Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.04.2008, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 01.04.2008, Qupperneq 17
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Aðalsteinn Bernharðsson lögreglumaður er í góðu formi og segist verða alveg ómögulegur ef hann missir úr æfingu. Aðalsteinn þarf að vera í góðu formi vegna vinnu sinnar í lögreglunni en einnig þjálfar hann nýliða í Lögregluskólanum. „Ég hef gaman af þessu og finnst gott að halda mér í formi,“ segir Aðalsteinn. „Ég fer yfirleitt í ræktina seinnipartinn en ég er að þjálfa í Lögregluskólanum. Þar tekur maður þátt í æfingunum líka svo maður er á fullu allan daginn.“ Aðalsteinn á sér langan feril í íþróttum og stundaði frjálsar íþróttir í mörg ár áður en hann fór ræktina. „Ég byrjaði með ungmennafélaginu í Eyjafjarðar- sveitinni fyrir norðan eins og menn gerðu í gamla daga og stundaði frjálsar íþróttir í tuttugu ár. Svo þegar ég fór að eldast hætti ég því. Ég var mikið í blaki en síðan hef ég bara verið í almennri líkams- rækt, lyfti lóðum, hleyp og syndi. Ég er búinn að vera í lögreglunni síðan 1980 og hef kennt í Lögregluskól- anum í átta ár. Þegar maður hefur æft svona lengi þá er maður alveg orðinn háður þessu og mér líður bara illa ef ég missi af æfingu þrjá daga í röð.“ Aðalsteinn segir það enga afsökun þegar fólk ber fyrir sig að hafa ekki tíma fyrir íþróttir. Fimmtán til tuttugu mínútur á dag séu alveg nóg til að halda sér í ágætis formi og einungis þurfi að skipuleggja sig vel. „Tímaleysi er bara fyrirsláttur. Ég æfi oft á skrítnum tímum vegna vaktavinnunnar og fer jafn- vel á nóttunni ef því er að skipta. Ég æfi yfirleitt einn. Maður þarf oft að vera einn með sjálfum sér og í frjálsíþróttunum æfa menn mikið einir. Svo passar ekkert að æfa með öðru fólki þegar maður vinnur á vöktum. Þetta er ekkert mál, ég er búinn að standa í þessu í þrjátíu ár og þetta er bara orðið mitt lífsmunstur.“ Aðalsteinn er enginn nammigrís og langaði ekkert í súkkulaðiegg um páskana. Hann segist þó ekki lifa neinu meinlætalífi og fá sér súkkulaði af og til. „Ég þarf að borða mikið því ég hreyfi mig mikið og reyni að borða hollan mat. Ég er ekki mikið í súkkul- aðinu en ef mig langar í nammi þá læt ég það eftir mér. Mig langar nú ekki oft í nammi. Ég borða bara hæfilega hollan mat og passa að borða reglulega og er duglegur í ávöxtunum og skyrinu. finnst Kea-skyr sérstaklega gott því ég er nú að norðan.“ heida@frettabladid.is Æfir líka á nóttunni Aðalsteinn tekur vel á því í ræktinni fimm daga vikunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Vorráðstefna Miðstöðvar mæðraverndar verður haldin 18. apríl næstkomandi á Hilton Nordica Reykjavík. Fjallað verður um konur í yfirþyngd á með- göngu og rætt um mataræði, hreyf- ingu, áhættuþætti og fleira. Skráning er á www.islands- fundir.is. Ljósabekkjum hefur fækkað töluvert hér á landi síðan árið 2005 samkvæmt könnun á vegum Geislavarna ríkisins og Umhverf- isstofnunar. Samkvæmt könnun- inni eru alls 196 bekkir á land- inu núna en þeir voru 277 árið 2005. Fræðslubanki um vítamín og steinefni hefur verið opnaður á netinu á vegum Lýðheilsustöðvar og Matvælastofnunar. Í bankanum eru upplýsingar um þessi efni og hvernig hægt er að uppfylla þörf líkamans fyrir þau með fjölbreyttu fæði. Sjá www.lyd- heilsustod.is/vitamin. ALLTAF BESTA VERÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.