Fréttablaðið - 01.04.2008, Side 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn 1. apríl,
92. dagur ársins.
6.44 13.31 20.20
6.26 13.16 20.08
Bjartur í Sumarhúsum þurfti lengi að búa þröngt. Svo skall
stríðið á með tilheyrandi þenslu og
hækkandi verði á kindakjöti svo
skyndilega gátu Bjartur og aðrir
kotbændur keypt fínar skraut-
styttur og byggt hús, já jafnvel
þrílyft hús og steypu eins og
Bjartur gerði. Þensla stríðsins
fyllti hann bjartsýni og ákvað hann
því einnig að styrkja fjárhóp sinn í
von um að verða ríkari maður enda
hækkaði kjötverð mikið með til-
komu hersins. En blessuðu stríð-
inu lauk um síðir, þenslan hjaðnaði
og Bjartur komst að raun um að
nýja húsið var illa byggður hjallur,
verðið á kindakjöti hrundi og aftur
tóku vandræðin við.
ÓSJÁLFRÁTT skýtur þessari
sögu af Bjarti og húsnæðisvand-
ræðum hans oftast upp í höfði mér
þegar ég skoða fasteignavefina.
Ég fylgist með verði lækka, sér-
staklega þar sem stendur að fast-
eignin sé laus til afhendingar
strax, því þá er auðsýnt að bjart-
sýnir fyrrverandi húsráðendur
hafa keypt sér nýtt og betra hús-
næði án þess að hafa selt hið fyrra
og má því leiða að því líkur að þeir
séu komnir í skelfileg vandræði.
Hér hefur ríkt blessuð þenslan og
alla langað til að ávaxta sitt pund
eða stækka fjárhópinn eins og
Bjartur forðum daga. Ansi margir
fjárfestar samtímans hafa þó, eins
og Bjartur, þurft að horfa upp á fé
sitt og fjárfestingar falla í verði
eins og gerist óhjákvæmilega oft á
litla Íslandi þegar breytingar
verða úti í hinum stóra heimi.
VERKTAKAR og bankar eru ef til
vill skýr dæmi um þá bjartsýni
sem ríkti í tengslum við fasteigna-
markaðinn fyrir skemmstu. Gríð-
arlegur fjöldi nýrra húsa hefur
risið á síðustu árum og um tíma
töldu forsvarsmenn bankanna svo
bjart í vændum á húsnæðis-
markaðnum að þeir vildu að Íbúða-
lánasjóður yrði lagður niður.
ÞÓTT verulega hafi dregið úr
veltu á fasteignamarkaði, lána-
markaðurinn sé nær frosinn og
framboð á eignum hafi aukist
gríðarlega að undanförnu virðast
bankamenn og fasteignasalar ætla
að halda áfram að reyna að sann-
færa fólk um að fasteignaverð fari
ekki að lækka. Hvers vegna í
ósköpunum ætti það ekki að gera
það? Ef lögmálið um framboð og
eftirspurn stenst hlýtur það að
falla verulega. Eða hefði Bjartur
kannski bara getað selt hjallinn á
okurprís eftir allt saman, nei,
varla ekki, nema hjallurinn hefði
verið reistur í miðbænum og hefði
fengið að grotna svo niður að
ekkert biði hans nema niðurrif
með tilheyrandi gróða.
Bjartsýni ríður
húsum
SIMPLY CLEVER
HEKLA · Laugavegi 172-174 · Sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranes · Ísafjörður · Reyðarfjörður · Reykjanesbær · Selfoss
SKODA SCOUT 4x4
SEM EYÐIR EKKI 4xMEIRA
Octavia Scout nýi fjórhjóladrifsbíllinn frá Skoda er rúmgóður, með meiri
veghæð en bílar í sama stærðarflokki og öfluga 140 hestafla 2.0 TDI dísilvél.
Hann er er ríkulega búinn, á frábæru verði, með 17" álfelgur, fjarlægðarskynjara,
Climatronic loftkælingu og ESP stöðugleikakerfi.
17" álfelgur
Brettakantar
Þakbogar
Meiri veghæð