Fréttablaðið - 01.04.2008, Qupperneq 22
1. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● verktakar
Að mörgu þarf að huga þegar
menn ráða sig sem verktaka
sem meðal annars njóta ekki
sömu réttinda og launþegar.
Á síðari árum hafa margir freistast
til að vinna sem verktakar án þess
að vita almennilega í hverju það
felst og hverjir kostirnir og gall-
arnir eru. Þeim sem ekki hafa til
dæmis réttindi og skyldur verk-
taka á hreinu er hættara en öðrum
við að fara illa út úr slíkum við-
skiptum.
Fréttablaðið hafði samband við
Tryggva Marteinsson hjá Eflingu
stéttarfélagi og bað hann að skýra
í hverju það felst að vera verktaki:
„Verktaki er maður sem býður í
verk, stjórnar verki og ræður jafn-
vel menn í vinnu til sín eða fyrir
sig til að vinna verkið,“ útskýr-
ir Tryggvi, en bætir við: „Gervi-
verktaki er hins vegar sá kallað-
ur sem er í raun og veru launa-
maður en er kallaður verktaki.
Hann hefur mætingaskyldu, fær
ákveðna upphæð í laun á klukku-
stund, ræður engu um hvernig eða
hvenær verkið er unnið og vinnur
undir stjórn einhvers annars.“
Bókhald verktakans getur verið
ansi slungið. Verstu hryllingssög-
ur sem heyrast af hrakförum ungs
og óreynds fólks sem gerist gervi-
verktakar er þegar virðisauka-
skatti er ekki haldið til haga. Þá
bankar skatturinn upp á í febrú-
armánuði og krefst greiðslu án
tafar: 24,5% af allri „útseldri
vinnu“ undanfarins árs. Þar að
auki þarf gerviverktaki að telja
fram fé, sem hann aflar, sem laun
á venjulegri skattskýrslu, borga
af því staðgreiðslu, reikna þar inn
í skattaafslátt og svo framvegis.
Hér er ekki rúm til að rekja allt
ferlið, en í stuttu máli sagt eru
reikningarnir og framtalsreitirnir
margir sem geta mögulega komið
í bakið á fólki.
Að sögn Tryggva er líka sá
munur á að á meðan launamenn
eru í eðli sínu sjálfstæðir, þá eru
gerviverktakar aðallega sjálfs sín
herrar, eins og sannast af því þegar
eitthvað kemur upp á. „Launa-
maður fær greidd laun að minnsta
kosti tvo daga í mánuði ef hann
veikist en verktakinn ekki. Launa-
maður á þriggja mánaða slysarétt
ef um vinnuslys er að ræða strax
á fyrsta degi en verktaki á engan
slíkan rétt,“ bendir hann á máli
sínu til stuðnings. Tryggvi nefn-
ir fleiri atriði „Launamaður á líka
rétt vegna veikinda barna sinna en
verktakinn ekki. Launamaður fær
svo greitt í lífeyrissjóð af launum
sínum og atvinnurekandi greiðir á
móti í lífeyrissjóð launamanns en
verktakinn borgar sjálfur. Launa-
maður á orlof 10,17% á öll laun
sín en verktaki ekki. Launþegi
getur leitað aðstoðar stéttarfé-
lags ef hann fær ekki greidd laun
sín en verktakinn verður að ráða
sér lögfræðing.“ Hann bætir við
að launamaður fá greidda desem-
beruppbót, orlofsuppbót og rauða
daga en verktaki ekki.
Ekki er þar með sagt að óhag-
kvæmt sé að ráða sem sig sem
verktaka. En þá er líka mikilvægt
að hafa réttindi sín og skyldur á
hreinu áður en menn ráða sem sig
til vinnu á þeim forsendum. - nrg
Réttindi og skyldur vertaka
Að sögn Tryggva Marteinssonar, hjá Eflingu, hafa verktakar og launþegar síður en svo sömu réttindi og eins gott að hafa það
hugfast ætli menn að gerast verktakar. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Steinull hf. framleiðir verulegt magn af
steinull en þriðjungur framleiðslunnar er
fluttur út.
Sígildur íslenskur þjóðvegabrandari segir að
steinull komi af kindum sem vappa um í hrjóstr-
ugu landslagi þar sem ekki sé stingandi strá að
finna og lifi á grjóti. Þetta er auðvitað skáld-
skapur. Sannleikurinn er sá að steinull er búin
til úr bráðnum svörtum fjörusandi, skeljasandi
og dálitlu af súráli. Íslensk steinull á uppruna
sinn að rekja til Sauðárkróks. Þar hefur verk-
smiðja Steinullar hf. verið starfrækt frá 1985.
