Fréttablaðið - 09.04.2008, Síða 14
14 9. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNMÁL Í nýju frumvarpi við-
skiptaráðherra um breytingar á
lögum um aðgerðir gegn peninga-
þvætti og fjármögnun hryðju-
verka er mælst til þess að, auk
Fjármálaeftirlitsins, verði Neyt-
endastofu falið eftirlit með fram-
kvæmd laganna.
Verður Neytendastofu einkum
falið að hafa eftirlit með og upp-
lýsa um lagalegar skyldur ein-
staklinga og fyrirtækja sem selja
hluti, sem greitt er fyrir með
reiðufé, að fjárhæð fimmtán þús-
und evrur (1.700 þúsund krónur á
núgildandi gengi) eða meira. Er
þar einkum átt við seljendur dýrr-
ar vöru á borð við eðalsteina,
málma og listmuna, samkvæmt
núgildandi lögum. Þar við bætist
eftirlit með seljendum skartgripa
og seljendum nýrra og notaðra
bíla.
Frumvarpið er lagt fram til að
mæta athugasemdum alþjóðlegr-
ar eftirlitsnefndar [FATF] um
aðgerðir gegn peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka.
Í úttekt haustið 2006 kom fram
að Ísland hafði einungis uppfyllt
hluta tilmæla FATF um aðgerðir
gegn peningaþvætti og fjármögn-
un hryðjuverka. Hefur Ísland
skuldbundið sig til að samræma
löggjöf og starfsreglur að tillög-
um FATF. - bþs
Frumvarp um aðgerðir gegn peningaþvætti kveður á um eftirlit Neytendastofu:
Eftirlitsskylda nái til bílasala
TIL SÖLU Eftirlit Neytendastofu með
lögum gegn peningaþvætti og fjár-
mögnun hryðjuverka nær til bílasala,
samkvæmt frumvarpi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
LÖGREGLUMÁL Ellefu manns sem
höfðu troðið sér inn í sex manna
lyftu í sjúkrastofnun í borginni
festust um stundarsakir inni þegar
mótorinn í lyftunni brann yfir, á
föstudaginn var.
Fólkið tróð sér inn í lyftuna og
ýtti á viðeigandi hnapp. Lyftuhurð-
in lokaðist en lyftan færðist ekki
úr stað. Þess í stað brann lyftumót-
orinn yfir og rafmagnið sló út.
Lyftuhurðin opnaðist þó fljótlega
og fólkið komst út. - kg
Lyfta bræddi úr sér:
Ellefu inni í sex
manna lyftu
UMHVERFISMÁL Náttúruverndarsamtök Vestfjarða voru stofnuð á
Ísafirði á laugardaginn og var Bryndís Friðgeirsdóttir, fyrrverandi
bæjarfulltrúi á Ísafirði, kjörin formaður þeirra. Hátt í hundrað manns
voru viðstaddir fundinn, þar á meðal Þórunn Sveinbjarnardóttir
umhverfisráðherra.
Í ályktun stofnfundar var skorað á stjórnvöld og
vestfirska sveitarstjórnarmenn að standa vörð um
vestfirska náttúru og nýta hana á hóflegan og
skynsamlegan máta. Þá er hvatt til rannsókna á
vistkerfi og verndun náttúruverðmæta.
Sigríður Ragnarsdóttir, sem situr í stjórn samtak-
anna, segir að helstu verkefni þeirra verði að skrá
náttúruminjar á svæðinu, og vonast hún til að
fjárheimildir fáist fyrir stöðugildi til þess.
Sigríður segir samtökin ekki stofnuð til höfuðs
hugmyndum um olíuhreinsunarstöð á Vestfjörðum.
„Nei, alls ekki eingöngu. Náttúran er mjög ríkur
hluti af tilverunni hér vestra og samtökin verða málsvari náttúrunnar
á svæðinu.“
Náttúrusamtökin byggja á gömlum grunni því árið 1971 voru stofnuð
Vestfirzk náttúruverndarsamtök í Flókalundi. Samtökin voru mjög virk
í um fimmtán ár, gáfu út tímaritið Kaldbak og áttu stóran þátt í friðun
Hornstranda, en lognuðust síðan út af. - kóp
Náttúruverndarsamtök stofnuð á ný á Vestfjörðum um liðna helgi:
Samtökin verða málsvari náttúrunnar
AF HORNSTRÖNDUM Forveri nýju samtakanna átti stóran þátt í friðun Hornstranda.
SIGRÍÐUR
RAGNARSDÓTTIR.
MÓÐURÁST Gíraffamæðgin nudda
saman nefjum í dýragarðinum í Hann-
over í Þýskalandi í gær. Gíraffakálfur-
inn fæddist 16. febrúar og er nú þegar
orðinn hálfur þriðji metri á hæð.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SAMGÖNGUR Frestur til að sækja
um stöðu vegamálastjóra er
runninn út og sóttu alls tíu um
stöðuna.
Þeir eru: Auður Þóra Árnadótt-
ir forstöðumaður, Árni Freyr
Stefánsson umferðarverkfræð-
ingur, Bjarki Jóhannesson
sviðsstjóri, Eiríkur Bjarnason
verkfræðingur, Guðrún Þóra
Garðarsdóttir verkfræðingur,
Gunnar Gunnarsson aðstoðar-
vegamálastjóri, Gunnar Linnet
forstöðumaður, Hreinn Haralds-
son framkvæmdastjóri, Jón
Helgason framkvæmdastjóri og
Jón Sævar Jónsson framkvæmda-
stjóri. - kóp
Vegamálastjóri brátt ráðinn:
Tíu sækjast
eftir starfinu
Gengið frá samningsformi
Gengið hefur verið frá ráðningar-
samningsformi fyrir þá kennara og
starfsmenn Iðnskólans í Reykjavík
sem vilja halda áfram í starfi hjá sam-
einuðum skóla Iðnskólans í Reykjavík
og Fjöltækniskólans.
SKÓLAMÁL
Komdu og re
ynsluaktu
Volkswagen
með sparney
tinni
bensín- eða d
ísilvél.
Prófaðu að s
para
Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
PassatGolfPolo
5,0
l/100 km
4,5
l/100 km
Touran
5,9
l/100 km
5,8
l/100 km
Eyðsla, miðað við TDI® vél frá Volkswagen í blönduðum akstri.
Tiguan
6,9
l/100 km