Fréttablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 38
22 1. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Í ár veðja Tyrkir á dramatískt
hetjurokklag í flutningi hljómsveit-
arinnar Mor ve ötesi. Lagið heitir
Deli og er sungið á tyrknesku.
Hljómsveitin var valin í keppnina af
tyrkneska ríkissjónvarpinu.
Mor ve ötesi var stofnuð árið 1995
og hefur gert fimm breiðskífur.
Fjórða platan sem kom út 2004 varð
metsöluplata sveitarinnar og seldist í
yfir 250.000 eintökum í Tyrklandi.
Margir gamlir aðdáendur töldu að
platan væri svik við „hinn rétta tón“
sveitarinnar, og því varð fimmta
platan sem kom út 2006 afturhvarf í
„gamla sándið“ og seldist ekki nema
í rétt yfir 50.000 eintökum.
Hljómsveitin hefur látið til sín taka á pólitíska sviðinu, meðal
annars mótmælt kjarnorkuverum og Íraksstríðinu. Sem áhrifavalda
nefna þeir hljómsveitir eins og New Model Army, Radiohead, King
Crimson og Tool.
Tyrkir hafa keppt síðan 1975 og oft gengið ágætlega, unnu meira að
segja árið 2003 og urðu í fjórða sæti í fyrra. Hvort hetjurokk eigi
einhvern séns í sætsúpunni í ár kemur í ljós, en Tyrkir keppa á sama
tíma og við í undankeppninni.
Tyrkneskt hetjurokk
TYRKNESKAR STÓRSTJÖRNUR Rokk-
bandið Mor ve ötesi.
53 DAGAR TIL STEFNU
„Ég vil að fólk kunni
að meta þessa föt fyrir
það sem þau eru,
og líti ekki bara á
þau sem enn eina
línuna frá enn einni
stjörnunni.“
RACHEL BILSON sem er
að senda frá sér nýja
fatalínu, er greinilega
mjög bjartsýn.
„Ég er búinn að gera of marga
heimskulega hluti til þess að
það verði ekki gerðar myndir
um mig þegar ég er dauður,
svo ég get alveg eins skrifað
handritið sjálfur.“
GEORGE MICHAEL
um væntanlega ævisögu sína.
„Ég var hvorki hippi né hasshaus
í menntaskóla, svo ég endaði
á því að vera fríkið. Ég hafði
áhuga á klassískum ballett og
tónlist og krakkarnir voru
ansi vondir ef maður var
öðruvísi.“
MADONNA um menntaskólaárin.
MH og MR eiga í stríði um þessar mundir
og hefur þegar verið gripið til óvenju-
legra aðgerða. Næturvaktir hafa verið
skipulagðar í báðum skólum til að klekkja á
andstæðingnum og hvorugur hyggst skrifa
undir friðarsamninga fyrr en það hefur
verið til lykta leitt hvor skólinn sigrar í
ræðukeppni Morfís.
Stríðsátökin brutust út á föstudaginn þegar
forseta nemendafélags Menntaskólans við
Hamrahlíð, Berglindi Sunnu Stefánsdóttur, var
rænt af MR-ingum um hábjartan dag í miðborg
Reykjavíkur. Mannræningjarnir hugðust fara
fram á það við forsetann að hún skrifaði undir
plagg þar sem ósigur væri viðurkenndur og að
MH-ingar væru ómerkilegri en nemendur
Menntaskólans í Reykjavík. „Ég reif nú bara
plaggið,“ segir Berglind, sem lét svartklæddu
menntskælingjana ekki hræða sig til illra verka.
Upphófst smá múgæsing í kjölfar aðgerða hennar
en hún segir mannræningjanna þó hafa komið vel
fram við sig og fékk meðal annars gos á meðan á
gíslingunni stóð. Búast má við miklum erjum
þangað til úrslitaviðureignin fer fram en
umræðuefni hennar er „áróður“.
Að sögn Ara Guðjónssonar, liðsstjóra ræðuliðs
MR, hefur verið stofnuð skófludeild innan
Menntaskólans sem á að sjá um skæruhernað.
Hún kom meðal annars upp fána skólans á lóð MH
sem var skilað aftur í gærmorgun. Og þá höfðu
MH-ingar tekið sig til og kastað af sér vatni yfir
hann. Þeir mættu einnig með níðstöng og blys á
lóð gamla skólans og sú aðgerð gerði ekki neitt
annað en að hella olíu á eldinn. „Við erum búnir
að skipuleggja næturvakt til að hafa hendur í hári
þeirra sem ætla að skaða skólann okkar,“ segir
Ari. „Menn verða að verja sitt svæði,“ bætir hann
við en vill ekki upplýsa hver næsta aðgerð
„skófludeildarinnar“ verði.
Lárus Jón Björnsson, liðstjóri ræðuliðs MH, var
nýkominn af fundi í MH þar sem sjö manna
herdeild var stofnuð en hún fær það hlutverk að
koma höggi á andstæðingana. „Þeir verða svona
hálfgerð yfirstjórn og munu sjá um skipulagningu
skæruhernaðarins næstu daga,“ segir Lárus.
Hann upplýsir að MH-ingar hafi einnig skipulagt
næturvakt í skólanum þannig að hægt verði að
afstýra öllum „skemmdarverkum“ á skólalóðinni.
„Þetta er mikið stuð og okkur líður vel enda vel
stemmdir fyrir keppnina.“
freyrgigja@frettabladid.is
MH og MR lýsa yfir stríði
Í VÍGAHUG Lið MR er skipað þeim Ara Guðjónssyni, Jóni
Benediktssyni, Arnari Má Ólafssyni og Guðmundi Agli Árna-
syni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STRÍÐSMENN MH Lárus Jón, Hugi Leifsson, Birkir Blær Ingólfs-
son og Arnmundur Ernst Bachman eru stríðsmenn MH.
Nýjasta kvikmynd Kevins
Spacey, 21, fór beint á toppinn á
aðsóknarlistanum vestanhafs
um síðustu helgi. Myndin er
byggð á
sannsögu-
legum
atburðum og
fjallar um hóp
háskólanema
sem eru
sérfræðingar
í fjárhættu-
spilum og
nýta sér það
til hins ítrasta
í Las Vegas. Með önnur helstu
hlutverk fara Kate Bosworth og
Laurence Fishburne. Leikstjóri
myndarinnar er Robert Luketic
sem áður hefur sent frá sér
gamanmyndirnar Legally
Blonde og Monster- In-Law. Í
öðru sæti á aðsóknarlistanum
lenti teiknimyndin Horton
Hears A Who! og í því þriðja
Superhero Movie þar sem gert
er grín að ofurhetjumyndum.
Spacey beint
á toppinn
KEVIN SPACEY
Vinningshafar síðustu keppni
Ekki missa af
Skólahreysti
kl. 20.10
á Skjá einum.
Hver sigrar
í kvöld?
www.ms.is
Aðalstyrktaraðili
Skólahreystis
Giljaskóli Akureyri