Fréttablaðið - 01.04.2008, Qupperneq 26
1. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR6 ● fréttablaðið ● verktakar
Ný ákvæði í vinnuverndar-
lögum og reglur um innra
starf fyrirtækja leggja aukna
áherslu á öryggi og heilbrigði
starfsmanna.
Undanfarin ár hafa íslensk
fyrirtæki verið að vakna til vit-
undar um mannauð og gildi þess
að hlúa vel að starfsfólki sínu. Ný
ákvæði í vinnuverndarlögum og
reglur um innra starf fyrirtækja
leggja einnig auknar skyldur
á herðar þeirra um innra starf
að öryggi og heilbrigði starfs-
manna.
Mörg fyrirtæki starfa nú
þegar eftir viðurkenndu gæða-
kerfi sem tekur til þjónustu og
framleiðslu þeirra. En hvað er
til ráða ef fyrirtæki vilja bæta
öryggi sitt og innra starf? Frétta-
blaðið leitaði ráða hjá verkfræði-
fyrirtæki, Hnit hf., sem sérhæfir
sig í vinnuvernd.
„Það er tiltölulega auðvelt að
byggja upp innra starf varðandi
vinnuvernd í fyrirtækjum sem
hafa reynslu af gæðakerfum,“
segir Steinar Harðarson, vinnu-
verndarráðgjafi hjá Hniti. „Við
bjóðum fyrirtækjum aðstoð við
gerð áhættumats og áætlunar um
öryggi og heilbrigði og höfum
unnið sérstaklega fyrir vinnu-
staði í kringum byggingafram-
kvæmdir og mannvirkjagerð.“
Að sögn Steinars fara eftirlits-
menn frá Hniti reglulega á við-
komandi staði, þar sem þeir fara
yfir öryggis- og heilbrigðisþætti
eftir sérstökum gátlista í sam-
vinnu við verkefnastjóra og eða
öryggistrúnaðarmenn á hverj-
um stað. Eftir hverja heimsókn
er síðan gerð aðgerðaskýrsla
sem send er verkefnastjórum
samdægurs.
„Slíkt mat, sem betra væri að
kalla vinnuumhverfismat, eiga öll
fyrirtæki á Íslandi, stór sem smá,
að gera á næstu misserum,“ segir
Steinar sem álítur að gott vinnuum-
hverfi komi í veg fyrir slys og at-
vinnusjúkdóma og hafi góð áhrif
á starfsanda og dragi úr starfs-
mannaveltu.
„Slíkt mat leiðir oft til styrkari
stöðu fyrirtækja og betri ímynd-
ar. Það hefur sýnt sig að innan fyr-
irtækja er aukin áhersla á alhliða
gæðakerfi sem spannar alla starf-
semi þeirra,“ segir hann.
„Í okkar starfi höfum við orðið
vör við aukinn áhuga fyrirtækja á
góðu vinnuumhverfi,“ bendir Stein-
ar á. Krafan um að öryggi og heil-
brigði á vinnustöðum verði eins
gott og tæknilegir möguleikar leyfa
verður æ sterkari og innan samfé-
lagsins fer skilningur vaxandi .“ - vaj
Jákvæð áhrif á
starfsandann
Hnit hf. aðstoðar nú JB Byggingafélag og fer með starfsmönnum fyrirtækisins í
gegnum verklagsferla og gerð öryggis- og heilbrigðisáætlunar.
„Um þessar mundir erum við að aðstoða
JB Byggingafélag við að byggja upp
innra starf,“ segir Stefán.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
N1 VERSLANIR WWW.N1.IS
N1 býður úrval af legum og tengdum vörum
fyrir iðnað, bifreiðar og sjávarútveg. Hafðu
samband við fagmenn okkar í síma 440 1233.
LEGUR
Legur · Leguhús · Reimar · Tannhjól · Reimskífur
Pakkdósir · Sérverkfæri · Legufeiti