemur í Fréttabréfi
landlæknis að þrátt fyrir þetta
hafi fóstureyðingum fækkað sé
miðað við hverja 1.000 lifandi
fædda. Alls voru 894 fóstureyð-
ingar framkvæmdar árið 2006. - bj
Fóstureyðingum fjölgar lítið:
Um 900 fóstr-
um eytt 2006
ÍRAK, AP Hið svokallaða „græna
svæði“ í Bagdad, höfuðborg
Íraks, varð fyrir eldflaugaárás í
gær, en engan sakaði. Hryðju-
verkamenn hafa undanfarið
herjað á svæðið, sem hýsir
sendiráð Bandaríkjanna og
Bretlands auk stjórnsýslubygg-
inga írösku ríkisstjórnarinnar.
Skærum í borginni Basra lauk
að mestu í gær, en fyrir viku hóf
íraski herinn áhlaup gegn
hersveitum sjíaklerksins
Muqtada al-Sadr. Á sunnudag
fyrirskipaði al-Sadr hersveitum
sínum að leggja niður vopn.
Yfirmenn íraska hersins segja að
aðgerðum ljúki á næstunni. - sgj
Eldflaugaárás í Bagdad:
Enn ráðist á
„græna svæðið“
HEFST Á FÖSTUDAG
KL. 21.00 Á SKJÁEINUM
Spennandi starf
inni í blaðinu.
ALÞINGI Styrking krónunnar og gengishækkun
hlutabréfa í gær bendir til þess að botninum sé náð,
að mati Geirs H. Haarde forsætisráðherra.
Rætt var um efnahagsmál á Alþingi í gær að beiðni
Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins.
Guðni sagðist í ræðu sinni kjósa að tala um raunhæfar
leiðir til lausnar fremur en að hafa allt á hornum sér.
Kvaðst hann jafnframt óttast að ríkisstjórnin ætlaði
að láta reka á reiðanum og almenningur og launafólk
borgaði brúsann. „Lausatök ríkisstjórnarinnar blasa
við, forsendur fjárlaga eru brostnar,“ sagði Guðni og
lagði til aðgerðir í efnahagsmálum sem hann vonaðist
til að sátt mætti nást um.
Geir H. Haarde rakti aðstæður á erlendum
fjármálamörkuðum og áhrif þeirra á íslenskt
efnahagskerfi. Sagði hann ánægjulegt að krónan og
hlutabréfamarkaðurinn hefðu styrkst í gær - á fyrsta
viðskiptadegi eftir ársfund Seðlabankans. „Það bendir
til þess að botninum í þessum efnum séð náð.“
Geir sagði fáránlegt að segja stjórnvöld ekki
aðhafast neitt, ýmislegt væri gert þó ekki væru um
það upphrópanir í fjölmiðlum. Sagði hann jafnframt
að margt væri í undirbúningi á vettvangi ríkisstjórnar
og Seðlabanka sem ekki væri hægt að greina frá
fyrirfram.
Um leið og Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG,
fagnaði að á vettvangi ríkisstjórnarinnar væri unnið
að tillögum sem flokkur hans hefði kynnt fyrir
nokkrum vikum lagði hann til að Samfylkingin fjallaði
ekki um efnahagsmál í um það bil hálft ár. Slíkt gæti
haft jákvæð áhrif á efnahagsástandið í för með sér.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar, sagði Steingrím skorta trúverðugleika;
mikilvægt væri að snúa bökum saman í að verja
heimilin í landinu og standa vörð um bankana. Sagði
hún ákveðið að auka gjaldeyrisforða Seðlabankans,
líkt og hún gat um í ræðu á flokksráðsfundi á
sunnudag.
Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, sagði mikilvægt að verja krónuna en um
leið að lækka verðbólgu og treysta störf. Mælti hann
fyrir lækkun álaga á olíu og bensín, lækkun skatta á
vöruflutningum og tolla og vörugjalda á matvöru.
bjorn@frettabladid.is
Útlit fyrir að botni
þrenginga sé náð
Formaður Framsóknarflokksins kallar eftir þjóðarsátt um aðgerðir gegn efna-
hagsvandanum. Formaður VG telur jákvætt fyrir ástandið að Samfylkingin tjái
sig ekki um það. Forsætisráðherra segir útlit fyrir að botninum sé náð.
LAUSNIR FREMUR EN REIÐILESTUR Guðni Ágústsson segir for-
sendur fjárlaga brostnar og vonast til að sátt náist um tillögur
Framsóknarflokksins um aðgerðir í efnahagsmálum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ALÞINGI Framsóknarflokkurinn
hefur kynnt tillögur að aðgerð-
um til að bregðast við vanda
efnahagslífsins.
Meðal annars vill flokkurinn
að gjaldeyrisforði Seðlabankans
verði efldur með erlendum
lántökum upp á allt að 500 millj-
arða króna.
Framsóknarmenn vilja að
Íbúðalánasjóður taki yfir fast-
eignalán banka undir tilteknum
fjárhæðarmörkum og lengi í lán-
unum. Þannig verði, með félags-
legum hætti, komið að vanda
tekjulægra fólks. Einnig vilja
þeir afnema tengingu lána við
brunabótamat og rýmka heimildir
til hámarkslána.
Í tillögunum er líka gert ráð
fyrir lækkun álaga á eldsneyti,
niðurfellingu virðisaukaskatts á
matvæli og niðurfellingu stimpil-
gjalda. - bþs
Framsóknarmenn leggja til aðgerðir vegna aðstæðna í efnahagslífinu:
Tekið verði 500 milljarða lán
ÞJÓÐARSÁTT GEGN EFNAHAGSVANDANUM
■ Gjaldeyrisforði Seðlabanka verði
efldur.
■ Íbúðalánasjóður yfirtaki íbúða-
lán bankanna, sé það vilji bankans
eða lántakandans.
■ Peningamálastefnan verði
endurskoðuð.
■ Forsendur fjárlaga verði endur-
skoðaðar.
■ Sértækir neysluskattar verði
lækkaðir eða felldir á brott.
■ Tekið verði upp öflugt verðlags-
og verðmerkingaeftirlit.
■ Samkeppniseftirlitið og Fjár-
málaeftirlitið verði efld.
■ Áfram verði unnið að undirbún-
ingi stórframkvæmda.
■ Hvatt verði til sparnaðar með
skattalegum aðgerðum.
GUÐNI ÁGÚSTSSON Formaður Fram-
sóknarflokksins.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Byggðarráð
Norðurþings gerði engar athuga-
semdir við drög að áætlun vegna
mats á umhverfisáhrifum
háspennulína frá Kröflu að Bakka
við Húsavík og 150 megavatta
jarðhitavirkjun við Þeistareyki.
Fulltrúi Vinstri grænna í ráðinu
lét bóka að hann mótmælti því að
afgreiða umsagnir án þess að
fulltrúar „fái tækifæri til að
kynna sér fylgigögn málsins“.
Meirihluti byggðarráðs
Norðurþings, fulltrúar Fram-
sóknar- og Sjálfstæðisflokks,
svaraði því til í bókun að þar sem
drög að tillögu að matsáætlun
hefði legið fyrir frá 3. janúar þá
væri því hafnað að fulltrúar
hefðu ekki haft tækifæri til þess
að kynna sér gögnin. - mh
Byggðarráð í Norðurþingi:
Gefur grænt
ljós á áætlun
DÓMSMÁL Karlmaður á áttræðis-
aldri var í gær dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í tveggja ára
fangelsi fyrir kynferðisbrot gagn-
vart tveimur stúlkum þegar þær
voru á aldrinum 10-12 ára. Önnur
stúlkan var stjúpbarnabarn
mannsins. Maðurinn var jafn-
framt dæmdur til að greiða stúlk-
unum samtals 1200 þúsund krónur
í bætur vegna brotanna gegn
þeim.
Maðurinn var ákærður fyrir
að hafa káfað innan klæða á
stjúpbarnabarni sínu á heimili
barnsins í eitt sinn þegar hún
var á aldrinum 10-12 ára. Þótti
dómnum framburður mannsins
ótrúverðugur í málinu og þá
benti vottorð sálfræðings til
þess að stúlkan hefði orðið fyrir
erfiðri lífsreynslu.
Maðurinn var auk þess ákærður
fyrir að hafa á heimili sínu káfað
innan klæða á annarri stúlku
þegar hún var ellefu ára og brotið
gróflega gegn henni með öðrum
hætti árið 1994. Hann bjó með
ömmusystur hennar.
Maðurinn neitaði einnig sök í
þessu tilviki en út frá framburði
stúlkunnar og vitnisburði sálfræð-
ings var hann sakfelldur. Honum
var jafnframt gert að greiða
sakarkostnað, samtals að upphæð
tæplega 1,3 milljónir króna. - jss
Maður á áttræðisaldri dæmdur í óskilorðsbundið fangelsi:
Tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Dæmdi
manninn í tveggja ára óskilorðsbundið
fangelsi.
Ferð þú á ylströndina í Naut-
hólsvík á sumrin?
Já 19,7%
Nei 80,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ertu hlynnt(ur) byggingu sam-
göngumiðstöðvar í Vatnsmýri?
Segðu skoðun þína á visir.is
KJÖRKASSINN