Mikil þróun hefur orðið á framleiðslu fyrir-
tækisins og vöruframboð hefur aukist verulega
í takt við þróun á byggingamarkaði. Þriðjung-
ur framleiðslunnar er fluttur út. Mest er selt til
Færeyja, Bretlands, Þýskalands og Tyrklands.
Velta síðustu ára hefur verið um 600 milljónir
og framleiðslan um 170 þúsund rúmmetrar.
„Steinullin sem við framleiðum hefur rúm-
þyngd alveg frá 22 kílóum upp í 200 kíló á rúm-
metra,“ segir Magnús Sigfússon, sölustjóri hjá
Steinull hf. „Í upphafi voru aðallega framleidd-
ar léttullarrúllur, en svo breyttum við yfir í plöt-
ur. Á síðari árum hefur komið þilull sem notuð
er í innveggi og svo erum við með sökkulplöt-
ur utan á sökkla. Töluverð aukning hefur orðið á
síðustu árum á enn stífari plötum, svokölluðum
undir- og yfirlagsplötum sem eru settar á þök.“
Steinull hf. hefur að sögn Magnúsar ætíð
lagað sig að breyttum aðstæðum á markaðn-
um. Hann segir það hafa verið stórt stökk þegar
menn fóru að einangra húsin að utan og telur
það mun skynsamari leið þar sem hitaeinangr-
unin verður jafnari en ella.
„Það hefur líka sýnt sig að byggingatíminn
er í sumum tilfellum styttri þegar menn beita
þessum aðferðum,“ segir hann. „Stundum er
ekki búið að steypa upp alla bygginguna þegar
byrjað er að einangra veggina að utan, það er
jafnvel verið að klæða húsið á meðan verið er að
vinna steypuvinnu efst. Það eru fleiri verkþætt-
ir í gangi og menn geta unnið að pípulögnum,
rafmagni og öllu sem því fylgir í beinu fram-
haldi.“
Magnús mest eftirspurn sé eftir einangr-
un sem er þrjátíu kíló að rúmþyngd og eru þær
plötur notaðar í innveggi, útveggi og þök. Undir
álklæðningar á steyptum húsum er hins vegar
notuð þyngri einangrun sem er 80 kíló á rúm-
metra en á sökklana fara 185 kílóa plötur.
„Það besta sem við framleiðum með tilliti til
hitaeinangrunar er 80 kíló að rúmþyngd en það
lakasta 22 kíló,“ segir Magnús. „Það vill henda
að menn noti of stífa ull þegar léttari einangrun
dygði og öfugt. Úrvalið af steinull sem við bjóð-
um upp á er mikið og við höfum gefið út marga
bæklinga til þess að leiðbeina mönnum um hvar
hver og ein gerð henti best,“ segir hann. - nrg
Sandur og svolítið af súráli
Magnús Sigfússon, sölustjóri hjá Steinull hf., segir stórt
stökk hafa verið tekið þegar farið var að einangra að
utan en ekki innan. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Nú þegar grænkar grund fara
garðeigendur margir hverjir að
huga að vorverkunum. Það getur
stundum verið erfitt að koma sér
að verki enda ekki allir fæddir
með græna fingur. Þar fyrir utan
eru sum verkin þess eðlis að þau
er ekki hægt að leysa með berum
höndum og þá getur verið gott að
kalla vana menn með góðar vélar
til.
Fyrirtækið Vorverk ehf. að-
stoðar við ýmislegt sem til fellur
í garðinum og víðar. Fólk getur
fengið til sín jarðefni, látið fella
tré og fjarlægja runna. Þá er
hægt að láta fjarlægja garðaúr-
gang, gera grjóthleðslur, leggja
rotþrær og margt fleira sem ekki
endilega er á valdi hvers sem er.
Nánari upplýsing-
ar má finna á heima-
síðunni www.
vorverk.is
- ve
Verk að vinna
Nú eru margir farnir að huga að
vorverkum. Vorverk ehf. aðstoðar við
garðverkin.
Case vinnuvélaframleiðandinn
hefur kynnt nýja dráttarvél í
Steiger-línuna, Steiger 485.
Nýja dráttarvélin er með
12,5 lítra túrbóvél sem gefur
átta prósenta meiri afkasta-
getu án meira eldsneytis. Í
nýju vélinni hefur beygju-
hringur dráttarbúnaðar einn-
ig verið aukinn um 29 prósent.
Togkraftur Steiger-vélanna
er í sérflokki og frábærar til
jarðvinnslu en þær hafa verið
framleiddar af Case IH í fimm-
tíu ár. Allar vélarnar í Steiger-
línunni geta gengið fyrir líf-
rænni díselolíu og hafa allar
AFS 600 PRO snertiskjá.
- rat
Steiger með
snertiskjá
Steiger 485 er nýjasta viðbótin í
Steiger-fjölskylduna.