Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 24
1. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Mikilvægt er að ráða til sín
fagaðila þegar staðið er í fram-
kvæmdum og fá gæðatrygg-
ingu frá viðkomandi aðila.
Hvort sem byggja á garðhýsi, hús,
skip, veg, brú eða vatnsaflsvirkjun
þarf að fá einhvern til að útfæra
hugmyndina á blaði í formi verklýs-
inga og teikninga. Að því loknu þarf
að finna einhvern til að byggja eða
framleiða samkvæmt teikningum.
Til að tryggja sig gegn fúski og
vanefndum loforðum þarf að gera
kröfu um að verktakinn leggi fram
svokallaða gæðatryggingu.
„Tryggingin felst í því að verk-
taki leggur fram gögn úr gæða-
kerfi sínu til að kynna hvernig hann
hyggst tryggja gæðin við fram-
gang verksins,“ segir Árni Jóhanns-
son hjá Samtökum iðnaðarins. „Við
þurfum að spyrja okkur eftirfar-
andi spurninga og fá svör við þeim
í gæðatryggingunni sem lögð er
fram: tekst hönnuðinum að túlka
hugmyndir okkar og koma þeim
með skilvirkum og áreiðanlegum
hætti niður á blað á tilskildum tíma
og umsömdu verði? Ræður fram-
leiðandinn við verkið? Lýkur hann
því á umsömdum tíma? Býr hann
yfir nægilegri þekkingu og ræður
hann yfir réttum tækjum og tólum,
svo fátt eitt sé nefnt.“
Einnig þarf verktaki að sýna
verkáætlun og lýsingu á því
hvernig hann hyggst vinna helstu
þætti, hvernig haldið verður utan
um verðlagningu vegna óska um
aukaverk og breytingar og hvað
gert verður ef mistök koma í ljós.
„Meðan á verkinu stendur notar
verkkaupandi gögnin til að herma
loforð um tiltekið verklag upp á
verktakann ef honum hættir til
að fara út af sporinu,“ segir Árni.
„Gögnin sem verktakinn legg-
ur fram er tilboð um gæðatrygg-
ingu. Verklagið sem hann kynnir á
að tryggja góða stjórnun á verkinu:
gæðastjórnun.“
Reglur er varða framkvæmd-
ir bygginga skipta þúsundum. Þar
er kveðið á um allt milli himins og
jarðar, allt frá því hvernig póstkass-
ar og bréfalúgur skulu hafðar til
þess hversu langt niður fyrir frost-
frítt dýpi undirstöður byggingarinn-
ar skulu ná. „Biblía byggingamanns-
ins er byggingareglugerðin, sem
tekur á þessum viðkvæmu þáttum
sem snúa að ábyrgðarsviði og
hæfniskröfum,“ segir Árni. „Bygg-
ingareglugerðin er númer fjögur
hundruð fjörutíu og eitt og frá árinu
1998 og hún er engin skemmtilesn-
ing. En þar er meðal annars kveðið
á um á hvaða verki hver iðnmeistari
getur borið ábyrgð á.“
Orðrétt segir í byggingareglu-
gerðinni í grein 37.3: „Einungis
þeir iðnmeistarar sem hlotið hafa
löggildingu eða staðbundna viður-
kenningu geta tekið að sér verk-
þætti og borið ábyrgð á, gagn-
vart borgar yfirvöldum og byggj-
anda, að þeir séu unnir í samræmi
við viðurkennda verkhætti, sam-
þykkta uppdrætti, verklýsingar
og lög og reglugerðir.“ Pípulagn-
ingameistari má þannig ekki bera
ábyrgð á múrhúðun og múrara-
meistari má sömuleiðis ekki bera
ábyrgð á raflögnum og rafvirkja-
meistari ekki á málningarvinnu og
svo framvegis. En iðnmeistarar
eru ómissandi fyrir hvern þann
sem ætlar að byggja eitthvað og
standa keikur með öll skjöl í lagi
fyrir byggingayfirvöldum. -nrg
Trygging gegn fúski
Árni Jóhannsson
hjá Samtökum
iðnaðarins segir að
verktaki þurfi að
sýna verkáætlun og
lýsingu á því hvern-
ig hann hyggst
vinna helstu þætti.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
50.053+vsk.
Gjótuhraun 1, 220 Hafnarfjörður • Sími 544 5330
Fax 544 5355 • straumur@straumur.is
Vörur - þjónusta - upplýsingar
Tangarhöfða 4, sími 515 7200
Mikið úrval
af peru og
díóðuljósum
M
b
l 9
14
09
7
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki